Harmonikublaðið - 01.04.2003, Side 6
FRÓÐLEIKUR
HARMONIKUBLAÐIÐ
Af starfi Harmonikufélags
Hornafjarðar
Hljómsveit Harmonikufélags Hornafjarðar á „opinni æfingu" í Pakkhúsinu á Höfn í maí 2002.
Fremri röð frá vinstri: Zophonías Torfason Höfn, iónína Einarsdóttir Höfn, Sigurður Þorsteins-
son Höfn, stjórnarmaður í félaginu. Önnur röð f.v.: Gunniaugur Þröstur Höskuldsson Höfn,
stjórnandi hljómsveitarinnar og stjórnarmaður í félaginu, Björn Sigfússon Brunnavöllum í Suð-
ursveit, formaður félagsins, Sigurgeir jónsson Fagurhólsmýri í Öræfum, Einar Guðni jónsson á
Kálfafellsstað í Suðursveit. Aftast situr Ragnar Eymundsson Höfn við trommurnar og Ásmund-
ur Þórir Ólafsson Höfn stendur með bassann.
Félagsstarfið hjá okkur sunnan jökla hef-
ur fengið nokkuð fastmótaðan svip í ár-
anna rás. Félagið er það yngsta á landinu
(eins og sjá má hér í upptalningu aftan á
forsíðu blaðsins) og allt frá stofnun þess
1994 hefur verið staðið að samæfingum
félagsmanna og kemur fastur kjarni sam-
an um það bil hálfsmánaðarlega frá sept-
ember og fram í apríl. Vetrarstarfinu lýkur
svo með harmonikuhátíð sem oftast hef-
ur verið haldin fyrir páska og er það nokk-
urs konar uppskeruhátíð félagsins sem er
öllum opin meðan húsrúm leyfir. Þangað
er venjan að bjóða einhverjum þekktum
einleikara sem leikur fyrir samkomugesti.
Félagsmenn leika einnig þau lög sem
þeir hafa æft yfir veturinn og síðan er
dansað fram á nótt við undirleik hljóm-
sveitar sem samanstendur af tiltækum
hljóðfæraleikurum, svo sem félagsmönn-
um og stundum gestaeinleikaranum á
hátíðinni ef hann er til í að taka lagið fyr-
ir dansi. Oftast hefur hátíðin verið haldin
á Veitingahúsinu Víkinni á Höfn, einu
sinni að Hrollaugsstöðum í Suðursveit
og nokkrum sinnum í Mánagarði í Nesj-
um.
Fjöldi gjaldskyldra félaga er um 30 og
svo eru nokkrir eldri félagar sem ekki
greiða árgjald. Sá kjarni sem sækir reglu-
bundið samæfingar hefur verið á bilinu
5-7 nikkarar og svo hefur bassaleikari og
Beltuna Leaderiv
amplisound
4ra kóra casetto nikka hvít.
Mjög nýleg
og lítið spiluð.
Upplýsingar gefur
Kristján Sigfússon
í síma 4681218
eða 8471906
trommuleikari bæst í hópinn þegar líður
nær opinberu samspili. Þessi 5-7 manna
hópur hefur verið dreifður um alla Aust-
ur-Skaftafellssýslu, frá Höfn og suður í
Öræfi, og hafa liðlega 100 km skilið þá að
sem um lengstan veg þurfa að sækja æf-
ingar. Við höfum því reynt að mætast
stundum á miðri leið og æfum þá í
Hrollaugsstöðum en annars er aðal æf-
ingastaður okkar í húsnæði Tónskóla
Austur-Skaftafellssýslu á Höfn. Félagarn-
ir þurfa þannig að leggja á sig mikil ferða-
lög til að hittast og spila saman en það er
auðvitað þess virði eins og allir þekkja
sem eru í þessum sömu sporum og við.
Félagið hefur reynt að útbreiða harm-
onikutónlist á starfstíma sínum, þannig
hefur það verið lyftistöng að fá einhvern
landsþekktan snilling til að leika á Harm-
onikuhátíðinni hjá okkur. Þegar ferðaá-
ætlun hefur hentað þá hefur tækifærið
verið notað og þessi einleikari fenginn til
að spila fyrir nemendur Tónskólans að
deginum og þá öllum heimilt að koma og
hlusta. Þetta hefur mælst vel fyrir og
áhugi fyrir því af hálfu okkar í stjórn fé-
lagsins að stuðla enn frekar að kynningu
á harmonikunni og þeirri fjölbreyttu tón-
list sem leikin er á hljóðfærið.
í Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu hafa
verið að jafnaði 3-5 nemendur í námi í
harmonikuleik undanfarin ár, flestir ungir
að árum, og hafa þeir komið fram opin-
berlega, þar á meðal á Harmonikuhátíð
og þá í samleik. Það er greinilegur vaxtar-
broddur meðal yngri kynslóðarinnar hér
á félagssvæðinu, eins og líka má sjá víða
um land, og mikilvægt að styðja við bak-
ið á þeim einstaklingum sem taka ást-
fóstri við hljóðfærið.
Á sama hátt og það er okkur félags-
mönnum og íbúum í Hornafirði mikils-
vert að fá góða gesti í heimsókn til okkar
þá er ekki síður stórkostlegt að fá að
heimsækja aðra og sjá og heyra þá spila.
Undirritaður ætlar því að lokum að þakka
fyrir hönd okkar félagsmanna kærlega fyr-
ir mjög góða skemmtun og frábærar mót-
tökur á landsmótinu sl. sumar á ísafirði
og óska um leið þess að starf harmoniku-
félaga og áhugamanna um harmoniku-
tónlist blómgist enn frekar á komandi
tímum.
Zophonías Torfason,
gjaldkeri Harmonikufélags
Hornafjarðar.
am