Harmonikublaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 13
HARMONIKUBLAÐIÐ
Skemmtun
Árshátíð F.H.U.E. 2003
Árshátíð Félags harmonikuunnenda við
Eyjafjörð var haldin laugardaginn
15.mars s.l. í húsi Karlakórs Akureyrar-
Geysis. jóhann Sigurðsson formaður
félagsins setti samkomuna og bauð
gesti velkomna. Ýmislegt var til
skemmtunar eins og vera ber, en hæst
bar að tveir aldnir félagar voru
heiðraðir, þeir Guðni Friðriksson og
Karl jónatansson .
Guðni Friðriksson er fæddur 31.3.1920
í Sveinungsvík í Þistilfirði.Þegar hann var
15 ára eignaðist hann sína fyrstu harm-
oniku.hún var tvöföld og kostaði 5 kr.
Veturinn 1938-39 er Guðni í Héraðsskól-
anum að Laugum í Reykjadal, þar fær
hann tilsögn í nótnalestri hjá Páli H.
jónssyni. Sumarið 1940 hittast þeir
Guðni og Karl jónatansson í vegavinnu á
Melrakkasléttu. Um haustið heldurGuðni
til Eyjafjarðar með Karli, sem þá var flutt-
ur að Ytra-Krossanesi með fjölskyldu
sinni. Sumarið 1941 leika þeir saman í
hljómsveit á Hótel Siglunesi. Samvinna
þeirra stendur allt þar til Kari flytur til
Reykjavíkur 1943. Höfðu þeir spilað hér
vítt um sveitir m.a. fyrir breska og banda-
ríska herinn. Þann 4.maí 1947 spilar
Guðni á tónleikum með nýkrýndum
Norðurlandameistara í harmonikuleik
Lýði Sigtryggssyni. Þá hefur Guðni feng-
ist nokkuð við kennslu, m.a. var hann við
kennslu hjá Karli Jónatanssyni í Reykjavík
og enn er Guðni að leiðbeina þeim sem
til hans leita. Þegart.d. Félag harmoniku-
unnenda í Reykjavík gaf út sína fyrstu
hljómplötu léku Guðni og Karl 2 lög
saman á þeirri útgáfu. Á plötuumslaginu
segir að Guðni hafi nú verið ókrýndur
meistari harmonikunnar á Akureyri og
víðar um áratuga skeið. Guðni var einn af
stofnendum Félags harmonikuunnenda
við Eyjafjörð og sat í fyrstu stjórn þess.
Prófdómari í harmonikuleik var Guðni við
Tónlistarskóla Akureyrar um nokkurt
skeið, þá lék hann í Lúðrasveit Akureyrar
og einnig í Harmonikukvintettinum
landsfræga undir stjórn Atla Guðlaugs-
sonar.
Eiginkona Guðna var Anna Bergþórs-
Minning
Jóhanncs
Garðar
Jóhannesson
Fáein minningarorð.
Garðar eins og hann var jafnan nefn-
dur fæddist 8. júlí 1925 og hann lést 5.
maí sl. eftir stutt en erfið veikindi.
Garðar var sonur hins þekkta har-
monikuleikara og viðgerðarmanns
jóhannesar G. jóhannessonar.
Harmonikuna gerðu þeir feðgar að
æfilöngum félaga og voru báðir land-
skunnir fyrir vandaðan leik á
dansleikjum og í útvarpi. Því miður var
fátt eitt hljóðritað með leik þeirra, ef
frá er talinn samleikur feðganna með
hljómsveit jónatans Ólafssonar, sem
enn má heyra á Rás 1.
Garðar lék með hljómsveitum
[0
Þessir tveir skemmtu gestum á árshátíðinni. F.v.: Ingvi Vaclav og Pétur Bergmann Árnason.
dóttir en hún lést árið 1997. Þau eignuð-
ust 4 dætur auk þess sem Guðni ól upp
stjúpsoninn Bergþór sem nú er látinn.
Karl jónatansson er fæddur 24.febrúar
1924 á Blikalóni á Melrakkasléttu, hinu
harðbýla norð-austurhorni landsins. Þar
bjó Karl til 10 ára aldurs en flutti þá að
Krossanesi við Eyjafjörð. Þegar Karl var
11 ára lánaði afi hans honum fyrir fyrstu
almennilegu harmonikunni. Sá stutti
hafði fram að þessu notast við litla harm-
oniku sem hann hafði keypt tveim árum
fyrr fyrir tvær kindur. Lánið endurgreiddi
hann með launum sem hann þáði fyrir
spilamennsku á mannamótum.
Karl lærði að mestu að spila á eigin
rammleik en hlaut þó nokkra leiðsögn
hjá föður sínum Jónatan Hallgrímssyni
og Þóri eiginmanni móðursystur sinnar.
Karl var 19 ára er hann fluttist til
Reykjavíkur, þar tók hann að sér ýmis
störf tengd hernáminu ásamt því að spila
á harmoniku sem hann hefur gert alla tíð
síðan auk þess að kenna á hljóðfærið.
Árið 1948 giftist hann Sólveigu Björg-
vinsdóttur og eiga þau tvo syni. J.S.
FHUR um árabil og á plötur félagsins
ma. lög föður síns. Meðfram spila-
mennskunni vann hann fullan vin-
nudag, um árabil hjá Ofnasmiðjunni
og síðar í Pólum.
Góður félagi er genginn og hans er
saknað af þeim sem harmonikunni
unna. Garðar jóhannesson var jarðset-
tur frá Bústaðakirkju þann 15. maí sl.
Við athöfnina lék Reynir lónasson á
harmoniku lög eftir lóhannes, föður
Garðars, „Kveðju og Endurminningu".
H)