Harmonikublaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 4

Harmonikublaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 4
Fróðleikur HARMONIKUBLAÐIÐ Fréttir frá Harmonikufélagi Þingeyinga aat harmonikuspilari, ítalinn Salvatore De Gesualdo og hélt tónleika á Húsavík og að hans ósk var farin skemmtiferð til Grímseyjar með Sigþóri Þ.H. 100. Skip- stjóri var Ingvar Hólmgeirsson og var þetta blaut ferð yst sem innst. H.F.Þ. hefur farið í tvær utanlandsferð- ir, í fyrri ferðinni voru með okkur félagar Harmonikuunnenda Reykjavík og Harm- onikuunnenda Vesturlands. Félagar hafa Fimmtudaginn 4. maí 1978 kom saman nokkur hópur manna á Húsavík, í þeim tilgangi að stofna félag áhugamanna um harmonikuleik. Aðalsteinn ísfjörð og Stefán Kjartansson voru þá meðlimir í F.H.U.R. sem stofnað var 1977. Þetta félag á Húsavík hlaut nafnið Fé- lag áhugamanna um harmonikuleik í Suður-Þing. Stofnendur voru 42. Fyrsti formaður var kosinn Stefán Kjartansson, aðrir í stjórn voru Aðalsteinn ísfjörð og Stefán Þórisson, Hanna Guðnadóttir og )ón Sigurjónsson. Stuðst var við lög Félags harmonikuunnenda Reykjavík, lft- illega breytt. Nafni félagsins var breytt 1982 í Harmonikufélag Suður-Þing. og aftur breytt 1984 í Harmonikufélag Þing- eyinga. H.F.Þ. Hjá okkur er formaður kosinn í eitt ár í einu, en hann má kjósa annað ár gefi hann kost á sér. Eins og áður segir var Stefán Kjartansson fyrsti formaður frá 1978-1980, Ingvar Hólmgeirsson 1980- 1982, Sigurður Friðriksson 1982-1984, Stefán Þórisson 1984-1986, Aðalsteinn ísfjörð 1986-1988, Stefán Leifsson 1988- 1990, Sigurður Friðriksson 1990-1992, Stefán Þórisson 1992-1994, Stefán Leifs- son 1994-1996, Ólafur Olgeirsson 1996- 1997, Sigurður Friðriksson 1997-1999, Þórgrímur Björnsson 1999-2001 og Aðal- steinn ísfjörð 2001-2003. Árið 1979 kom til okkar heimsfrægur Núverandi stjórn. Frá vinstri: Sigurður Ólafsson ritari, |ón Sigurjónsson meðstj., Aðalsteinn ísfjörð formaður, Kjartan Sigurðsson meðstj. og Dagur jóhannesson, gjaldkeri. Fyrsta stjórn H.F.Þ. 1978. Aftari röð: Hanna Guðnadóttir ritari og Stefán Þórisson meðstjórn- andi. Neðri röð frá vinstri: Aðalsteinn ísfjörð gjaldkeri, Stefán Kjartansson formaður og Jón Sigurjónsson meðstjórnandi. einn eða fleiri farið og spilað á langlegu- deild Heilsugæslustofnunar Þingeyinga og Dvalarheimili aldraðra á Húsavfk, einn sunnudag í mánuði allt árið. Helgarferðir höfum við farið á hverju ári utan lands- mótsára. Fyrsta ferðin var farin í heim- sókn til Harmonikufélags Héraðsbúa á Egilsstöðum og spilað með þeim á dans- leik og var farið þangað í mörg ár. Eyfirð- ingar hafa verið heimsóttir og spilað á dansleikjum með þeim. Harmonikuunn- endur Vesturlands sóttum við heim, einnig Nikkólínu og Harmonikufélag Rangæinga og Harmonikufélag Horna- fjarðar, ennfremur Harmonikufélag Vest- fjarða og Félag harmonikuunnenda Norðfirði (F.H.U.N.) og núna síðast í apríl fór 40 manna hópur austur á Breið- dal. Gist var í Staðarborg og haldinn dansleik á laugardagskveldi. Frá okkur hefur farið hópur manna á öll landsmót, bæði spilarar og áhugafólk. Þá hefur félagið fengið heimsóknir frá öðrum félögum bæði innlendum og er- lendum og í sumar kemur átta manna sveit frá Leksvik í Noregi og Buch Lake í Kanada og spila þeir á hinni árlegu úti- leguhátíð H.F.Þ. og F.H.U.E. á Breiðamýri 25.-27. júlí næstkomandi. H.F.Þ. hefur gefið kennsluharmonikur í

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.