Harmonikublaðið - 01.04.2002, Side 15
HARMONIKUBLAÐIÐ
AFMÆLISFAGNAÐUR
Harmonikufélagiö Nikkolína - 20ára
starfsafmæli 1981-2001
Harmonikufélagið Nikkolína var stofnað 7.
nóv. 1981 og var aðal hvatamaður að
stofnun þess og fyrsti formaður Kristján
Ólafsson, þáverandi tónlistarkennari við
Tónlistarskóla Dalasýslu. Tilgangur félags-
ins var auðvitað að efla veg þessa hljóð-
færis, sem um langan aldur hefur verið
gleðigjafi á mannamótum í Dölum eins og
víða annars staðar á landinu. Félagar þurfa
ekki endilega að vera kunnáttumenn í
harmonikuleik, heldur einungis að hafa
gaman af spili og söng og dansi, auk þess
að hafa áhuga á eflingu félagslífs.
Æfingar voru reglulega strax frá upp-
hafi, en sumir eiga langt að fara á æfingar
og hefur stundum gengið á ýmsu. í fundar-
gerð frá janúar 1983 segir: "Byrjað var með
nótnasamlestri fjögurra laga, en síðan var
frjáls tími og spilaði hver sem betur gat.
Einna harðsóttust varð ferð félaga úr
Hörðudal og urðu þeir að handmoka alla
leiðina, svo leiðin mun nú vera fær öllum
sem á eftir koma. Ragnar Ingi mætti á
fundinn sunnan úr Reykjavík og þykir fund-
armönnum þetta "ferðaharðfylgi” bera
skýran vott um brennandi áhuga á mál-
inu."
Nikkolína hefur víða farið á umliðnum
árum og starfsemin eflst í gegnum tíðina.
Félagar hafa verið frá upphafi duglegir við
að koma harmonikutónlist á framfæri.
Skemmtifundir og kaffikvöld hafa verið
haldin, spilað hefur verið á Daladögum,
Jörvagleði, Þorrablótum, Leifshátíð (í rign-
ingu) og við ýmis önnur tækifæri. Alls
staðar gleðja harmonikutónar.
Fyrsta formlega þátttaka félagsins á
Landsmóti SÍHU var að Laugum í Þingeyj-
arsýslu, sumarið 1990 og síðan hefur engu
landsmóti verið sleppt.
Einnig hefur verið spiiað vítt og breitt
um landið, í söngferðum með kórum sýsl-
unnar og einnig í mjög ánægjulegum sam-
skiptum við önnur harmonikufélög. Má þar
nefna Borgfirðinga, Rangæinga, Þingey-
inga, Húnvetninga, Skagfirðinga, Reykvík-
inga, Eyfirðinga. Síðastliðið sumar var
farið í frábæra ferð til ísfjarðar.
Nikkolína fór svo með Þorrakórnum til
Færeyja fyrir tveimur árum í tónlistar- og
skemmtiferð og er því ferillinn orðinn
býsna fjölskrúðugur og líflegur. Vonandi
verður framhald á því jafn gott og farsælt
og það sem að baki er.
Núverandi formaður félagsins er Árni
Sigurðsson, bóndi í Köldukinn en hljóm-
sveitarstjóri er Halldór Þ. Þórðarson, skóla-
stjóri Tónlistarskóla Dalasýslu.
Einn alltaf góður, Ríkharður (óhannsson með
saxafónin
Húnaver
2002
Harmonikuunnendur munið Húnaver 2002
Jónsmessuhelgina 21-23. juní.
Við tökum vel á mótiykkur.
Félög harmonikuunnenda
Húnavatnssýslu, Skagafirði og Siglufirði.
Verð kr. 2000.-
Pöntunarsímar:
557 3904/892 5215
Hjördís Geirsdóttir
er búin að syngja fyrir íslendinga
í fjörutíu ár og er enn að.
Hér sýnir hún allar sínar bestur hliðar, með
dyggri aðstoð bestu tónlistamanna landsins
og syngur lögin sem hún hefur heillað
þúsundir með, í gegnum tíðina.
Þennan má ekki vanta í safnið!
Hið árlega og sívinsæla
VORBALL
verður í BÁSNUM, Ölfusi,
laugardaginn 11. maí nk.
Hefst það kl. 22 og stendur til kl 02.
Félagar úr FHSN spila, ásamt ýmsum gestaspilurum.
Tónlist fyrir alla.
Cömlu og nýju dansarnir
Fjölmennum!
AÐALSTEINN ÍSFJÖRÐ
MÚRARAMEISTARI
© 464 1541 • FAX 464 1541 • FARSÍMI 853 8398
GARÐARSBRAUT 45b • 640 HÚSAVÍK
Steypusögun - Kjarnaborun
Get bætt við mig verkefnum
Leitið tiiboða
Vil minna á
geislaplötuna
„í Ásbyrgi".
FELAG HARMONIKUUNNENDA A SELFOSSI