Harmonikublaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 12

Harmonikublaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 12
FRÓÐLEIKUR HARMONIKUBLAÐIÐ Vestfjarðaferð Harmonikufélagsins Nikkolínu Það mun hafa verið um 20. apr- íl 2001 að við Ásgeir á ísafirði ræddumst við um tímasetningu á ferð Nikkolínu til að endur- gjalda heimsókn Vestfirðinga í Dali í ágúst 2000. Niðurstaða þessa samtals var að stefnt skyldi að sameiginlegum Jónsmessudansleik félaganna í Víkurbæ í Bolungavík,23.júní. Þegar farið var að kanna málið kom í Ijós að Halldór stjórnandi Nikkolínu hafði einmitt gengið í hjónaband þessa helgi fyrir 40 árum og frú Ólafía óskaði eftir að hafa hann fyrir sig þessa helgi. Þá ósk varð að sjálfsögðu að virða. Enn var hringt íÁs- geir formann og þá var laugardagskvöld- inu 30.júní slegið föstu. Næst var að huga að gistingu og far- kosti, þá kom í ljós að þessa helgi var á ísafirði upp sama staða og í Betlehem forðum að ekkert var rúm á gistihúsum bæjarins.Ritari Nikkolínu fékk þá vitrun um gistihúsið Finnabæ í Bolungavík, sem hefði þá eiginleika að það væri stækkað eftir þörfum hverju sinni. Það var Nikkolínu fastnað um hæl og svo fenginn bíll frá HP með hérumbil loforði um Brand bílstjóra. Það var sól og blíða þegar 18 manna hópur lagði af stað úr Búðardal með Brand við stýrið, um hádegisbil 29.júní. Stefnan var fyrst tekin á Bjarkarlund, þar vildi formaðurinn ólmur stoppa, hann hafði nefnilega gleymt þar forláta flís- peysu merktri íslandspósti þegar hann var að keyra félaga Sigvalda, sem hafði spilað þar á lónsmessudansleik af sinni alkunnu Sigvaldi Fjelsted heldur uppi fjörinu í Víkurbæ í Bolungarvík. snilld. |ú, peysan var í fatahenginu og for- maður tók gleði sína að fullu. Stoppið varð svo aðeins lengra því nikótín-skortur var farinn að gera vart við sig. Síðan var haldið sem leið lá fyrir Þorskafjörð og vestur hálsa, Brandur benti ferðalöngum á ýmislegt markvert er fyrir augu bar, þar sem Ragnheiður á Skerðing- stöðum baðst undan leiðsögn um sínar bernskuslóðir. Næst var áð á mörkum Austur-og Vest- ur-Barðastrandarsýslna í yndislegu veðri og síðan í Flókalundi þar sem menn hresstu sig á ýmsum veitingum. Eftir ánægjulegt stopp í Flókalundi var svo haldið á Dynjandisheiði. Þegar af heiðinni kom blasti Dynjandi við í allri sinni dýrð og þegar fór að sjá til bæja kom í Ijós að Jóhann í Stóru-Tungu kannaðist ýmist við ábúendur eða einhverja sem ættaðir voru af öllum bæjum allt í Dýrafjörð. Við vega- mótin að Núpi fóru þau Jóhann og Agnes systir hans úr rútunni en þau áttu heim- boð þarna í sveitinni. Áfram var haldið sem leið lá um Gemlufallsheiði til Önundarfjarðar og áfram um Vestfjarðagöng og beina leið út á Bolungarvík þar sem menn skiptu sér bróðurlega í herbergin í Finnabæ. Þar voru í móttökunefnd Ásgeir formaður, Sæmi málari og Baldur Geirmundsson. Brandur bílstjóri var svo sendur í lúxus gistingu heima hjá Sæma á ísafirði. Eftir kvöldmat í Finnabæ gerði fólk ým- ist að skoða staðinn, spila á harmoniku, eða menn vættu kverkar í bjór. Síðan var farið niður á pöbb að undirlægi Halldórs og spiluð nokkur lög. Á laugardagsmorguninn var risið snemma úr rekkju og haldið eftir morgun- verð inn á ísafjörð og niður að höfn, nú átti að sigla út í Vigur. Þegar við mættum á bryggjuna voru þar fyrir Ásgeir og Sæ- Verð kr. 2000.- Pöntunarsímar: 557 3904/892 5215 Hjördís Geirsdóttir erbúin að syngja fyrir íslendinga í fjörutiu ár og er enn að. Hér sýnir hún allar sínar bestur hliðar, með dyggri aðstoð bestu tónlistamanna landsins og syngur lögin sem hún hefur heillað þúsundir með, í gegnum tíðina. Þennan má ekki vanta í safnið! Til sölu! Díotonisk 3 kóra óspiluð takka harmonika. einnig Sero-Sette 3 kóra sem ný takkanikka og Serenelli kasettó 4 kóra pianónikka. Upplýsingar i sími 462-6252. Á ferö og fiugi með F.H.U.R. kom út fyrir fjórum árum og hefur að geyma leik hljómsveitar félagsins undir stjórn Þorvaldar Björnssonar. Meðal laga á diskinum F.H.U.R. marsinn, Hreðavatnsvalsinn og Tangóasyrpa. Ómissandi diskur í safnið. Verð kr. 1.500,- Pöntunarsímar: 568 6422 / 894 2322 c/H ferð og flttcfi M 1 II MAKMONIk U l N N I N D II M

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.