Harmonikublaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 11

Harmonikublaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 11
HARMONIKUBLAÐIÐ AÐALFUNDUR Narfastaðir í Reykjadal, þar sem aðalfundur S.Í.H.U. var haldinn. harmonikuunnenda Noröfirði, (F H U N) Guðmundi Skúlasyni, nokkur heilræði til að fara með heim og hafa við undirbúnig næsta landsmóts. Einar Guðmundsson og Guðmundur Samúelsson fóru í gegn um skýrslu sína en þeir störfuðu í nefnd um eflingu harm- onikukennslu. Á eftir skýrslu þeirra urðu fjörugar um- ræður og tjáðu sig margir um þessi mál. í þessum umræðum komu fram margar hugmyndir t.d að láta útsetja nokkur lög á hverju ári sem myndu nýtast aðildarfélög- unum og ekki hvað síst yngsta fóikinu sem er að læra á harmoniku í tónlistarskólum. Mikill áhugi er einnig fyrir því að halda „unglinga landsmót" þar sem „pollamóts" hugmyndin yrði notuð. Skagfirðingar tóku að sér að athuga þessi mál nánar og verð- ur gaman að sjá hvort hægt verður að út- færa þessar hugmyndir og koma í fram- kvæmd vonandi strax á næsta sumri. Nokkrar umræður urðu um harmoniku- kennslu í tónlistarskólum um nýja nám- skrá og námskeið fyrir harmonikukennara. Og síðast en ekki síst um harmonikuþætti í útvarpinu sem erfitt virðist vera að fá pláss fyrir í dagskránni. í lok fundarins flutti undirritaður kveðju frá Harmonikufélagi Færeyja. Fær- eyingar hafa mikinn áhuga á að koma á meiri samskiptum á milli landanna. Þeir hafa komið í heimsókn til íslands og nokk- ur harmonikufélög frá íslandi hafa heim- sótt Færeyjar .F H U N hefur verið í góðu sambandi við Harmonikufélag Færeyja í nokkur ár og gagnkvæmar heimsóknir hafa verið á milli félaganna. Enn hefur ekki verið ákveðið hvar næsti aðalfundur verður haldinn en það mál hlýtur að skýrast bráðlega. Margt fleira var rætt á þessum annars ágæta aðalfundi að Narfastöðum en of langt mál yrði að fjalla um það allt hér. Að fundi loknum fór fólk að taka sig til fyrir kvöldverð sem snæddur var að Breiðumýri. Þar nutum við glæsilegrar veislumáltíðar ásamt skemmtiatriða frá heimafólki og síðan var dansað fram eftir nóttu. Ég vil nota tækifærið til að þakka ölium fundargestum og mökum þeirra sem voru með okkur að Narfastöðum dagana 27. til 29. september síðastliðinn fyrir ánægju- lega helgi. Sérstakar kveðjur vil ég senda Aðalsteini ísfjörð og hans fólki í Harmonikufélagi Þingeyinga fyrir frábærar móttökur. Neskaupstað 12. október 2002, Egill Jónsson. Garðar Olgeirsson Garðar Olgeirsson er þjóðkunnur harmonikuleikari og hefur samið mörg fyrirtaks lög. Á þessum diski leikur hann all- skyns gömludansalög. Góður diskur sem allir ættu að eignast! Verð kr. 1.500,- • Pöntunarsími: 486-6646 Minning Bjarni Halldór Bjarnason Fæddur 01.10. 1921 Halli frá Gerðistekk eins og hann var venjulega kallaður var fæddur þar og alinn upp. Hann var sjötti í röð ellefu systkina og þurfti snemma að rétta hjálpar- hönd og vann öll venjuleg sveitastörf og sótti jafn- framt sjóinn. En hann gaf sér samt tíma til að sinna áhugamáli sínu en það var að spila á harmoniku. Hann byrjaði mjög ungur að spila og allt eftir eyranu. Hann spilaði á böllum, þorra- blótum og öðrum skemmtunum. Stund- um þurfti hann að bera harmonikuna á bakinu um langan veg og taldi það ekki eftir sér. Það var ekki fyrr en seinni árin sem hann fór að lesa nótur og semja lög. Halli samdi nokkur lög og eftir að hann hætti að vinna hafði hann betri tíma til að sinna þessu áhugamáli sínu. Nú síð- ustu árin var heyrnin farin að gefa sig og var það mjög bagalegt og átti hann erfitt Dáinn. 14. 06. 2002 með að spila með öðrum. Halli hafði mikla ánægju af því að fara á harmon- ikulandsmótin og aðrar skemmtanir þar sem spil- að var á harmoniku og ekki hvað síst að hitta allt fólk- ið sem þar var. Hann átti orðið marga góða kunn- ingja sem komu þar og spilaði gjarnan með þeim. Þann l.maí 1980 var stofnað „Félag harmonikuunnenda Norðfirði" og var Halli einn af stofnend- um þess og mjög virkur félagi. Halli var kvæntur Svanhvíti Sigurðar- dóttur frá Reyðarfirði og eignuðust þau 8 börn og eru afkomendur þeirra orðnir 47 talsins. Eiginkonu og afkomendum öllum votta ég mína innilegustu samúð. Hvíl í friði kæri vinur. Elín Ólafsdóttir. m®'

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.