Harmonikublaðið - 01.04.2003, Qupperneq 7
HARMONIKUBLAÐIÐ
LAGAHOFUNDUR
Gauragangur
Höfundur Jón Heiðar Magnússon
Jón Heiðar spilar „dinner" við borðhald á
haustfundi að Varmalandi í október 1995.
Spilað fyrir dansi á útileguhelgi HUV við Þverárrétt. Frá vinstri: Grett-
ir Björnsson, |ón Heiðar, Þórir Magnússon og Bragi Hlíðberg.
urra kóra casetto sem er mjög vandaður
gripur ein sú besta sem ég hef handleik-
ið um dagana, en alls hef ég átt 7 harm-
onikur þau ár sem ég hef spilað.
Æf/r þú mikið í dag?
|á ég hef sjaldan æft meira enda hef ég
góðan tíma til þess, ekki síst þar sem ég
er nú hættur í föstu starfi.
Ertu enu að semja lög?
Það kemur fyriraf og til.
Er ekki kominn tími til að þú gefir lögin þín
út á geisladiski, og leikir þau sjálfur á karmon-
iku?
Það hefur oft verið nefnt við mig en
ekki orðið af því einhverra hluta vegna.
Viltu að lokum segja lesendum við hvað þú
ftefur starfað síðan þú fluttir á Akranes?
Ég vann fyrst í frystihúsi Haraldar
Böðvarssonar í u.þ.b. 2 ár síðan vann ég
hjá Vegagerðinni í 13 ár aðallega á
þungavinnuvélum, loks vann ég ýmis
störf var m.a. leigubílstjóri í nokkur ár og
síðast vann ég á Steypustöð Þorgeirs og
Helga á Akranesi. Blaðið þakkar |óni
Heiðari viðtalið og óskar honum velfarn-
aðar.
Þann 30. September árið 2000
hélt Félag harmonikuunnenda
við Eyjafjörð upp á 20 ára af-
mæli sitt að Laugarborg í Eyja-
firð. í tilefni þessara tímamóta
efndi félagið til Iagakeppni og
bárust 12 lög í keppnina víða
að af Iandinu.Af þeim voru val-
in 5 Iög til að keppa til úrslita í
afmælishófinu. í fyrsta sæti
varð lagið "Gauragangur".
Höfundur þess er Jón Heiðar
Magnússon á Akranesi. Jón
Heiðar er þekktur harmoniku-
leikari og lagasmiður. Lag
hans „Harmonifikan" var birt í
samnefndu blaði fyrir nokkrum
árum. Harmonikublaðið fékk
leyfi höfundar til að birta Iagið
„Gauragangur" í blaðinu að
þessu sinni og svara í leiðinni
nokkrum spurningum.
Hvar ertu fæddur?
Ég er fæddur og uppalinn á Sandhól-
um Saurbæjarhreppi í Eyjafirði árið 1935.
Ég flutti á Akranes árið 1955 og hef búið
þar síðan.
HvflJ kom til að þú fluttist úr Eyjafirði á
Akranes?
Ég kynntist konunni minni .Kolbrúnu
Leifsdóttur, sem þá var í kaupavinnu í
Eyjafirði. Hún var frá Akranesi og við
ákváðum að setjast að þar.
Hvenœr kynntist þú fiarmoniku fyrst?
Þegar ég var 12 ára gamall þá eignað-
ist mágur minn Scandalli harmoniku 120
bassa fjögurra kóra og voru það fyrstu
kynni mín af harmoniku. Ég fékk fljótt
áhuga á að prófa hana. Þessi harmonika
þótti mikið verkfæri á þeim tíma, en
hljóðfærið mátti ég ekki snerta og fannst
mér erfitt að sætta mig við það. Eina ráð-
ið var að sæta lagi og stelast í hljóðfærið
og gerði ég það hvenær sem færi gafst,
og heillaðist gjörsamlega af þessu
hljóðfæri.
Hvenær eignaðist
þú svo þitt eigið filjóð-
færi?
Fyrstu harmon-
ikuna mína fékk ég í
fermingargjöf og
var hún af gerðinni
Hohner 96 bassa
þriggja kóra. Það
má segja að hún
hafi verið mér sem
himnasending því
nú var ég engum
háður með hljóð-
færi lengur. Ég æfði
mig mikið og fljótlega fór ég að spila fyr-
ir dansi. Ég spilaði mikið og víða næstu
árin og allt til ársins 1968 er ég hætti ai-
veg spilamennsku. Ég snerti ekki harm-
oniku í 17 ár. En það var síðan árið 1985
að ég naut leiðsagnar Grettis Björnsson-
ar. Hann var fenginn til að taka að sér
kennslu hjá Harmonikuunnendum Vest-
urlands og þá byrjaði ég að spila á ný. Þá
gekk ég til liðs við
það félag og hef
spilað með því síð-
an. Ég hef líka spil-
að hjá Dansklúbbn-
um Duna á Akra-
nesi auk þess að
spila áýmsum upp-
ákomum sem til
hafa fallið.
Spilað fyrir dansi á tuttuguára afmæli HUV á Hótel Borgarnesi árið
'99. Frá vinstri: Steinunn Pálsdóttir á gítar, Hannes Baldursson á
bassa.í felum á bakvið Steinunni er Þórir Magnússon á trommur og
lengst til hægri ér )ón Heiðar á harmoniku.
Hvflðfl tegund af
fiarmoniku leikur þú á
t dag?
Það er harmon-
ika af gerðinni Bug-
ari Armando fjög-
DflF