Harmonikublaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 3

Harmonikublaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 3
HARMONIKUBLAÐIÐ RITSTfÓRAPISTILL Frá rltstjóra ISSN 1670-200X Ábyrgðarmaður : Jóhannes Jónsson Barrlundi 2 600 Akureyri Sími 462 6432, 868 3774 Netfang: johild@simnet.is Ritvinnsla: Hildur Gunnarsdóttir Prentvinnsla: Alprent Netfang: alprent@alprent.is Meðal efnis • Fréttir frá HFÞ • Smávegis um Karl Jularbo • Kveðja úr Skagafirði • Lag blaðsins Aðalsteinn ísfjörð • Tónleikar Tatu • Lítil saga • Árshátíð FHUE • Bréf frá Hrafnistu Auglýsingaverð: Baksíða 1/lsíða kr. 12.000 ii l/2síða kr. 6.000 Innsíður 1/1 síð kr. 11.000 ii l/2síða kr. 5.500 1 /4síða kr. 3.500 ii l/8síða kr. 2.500 smáauglýsing kr. 1.500 Ágætu lesendur! Nú líður senn að hinum árlegu úti- leguhátíðum harmonikufélaganna víða um land, sem margir harmonikuunn- endur bíða með óþreyju eftir allan vetur- inn. Þessar hátíðir hafa dregið til sín sí- fellt fleira fólk og bætist jafnt og þétt í þann hóp, sem ekki tengist harmon- ikunni sérstakleg en hefur ánægju af nærveru við hljóðfærið og þá sem því tengjast. Þessi þróun er mjög ánægjuleg og til þess fallin að festa vinsældir harmonikunnar í sessi, ekki síst ef vel tekst til með framkvæmd hátíðanna. Eitt er þó alltaf umhugsunarefni og það er hvað lítið af ungu fólki sækir þessar samkomur og kemur þar margt til. Bítlatíminn og árin þar á eftir voru ekki hliðholl harmonikunni og þá mót- uðust margir af annarri tónlist en harm- onikan bauð, uppá en sem betur fer er þróunin hvað varðar tónlistarval að breytast smátt og smátt og spannar það nú breiðara svið en áður og ætti því að falla fleirum í geð. Okkur vantar fólkið sem mótaðist á þessum svokölluðu Bítlaárum inn í fé- lagsskapinn okkar, þ.e fólk undir miðjum aldri. Ánægjulegt er hvað margt enn yngra fólk er að hefja harmonikuna til vegs og virðingar. Þrátt fyrir að margir ungir krakkar séu að læra á harmoniku í dag vantar að þau sjáist meira á harm- onikuhátíðunum. Skora ég á fullorðna fólkið sem sækir samkomurnar að taka með sér unga af- komendur sína svo þau geti kynnst þess- um skemmtilega félagsskap. Með besti kveðju til ykkar allra. J.J. Forsíðumyndir: Efri mynd f.v.: Þorbjörg, dóttir Guðna Friðrikssonar, Sólveig Björgvinsdóttir, eiginkona Karls jónatanssonar, Karl og Guðni. Neðri mynd: Heiðursfélagar FHUE, f.v. Guðni Friðriksson og Karl jónatansson. Breski harmonikuleikarinn Harry Hussey kemur til íslands 12. júní nk. • Fyigist með auglýsingum Ólafur Th. Ólafsson mf' Dansleikur verður í Básum Ölfusi 14. júní. Félag (lannonifutuniieiida á Selfossi og nágrenni

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.