Harmonikublaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 11
HARMONIKUBLAÐIÐ
BREFAHORNIÐ
Svíþjóðarbréf
Heiðursgestir á Landsmóti 2002
Ég vil byrja á því að þakka fyrrverandi út-
gefendum " Harmonikunnar” fyrir margar
góðar stundir og fróðlegt efni. Konan mín
sagði alltaf að þetta væri eina tímaritið
sem ég læsi spjaldanna á milli sama dag
og það kom og það var alveg rétt. Nú hefur
verið stutt hlé á útgáfu blaðsins góða og
hefur valdið mér miklum söknuði.
Samtímis vil ég óska nýjum útgefend-
um til hamingju og vona að margir unn-
endur harmonikutónlistar láti ljós sitt
skína og sendi greinar til blaðsins. Við get-
um ekki reiknað með að einn eða tveir
haldi svona tímariti á floti. Eftir langt há-
skólanám án þess að snerta harmoniku og
síðar framhaldsnám í skurðlækningum í
Svíþjóð fékk ég gullið tækifæri að hitta per-
sónulega mína fyrirmynd í harmonikuleik,
(ohn Molinari, í Hyvinkáá í Finnlandi 1985.
Þar voru alþjóðlegir tónleikar og margir
snjallir listamenn komu á sviðið, m.a. Tatu
Kantomaa 11 ára gamall, sem spilaði
fjörugann poika og fór mjög létt með það!
Við hjónin hrifumst mikið af þessum unga
snillingi og mér varð að orði" þessi dreng-
ur verður stórmeistari”! Næst þegar ég
heyrði Tatu spila var 17.júní 1992 á Hotel
Lapponia í heimaborg hans Rovaniemi. Þá
hafði ég hitt hann persónulega á heimili
hans Tuulenkatu 8 daginn áður og fengið
hann til að spila fyrir félaga úr Félagi
harmonikuunnenda í Reykjavík sem stadd-
ir voru þarna á "Íslandsviku-hátíð". Ég man
vel eftir hrifningu áheyrenda, sérstaklega
Reyni Jónassyni, sem sat næst mér við
borðið, við bókstaflega gleymdum að
borða og ég man ekki hvaða matur var! Á
leiðinni til Rovaniemi kom ég við hjá Dani-
el Isaksson í Luleá og þeir komu til íslands
ári síðar á Landsmótið á Egilsstöðum.
Þessari Iöngu bílferð gleymi ég aldrei.
Framhaldið af kynnum okkar við Tatu
þekkja allir, sem lesa þessar línur.
í gegnum árin hér í Svíþjóð hef ég haft
tækifæri til að hlusta á marga góða sniil-
inga og reyndar "plata" nokkuð marga til
að heimsækja ísland. Má þar nefna Lars
Ek, Nils Flácke, Anders Larsson,Anniku
Andersson, Sigrid Öjefelt, Conny
Báckström og Bröderna Fárm. Ég vona að
margir hafi notið vel og geymi góðar minn-
ingar um þessa ágætu gesti.
Annika Andersson
Á Landsmót harmonikuunnenda á ísa-
firði koma á þessu ári (2002) eftirfarandi
snillingar:
Annika Andersson, 28 ára, sem var valin
,Arets dragspelare" 2000 í Svíþjóð. Flestir
kannast vel við hana frá fyrri heimsóknum
til íslands og hlakka vonandi til að hitta
hana aftur. Ég heimsótti hana nýlega og
við ræddum m.a. lagaval fyrir tónleikana.
Mér skilst að þetta verði góð blanda af
skandinavískri tónlist, bæði frá Noregi, Sví-
þjóð og Finnlandi, einnig nokkur iög eftir
aðra þekkta snillinga (Frossini.Deiro o.fl.)
Annika hefur náð mikilli leikni að mínu
mati og enginn vafi á að hún hrífur sína
áheyrendur.
Lars Karlsson, 30 ára, var valinn ,Arets
dragspelare" 2002 og það er í fyrsta sinn,
sem nikkari með diatoniska harmoniku
verður fyrir valinu. Báðir foreldrar Lars
spila á nikku og einnig föðurafi hans. Fjöl-
skyldan rekur stóra verslun með hljóm-
flutningstæki og harmonikurTKarlsons
Musik” í Fjárás, suðaustan við Gautaborg.
Lars hefur leikið á diatóniska nikku frá 10
ára aldri og komið fram í útvarpi og sjón-
varpi í Skandinavíu, unnið keppnir á mörg-
um stöðum m.a. norrænn meistari 1993
Lars Karlsson
(durspel) Lars hefur gefið út margar geisia-
plötur síðustu árin og gefst mótsgestum á
ísafirði væntanlega kostur á að kaupa plöt-
ur þar ? Auk þess að vera mjög líflegur og
skemmtilegur spilari, hefur hann samið
fjölda laga bæði fyrir „durspel" og venju-
lega nikku. Væntanlega birtist eitt lag á
nótum í þessu blaði ? Honum hefur tekist
að fá „venjulega" harmonikuleikara til að
hlusta (með hrifningu!) á díatóniska harm-
oniku og fært þetta hljóðfæri mörg stig
uppávið. Þar að auki er Lars prýðilegur
bassaleikari og kemur til með að taka þátt
í tónleikum Anniku, bæði með bassa og
nikku (durspel og stradella).
Tomas Andersson, Bróðir Anniku, er
þriðji listamaðurinn, sem kemur til fsa-
fjarðar með sinn Gítar. Hann hefur spilað
mikið með hinum tveimur og er meðlimur
í „Lars Karlssons Band". Þetta er sérstök
ánægja fyrir Lars og Anniku, því þá geta
þau fullæft dagskrána hér úti og finna mik-
ið öryggi í nærveru hans. Dagskráin verður
fjölbreytt, bæði sóló, dúettar og tríó!
Njótið vel!
Eyþór H. Stefánsson
Gautaborg 17/3 2002
m