Harmonikublaðið - 01.04.2003, Page 14
PISTILL
HARMONIKUBLAÐIÐ
Hótel Iðufell
Listmunir til sölu og spilað undir.
Þegar Þrastarskógarmótin höfðu sungið
sitt síðasta sumarið 1997, varð eins árs
hlé á harmonikumótum um verslunar-
mannahelgina. Árið 1999 blésu þau Snæ-
björn Magnússon og Hlíf Pálsdóttir til
harmonikumóts á Suðurlandi og boðuðu
harmonikuunnendur að Iðufelli í Laugar-
ási. Þar var að verða til aðstaða sem alla
hafði dreymt um, með góðu tjaldsvæði
ásamt afdrepi innandyra og viðunandi
aðstöðu fyrir húsbíla. Og þangað storm-
aði dágóður hópur harmonikuunnenda
og hóf landnám á nýjum stað. Þetta fyrs-
ta sumar var sem sagt frumbýlingaár
enda þau Snæbjörn og Hlíf aðeins búin
að sitja staðinn í tæp tvö ár.
Nú er öldin önnur. Með mikilli trjárækt
og endurbyggingu húsnæðis á staðnum
er orðin til aðstaða sem fer að nálgast
draumaaðstöðu fyrir útlaga, sérstaklega
þó harmonikufólk. Á Hótel Iðufelli, sem
upphaflega var byggt 1968 sem sláturhús
fyrir uppsveitir Árnessýslu, er nú komin
ágætis aðstaða fyrir ferðafólk. Hægt er að
gista í vistlegum herbergjum og veitinga-
aðstaðan, sér til þess að enginn þarf að
ganga soltinn til
sængur. Þá eru ris-
in á svæðinu fimm
smáhýsi, sem hægt
er að leigja gegn
vægu gjaldi. En á
harmonikumótum
eru flestir í tjöld-
um, tjaldvögnum
og fellihýsum í takt
við nýja tíma og
stöðug fjölgun hús-
bíla eykur á fjöl-
breytnina.
Flest hefur orðið
tæplega fimm-
hundruð manns á
Iðufelli og fór vel
um alla. Ekki þarf
að fara mörgum
orðum um góða
legu Laugaráss í
Biskupstungum, en
segja má að allir
þeir staðir sem
ferðalang hugnast að heimsækja séu í
fimmtán til þrjátíu
mínútna akstur frá
staðnum. Iðufell er
núþegarorðinnvin-
sæll ferðamanna-
staður. Skálholt er
á næstu jörð, en
Reykholt, Geysir,
Minni Borg, Laug-
arvatn og Þjórsár-
dalur í næsta ná-
grenni. Nákvæm-
lega eitt hundrað
kílómetrar eru frá
Reykjavík í Laugar-
ás. Og vanir menn
skjótast úr Húna-
vatns- og Eyjafjarð-
arsýslu stystu leið
yfir hálendið á eftir-
miðdegi. Alla tíð
hefur markaður sett
svip sinn á Iðufells-
mótin auk ógleym-
anlegra dansleikja,
þar sem gestir hafa
séð um tónlistina í
mesta bróðerni.
Á sumri komandi fer fram fimmta
harmonikumótið á Iðufelli í Laugarási. Af
því tilefni ætla staðarhaldarar að gera sér
og mótsgestum dagamun og m.a. efna til
verðlaunasamkeppni um Iðufellslagið,
þ.e. lag sem tileinkað verður staðnum og
fólkinu sem hann heimsækir. Fyrstu verð-
laun fyrir lag og texta verða fimmtíu þús-
und kr. auk einnar helgar á hótelinu, þeg-
ar höfundum hentar. Önnur og þriðju
verðlaun verða árskort að tjaldsvæðinu.
Þá er í tilefni afmælisins jafnvel von á er-
lendum harmonikuleikara. Harmoniku-
mótið á Iðufelli verður auglýst nánar í
sumareintaki Harmonikublaðsins.
Aðgangseyri hefur alla tíð verið stillt í
hóf á Iðufelli og í sumar mun kosta kr.
2500,- inn á svæðið fyrir allan tímann.
Mótsgestir greiða aðeins þetta eina gjald
fyrir alla helgina. Ekki þarf að greiða
aukalega inn á dansleiki eða tónleika.
Það er von mótshaldara að sem flestir
eigi þess kost að komast á fimmta
harmonikumótið á Iðufelli um verslunar-
mannahelgina 2003 og dvelja þar í vina-
hópi við söng og dans. F.H.
Óli Th. leikur fyrir aðdáendur.
IT—
Gistisvæðið að Iðufelli.