Harmonikublaðið - 01.04.2003, Page 4
TÍMAMÓT
HARMONIKUBLAÐIÐ
Elsta harmonikufélagið 25 ára
Harmonikublaðið óskar Félagi
harmonikuunnenda Reykjavík
til hamingju með þennan
merka áfanga og þakkar
Friðjóni Hallgrímssyni fyrr-
verandi formanni félagsins
fyrir þá samantekt um félagið
sem hér fer á eftir
Félag harmonikuunnenda í Reykjavík
var stofnað þann 8. september 1977 og
átti Karl Jónatansson hugmyndina að
stofnun þess og hratt henni í framkvæmd
ásamt nokkrum nemenda sinna. Karl átti
síðar eftir að koma að stofnun fleiri fé-
laga auk landssambandsins. Fyrsti for-
maður F.H.U.R. var Bjarni Marteinsson og
hélt hann um stjórnvölinn fyrstu sjö árin.
|ón Ingi Júlíusson tók við af Bjarna og
gegndi formennsku til 1990, er Yngvi |ó-
hannsson tók við. Hilmar Hjartarson
leysti hann af hólmi 1993, til næstu þrig-
gja ára þegar Friðjón Hallgrfmsson var
kjörinn og starfaði hann til síðasta vors,
þegar Jón Ingi varð formaður að nýju.
F.H.U.R. hefur ávallt reynt að auka veg
og virðingu harmonikunnar með ýmsu
móti. Það hefur staðið fyrir skemmtifund-
um og dansleikjum á vetrum nánast frá
upphafi, auk þess að fá hingað erlenda
tónlistarmenn til skemmtana- og tón-
leikahalds, þegar tilefni hefur þótt til. Má
þar nefna Sigmund Dehli og Nya
Reynir Jónasson siakar á eftir „dinnerspilið".
Simon Kuran var farinn annað.
Bröderna Fárm auk
fjölda annarra lista-
manna. Það hefurátt
í samstarfi við önnur
félög á landinu auk
landssambandssam-
starfsins. Félagið hef-
ur reynt að stuðla að
aukinni útbreiðslu
hljóðfærisins í tón-
listarskólum og í því
skyni gefið nokkrar
harmonikur til þeir-
ra. Einn er sá þáttur
sem ekki má gleym-
ast í þessari upp-
talningu, nefnilega
harmonikuútilegurn-
ar. Það hafði tíðkast í
Ræða formanns, Jóns Inga Júlíussonar.
Mikið var maturinn góður - og vínið, -Herra minn góður. Grettir Björns., Hilmar Hjartar.,
Ingvar Hólmgeirs., ÖIIi Eyþórsson, Sigga hans Ölla, Sirrý hans Hilmars og Erna hans Grettis.
Eitt best spilandi borðið í húsinu.
upphafi níunda áratugarins, meðal félaga
í F.H.U.R. að fara til Þingvalla einu sinni á
sumri. Sumarið 1988 auglýsti svo blaðið
Harmonikan, sem tveir félagar í F.H.U.R.,
þeir Hilmar Hjartarson og Þorsteinn R.
Þorsteinsson stýrðu, almenna harmon-
ikuútilegu í Galtalæk og mun það vera í
fyrsta skipti sem harmonikumót er aug-
lýst með formlegum hætti. Síðan hafa
mörg félög þróað hugmyndina enn frekar
og í dag er ekkert sumar án harmoniku-
móta. Þá er rétt að minnast á annan þátt
í starfinu, sem mörgum félögunum þykir
ómissandi, en það eru vorferðir til ann-
arra harmonikufélaga. Til margra ára
héldu Rangæingar til dæmis dansleik
ailr
Fyrrverandi formaður FHUR, Friðjón Hall-
grímsson, heiðraður af núverandi formanni,
Jóni Inga Júlíussyni.