Harmonikublaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 5
HARMONIKUBLAÐIÐ
TÍMAMÓT
Jón Ingi formaður og Guðný Sigurðardóttir, kona Friðjóns, færa
Daníel Bjarnasyni fráfarandi stjórnanda hljómsveitar FHUR þakk-
lætisvott frá félaginu.
síðasta vetrardag og þangað fóru oft stór-
ir langferðabílar þéttsetnir félögum úr
F.H.U.R.. Það er mörgum minnistæð
heimferð í dagrenningu fyrsta sumardag
að loknum dansleik í Gunnarshólma. Nú
eru hins vegar komnar til sögunnar helg-
arferðir. Sú fyrsta þeirra til Hornafjarðar,
en síðan hafa Dalamenn, Skagfirðingar
og síðast Húnvetningar verið heimsóttir.
Fullur áhugi er á að fara slíka ferð í vor og
er því hér með komið á framfæri til fé-
laga, sem kynnu að hafa áhuga á slíkri
heimsókn, en þátttakendur hafa verið
milli sextíu og níutíu í þessum ferðum.
Félagið var ekki gamalt þegar farið var að
huga að hljómplötuútgáfu og hefur það
nú staðið að þremur plötum og einum
hljómdiski.
Þau voru ekki mörg harmonikufélögin
á íslandi þegar hugmyndir að landsmóti
fóru að mótast. Og það var heldur ekkert
verið að tvínóna við hlutina. Það lá bein-
ast við að "öldungurinn” í hópnum tæki
að sér framkvæmdina og því var fyrsta
landsmótið haldið í Reykjavík sumarið
1982. Þá höfðu auk Reykjvíkurfélagsins
verið stofnuð félög í Þingeyjarsýslum, á
Vesturlandi, í Norðfirði, við Eyjafjörð, í
Húnavatnssýslum og í Dölum. Fjögur
síðasttöldu félögin tóku ekki formlega
þátt í þessu fyrsta landsmóti, en það átti
eftir að breytast. Talsverða bjartsýni hef-
ur þurft til að leggja í slíkt ævintýri, en
menn voru stórhuga og framkvæmdin að
sjálfsögðu með allt öðrum brag, en við
eigum að venjast í dag. Tónleikar voru
haldnir á Lækjartorgi og dansleikir í Sig-
túni við Suðurlandsbraut og í Festi í
Grindavík. Mótið tókst með slíkum ágæt-
um, að ákveðið var að halda næsta lands-
mót að Varmalandi í Borgarfirði að
tveimur árum liðnum. Síðan hafa alltaf
Ungliðahljómsveitin og von félagsins.
liðið þrjú ár á milli landsmóta. Til gam-
ans má geta þess að svo var áhuginn mik-
ill, að Reykvíkingar og Þingeyingar slógu
sig saman í ferð til Noregs seinna þetta
sumar.
Félagið hélt afmælishátið með pomp
og prakt í Veitngahúsinu Glæsibæ, föstu-
daginn 25. október s.l. og var þar margt
til gamans gert auk góðs viðurgjörnings í
mat og drykk. Tekið
var á móti gestum
með fordrykk í sér-
merktum afmælis-
glösum, Reynir jón-
asson og Símon Kur-
an léku fyrir bragð-
laukana, hljómsveitir
félagsins léku og
gamanmál flutt. Til
hátíðarbrigða var
finnski íslendingur-
inn Tatu Kantomaa
fenginn til að sýna
snilli sína og í lokin
var dansað við seið-
andi harmonikutóna
hljómsveitar Vil-
helms Guðmunds-
sonar. Góð aðsókn
var að hátíðinni og
almenn ánægja með
skemmtunina. Frið-
jón Hallgrímsson
fyrrverandi formaður
var sæmdur silfur-
merki félagsins á há-
tíðinni og hafa þá
níu félagar notið
þess heiðurs. í tilefni
25 ára afmælisins lét
félagið gera alls kyns
minjagripi, sem eru
til sölu hjá stjórn og skemmtinefnd fé-
lagsins. Núverandi stjórn skipa jón Ingi
Júlíusson formaður, Ingvar Hólmgeirsson
varaformaður, Hreinn Vilhjálmsson ritari,
Elísabet Einarsdóttir gjaldkeri og Gunnar
Kvaran meðstjórnandi. Formaður
skemmtinefndar er Friðjón Hallgrímsson.
F.H.
Hljómsveit Vilhelms Guðmundssonar mætt á svið. F.v. Þórir Magnús-
son, Þorsteinn R. Þorsteinsson, V.G. sjálfur, Mattí Jóhanns. söngkona
og Hreinn Vilhjálmsson.
„Og þau dönsuðu öll þarna í dynjandi galsa". Harmonikuunnendur
allra landa sameinist. Ólafur Magnús Hákonsson fremstur til vinstri,
síðan m.a. Keli og Svava, Aðalsteinn Guðjónsson, Guðmundur Sam-
úelsson og Guðrún, Gréta Sigfúsdóttir og Jóhann og Jón Gunnarsson.