Harmonikublaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 3

Harmonikublaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 3
HARMONIKUBLAÐIÐ RITST|ÓRAPISTILL ISSN 1670-200X Ábyrgðarmaður : Jóhannes Jónsson Barrlundi 2 600 Akureyri Sími 462 6432, 868 3774 Netfang: johild@simnet.is Ritvinnsla: Hildur Gunnarsdóttir Prentvinnsla: Alprent Netfang: alprent@alprent.is Meðal efnis • Lars Karlsson Greinarkorn • F.H.U.R 25 ára • Harmonikufélag Hornafjarðar • Lag blaðsins Jón Heiðar • Fróðleikur HögniJónsson • Harmonikustelpan • Um liðna tíð • Hótel Iðufell • Breiðumýrarbragur Auglýsingaverð: Baksíða 1/lsíða kr. 12.000 « l/2síða kr. 6.000 Innsíður 1/lsíð kr. 11.000 l/2síða kr. 5.500 ii l/4síða kr. 3.500 l/8síða kr. 2.500 smáauglýsing kr. 1.500 Forsíðumyndin er af Oddnýju Björgvinsdóttur frá Akranesi. Ágætu lesendur! Ég vil byrja á því að óska ykkur gleðilegs harmonikusumars. Það hefur vafist fyrir mér hvað ég ætti að ræða við ykkur í pistlinum að þessu sinni. Þegar blaðið var að hefja göngu sína fyrir um það bil ári síðan voru aðal áhyggjurnar eða ekki fengist nægjanlegt efni í það. Hins vegar hafði ég þá trú að þetur myndi ganga þegar byrjunarörðugleikar yrðu yfirstignir, en sú hefur þó ekki orðið raunin. Nú hefur gengið mun verr að afla efnis í þetta fyrsta tölublað þessa árs en vænta mátti og hefði það með réttu átt að vera komið út mun fyrr. Það er nú svo að ekki er gaman að gefa út blað með auðum síðum, en það er mín skoðun að ef blaðið á að standa undir nafni megi það ekki vera minna en það er nú. Það var ætlunin þegar blaðið hóf göngu sína að sem flestir kæmu að efnisöfluninni og ég trúi ekki að þið lesendur góðir eigið ekki eitthvað í handraðanum sem þið væruð til með að birta í blaðinu. Efnið þarf ekki endilega að vera mjög merkilegt, það getur samt verið skemmtilegt og áhugavert engu að síður. Aðalatriðið er að við gerum allt sem í okkar valdi stendur svo blaðið geti komið út áfram, því það hlýtur að vera okkur öllum kappsmál. Þrátt fyrir að betur megi ganga vil ég þakka þeim sem hafa sent efni í blaðið, um leið og ég vonast til að sem flestir taki vel við sér og afli blaðinu efnis, lesendum til fróðleiks og skemmtunar, því blaðið er okkar allra! JJ. Lars Karlson harmonikuleikari ársins 2002 í Svíþjóð Hér birtir blaðið grein sem Lars Karlson skrifaði um ferð sína á Landsmótið á ísa- firði í júlí síðastliðinn. Lars Karlson var kosinn harmonikuleikari ársins 2002. í Svíþjóð.Hann var annar gestaspilarinn á landsmótinu. í blaðinu „Dragspels nytt" er heilmikil úttekt á tónleikaferðum og uppákomum hans á því ári og er þessi stutta grein hluti af þeirri úttekt. Gefum Lars orðið. Dagana 3.-8. júlí. Ég flaug ásamt Anniku Andersson og gít- arleikaranum okkar Thomasi Andersson til íslands. Við vorum sótt á flugvöllinn í Keflavík og okkur skutlað til Reykjavíkur, þar sem við tókum innanlandsflug til ísafjarðar. Þetta er trúlega fallegasti staður sem ég hef heimsótt. Við fengum konunglegar móttökur og skemmtum okkur stórkostlega vel og fengum meðal annars að skoða frábært fuglalíf á lítilli eyju. Þarna fengum við auk þess að fara í heitan pottfeða heita lind). Aðaltónleikarnir okkar voru laugar- daginn 6. júlí á stórkonsert sem þúsund manns sóttu. Minnum á fjölskylduhátíðina í Húnaveri 1 Góðir áskrifendur! Efni í næsta blað helgina 20.-22. júní Það er mjög mikilvægt að þið látið þarf að hafa borist Félög harmonikuunnenda vita um nýtt heimilisfang svo blaðið fyrir 20. maí. í Húnavatnssýslu, Skagafirði og Siglufirði berist til ykkar. Útgefandi

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.