Harmonikublaðið - 01.04.2002, Page 5
HARMONIKUBLAÐIÐ
VIÐTAL
saman með stuðningi gítarleikara frá Akur-
eyri. Nú síðustu árin höfum við Jón Árna-
son frá Syðri-Á í Ólafsfirði, sá ágæti spilari,
spilað saman og erum að enn þegar þetta
er ritað.
Það má segja að ég sé sjálfmenntaður,
lærði í einar 3 vikur en gafst upp, og sé
auðvitað alltaf eftir því, enda erfiðara að
læra lög með því að hlusta bara á plötur
eins og ég hef orðið að gera. Harmonikan
er skemmtilegt hljóðfæri og býður upp á
mikla möguleika. Einhvern veginn finnst
mér að hún sé eitthvað að dala hér fyrir
norðan nú í seinni tíð. Mér finnst alveg
vanta yngri menn í þetta, þar sem ég þekki
til, ja frá Þingeyjarsýslu vestur í Húna-
vatnssýslu eru þetta nánast allt fullorðnir
menn, og margir komnir á aldurinn 60-70
ára og eldri. Þegar ég var að alast upp voru
5 eða 6 sem spiluðu í Grímsey íbúar voru
70-80. Sama var að segja úr nágrannaeynni
Flatey. Þar voru 4 eða 5. Þess vegna skil ég
ekki hvað fáir koma fram á sjónarsviðið, í
16.000 manna bænum Akureyri þeir hljóta
að vera til, sem ég held nú. Það verður að
gera eitthvað til að ná þessum mönnum
inn ef þetta á ekki að deyja út. Sennilega
væri eitt ráðið að halda einhverja
skemmtifundi og reyna að hvetja menn.
Við vitum að það byrjar enginn nýr á því að
fara beint upp á svið og spila fyrir dansi
með bara einhverjum, þetta þarf allt að
móta og æfa. Þetta var allt annað þegar var
aðeins um eitt hljóðfæri að ræða. Já von-
um að þetta eigi eftir að lagast.
Að lokum sendi ég öllum
harmonikuunnendum bestu kveðjur.
Tekið á dansleik í gamla Alþýðuhúsinu á Akureyri sem nú er Hús aldraðra. Á myndinni eru frá
vinstri Hannes Arason, Hafliði Ólafsson, Ingimar Harðarsson og Ragnar.
Tekið á saumastofudansleik að Bjargi við Bugðusíðu á Akureyri. Á myndinni eru frá vinstri Ragnar,
Ingimar Harðarsson, |ón Árnason, Ásmundur Kjartansson og Númi Adolfsson.
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ
HÚNAVER 2002
Frá Félagi Harmonikuunnenda í
Skagafirði.
Fjöldskylduhátið harmonikuunnenda í
Húnaveri er árviss útihátið sem haldin var
fyrst í júní 1998.
Nánari tímamörk eru Jónsmessuhelgin
ár hvert sem núna árið 2002 ber upp á 21.-
23. júní. Þessi hátíð í Húnaveri er hlið-
stæð þeim útihátíðum sem haldnar eru
víða um land hjá þeim ýmsu félögum sem
starfandi eru samanber útihátíð á Breiðu-
mýri sem þeir Þingeyingar og Eyfirðingar
halda með glæsibrag.
Aðstandendur Húnavershátfðar hafa
verið Húnvetningar og Skagfirðingar. Nú
er það þannig að á milli Húnvetninga og
Skagfirðinga annars vegar og Eyfirðinga og
Þingeyinga hins vegar er eitt félag harm-
onikuunnenda það er á Siglufirði.
Þegar við aðstandendur Húnavershátíð-
ar litum yfir þetta svona landfræðilega
sáum við að Siglfirðingar voru þarna nokk-
uð afskekktir. Höfðum við því samband við
þá og buðum þeim að vera þáttakendur í
Húnaveri 2002 og þáðu þeir það.
Bjóðum við þá velkomna í samstarfið
og hlökkum til að starfa með þessu iíflega
og mikla tónlistarfólki sem þarna býr. Sigl-
firðingar eiga eftir að lífga enn frekar upp á
annars ágætar og velheppnaðar útihátíðir
undanfarinna ára. Dagskrá Húnavershá-
tíðar 2002 getum við ekki tíundað núna en
reiknum með að hún verði með svipuðu
sniði og undanfarin ár. Auglýsingar mun-
um við senda til allra formanna félaganna
þegar nær dregur.
Kær kveðja og hlökkum tii þess að sjá
sem flesta í Húnaveri 2002
f.h. félaganna FHS, HUH , og HU Siglufirði
GunnarÁgústsson