Harmonikublaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 5

Harmonikublaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 5
HARMONIKUBLAÐIÐ VIÐTALIÐ Tveir nemendur Fanneyjar frá árum áður. Frá vinstri Maren Lind Másdóttir og hægra megin Brynja Valdimarsdóttir. og við æfum lög sem hægt er að grípa til hvenær sem er. Nemendunum sjáifum finnast samspilstímarnir ómissandi. Ég hef skipt niður í hópa eftir getu. Það er mikill metnaður í þessum tímum enginn vill verða eftirbátur annarra og sem betur fer eru allir góðir vinir og þeir eldri hjálpa þeim yngri. Það má segja að þessi deild hafi skilað mjög góðum árangri. Margir sem hafa verið lengi eru nú ágætir harm- onikuleikarar. Ein stúlka, Oddný Björgvinsdóttir, er þegar farin til Noregs í tónlistarháskóla í Osló, þar stendur hún sig mjög vel og hún er ánægð í skólanum, Rut Berg Guð- mundsdóttir er á sama róli og Oddný og hún æfir marga klukkutíma á dag. Hún er afburða nemandi. Ég gæti nafngreint fleiri eins og Sólberg B. Valdimarsson, Ástrósu Unu jóhannesdóttur, Láru Björg- vinsdóttur (systir Oddnýjar), Maren Lind Másdóttur og fleiri sem eru á leiðinni upp skalann. Þessi hópur sem ég hef þeg- ar nafngreint ásamt fleiri nemendum fengu það í verðlaun ef svo má segja að fara til Danmerkur árið 2000. Skólanum okkar bauðst tækifæri til að senda nem- endur út og Lárus valdi harmonikuhóp- inn minn. Þetta var alveg frábær ferð og ég var mjög stolt af hópnum mínum. Haustið 2000 fengum við aldeilis góð- an liðsauka í harmonikudeildina, en þá byrjaði Jurf Fjodorov, rússneski tvíburinn, að kenna hjá okkur. juri er frábær kennari og hann tók við öllum lengra komnu nemendunum, þeir eru allir mjög ánægð- ir og þjóta áfram. Næsta vor 2003 hef ég lokið 38. vetri mínum í kennslu á hljóðfæri og aldrei tekið mér frí, ekki einn einasta vetur, svo nú er mál að linni. Næsta vetur fer ég í frí. Ég hef átt afskaplega miklu láni að fagna í starfi mínu við Tónlistarskólann á Akra- nesi og það á ég ekki síst að þakka skóla- stjóranum mínum, Lárusi Sighvatssyni, sem hefur reynst mér einstaklega vel. Svona er þetta í hnotskurn. Fanney Magna Karlsdóttir. EXCELSIOR harmonikur Úrval fylgihluta, s.s. axlaólar bassaólar, belgólar baksvuntur, harmonikupokar, allar stærðir. Verið ÆS hljóðfæraverslun 2Qj 9'æsl'eðurtandsbraut 32. Leifs Magnússonar ehf. að SUÐURLANDSBRAUT 32, 108 REYKJAVlK, SÍMI 568 8611 aw mánudaga-föstudaga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14.

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.