Harmonikublaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 10

Harmonikublaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 10
AÐALFUNDUR HARMONIKUBLAÐIÐ Aðalfundur S í H U 2002 Stjórn S.Í.H.U. Frá vinstri: Alda Friðgeirsdóttir meðstjórnandi, Gunnar Ágústsson gjaldkeri, jóhannes Jónsson formaður, Guðrún Guðjónsdóttir meðstjórnandi og Egill jónsson ritari. Frá ritara S.Í.H.U! Laugardaginn 28. september síðastlið- inn var aðaifundur Sambands íslenskra harmonikuunnenda (S.Í.H.U.) haldinn að Narfastöðum í Reykjadal S-Þingeyjarsýslu. Fundurinn var að þessu sinni í boði Harm- onikufélags Þingeyinga sem tóku á móti gestum sínum með miklum myndarskap. Sá sem þetta skrifar var reyndar að koma á aðalfund SÍHU í fyrsta skipti og þá sem rit- ari sambandsins þannig að það var mikil tilhlökkun og satt best að segja nokkur kvíði sem ég bar í brjósti vegna þessa fundar. Flest andlitin þarna voru mér ókunn en þó þekkti ég þarna nokkra en kvíði minn hvarf eins og dögg fyrir sólu því þarna var mér og konu minni tekið með einstakri vinsemd eins og reyndar öllum sem þangað voru komnir. Flestir voru mættir að kvöldi föstudags- ins 27. september og á Narfastöðum beið okkar glæsileg gisti og fundaraðstaða og seinna um kvöldið nutum við gómsætrar veislumáltíðar í boði Harmonikufélags Þingeyinga. Eftir matinn skemmtu menn sér fram eftir kvöldi og að sjálfsögðu drógu menn fram harmonikurnar og síðan var dansað sungið og að sjálfsögðu rabb- að saman um væntanlegan aðalfund. Ekki má gleyma því að þarna var fulltrú- um aðildarfélaganna og stjórn S.Í.H.U. fært að gjöf fallegur minjagripur frá Harm- onikufélagi Þingeyinga sem unninn hafði verið af listamanni á Húsavík. Laugardagurinn 28. september rann upp frekar kaldur og blautur en við sem vorum mætt til aðalfundar þurftum engu að kvíða því öll aðstaða og umgjörð fund- arins var með miklum ágætum. Um há- degið breyttist veður og var þá farið með maka fundargesta í óvissuferð til að stytta þeim stundir á meðan fundað væri. Aðalfundur S í H U hófst síðan á slag- inu kl 13.30 með ávarpi formanns Jóhann- esar lónssonar. Jóhannes hóf mál sitt á því að minnast Bjarna Halldórs Bjarnasonar frá Neskaupstað sem lést fyrr á árinu. Bjarni Halldór var einn af stofnendum Fé- lags Harmonikuunnenda Norðfirði stofn- að 1. maí 1980 og mjög virkur í þeim fé- lagsskap á meðan heilsa hans leyfði. Bjarni samdi nokkuð af ágætum lögum fyrir harmoniku og var lagahefti með nokkrum lögum eftir hann gefið út í tilefni 80 ára afmælis hans 1. október 2001. Að ávarpi loknu var gengið til dagskrár. Til fundarins mættu formenn og fulltrúar aðildarfélaga S.f.H.U. ásamt stjórn sam- bandsins, 2 nefndarmenn og einn áheyrn- arfulltrúi, þannig að alls sátu fundinn 35 manns. í skýrslu stjórna fór Jóhannes for- maður vítt og breytt yfir starfsemi sam- bandsins á árinu. Að því loknu var komið að Landsmótinu á ísafirði sem haldið var í byrjun júlí á síðastliðnu sumri. Jóhannes þakkaði ísfirðingum fyrir vel heppnað mót og hrósaði Ásgeiri Sigurðssyni. fyrir harm- onikusafnið sem hann og Messíana kona hans hafa komið upp á ísafirði. Safn þetta vakti verðskuldaða athygli landsmóts- gesta og vonandi að það fái að vaxa og dafna í framtíðinni. Við þetta tækifæri var Ásgeiri formlega afhentur styrkur frá S.Í.H.U. að upphæð kr 150.000,- til upp- byggingar harmonikusafnsins. Einnig ræddi formaður um „Harmonikublaðið" sem hóf göngu sína á þessu ári. Útgáfa blaðsins hefur gengið vel til þessa og alls verða blöðin þrjú á þessu ári. Jóhannes hefur sjálfur ásamt konu sinni Hildi séð um útgáfu blaðsins þar sem ekki fékkst neinn til að sjá um útgáfuna eins og upp- haflega var áætlað. Eftir að skýrsla stjórnar hafði verið flutt og Gunnar R. Ágústsson gjaldkeri skýrt reikninga sambandsins urðu fjörugar um- ræður um þessi helstu mál starfsársins. Margir tóku til máls og virtust flestir ánægðir með það sem gert hefur verið en á fundinum komu fram tillögur um breytt- ar áherslur við öflun áskrifenda að blaðinu og samþykkti fundurinn að formenn aðild- arfélaganna ræddu þau mál hver í sínu fé- lagi. Á aðalfundinum áttu að verða for- mannsskipti en enginn bauð sig fram til starfsins og kom þá áskorun frá fundar- mönnum til lóhannesar lónssonar sitjandi formanns að gefa kost á sér aftur sem hann og gerði. Var lóhannes þar með kos- inn formaður til næstu þriggja ára. Einnig voru endurskoðendur sambandsins sem nú heita víst „skoðunarmenn" endurkjörn- ir. Ákveðið var ennfremur að árgjald aðild- arfélaga sambandsins yrði óbreytt frá því sem það hefur verið eða kr. 5000,- Þá var komið að þeim Ásgeiri Sigurðs- syni og Frosta Gunnarssyni að greina frá hvernig til hefði tekist með Landsmótið á ísafirði síðastliðið sumar. í máli þeirra fé- laga kom fram að ísfirðingar hefðu verið mjög ánægðir með framkomu landsmóts- gesta og engin teljandi óhöpp hefðu orð- ið í tengslum við mótið. Einnig greindu þeir fundinum frá fjárhagslegri útkomu mótsins og er óhætt er að segja að þar á bæ höfðu menn staðið sig vel en eins og allirvita þá liggur gríðarleg sjálfboðavinna á bak við allan þennan undirbúning og eiga ísfirðingar hrós skilið fyrir framlag sitt til þessa landsmóts. Eftir að þeir félagar höfðu lokið máli sínu tóku margir til máls og bæði þökkuðu ísfirðingum og skömm- uðust líka svolítið yfir ýmsu sem betur hefði mátt fara. En almennt voru fundar- gestir ánægðir með hvernig til hafði tekist. Næsta landsmót S í H U verður haldið í Neskaupstað árið 2005 og notaði Ásgeir tækifærið til að gefa formanni Félags EQf&'

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.