Harmonikublaðið - 01.06.2003, Side 11
HARMONIKUBLAÐIÐ
Fróðleikur
Lítil saga sex ára drengs
Rafn lónsson.
Ég var sem oftar að leika mér vestan við
gamla bæinn heima. Þaðan sást vei út á
veginn er lá og liggur norður í land.
Þeir virtust ekki fara með neinum
hraða, bílarnir í þá daga. Samt virtist einn
ætla fram úr öðrum og flautaði. Þessir
tónar voru ógleymanlegir, margþættir,
pössuðu vel saman. Ég hlustaði góða
stund, en svo þögnuðu þessir tónar. Mér
var sagt seinna að bíllinn hefði verið með
harmonikuflautu. Ég vissi auðvitað ekkert
um það. Það kom oft fyrir að ég sat vest-
an við skemmuna á góðviðrisdögum og
hlustaði á harmonikuflautið í bílunum er
fóru þarna um. Þessi leið er um þrír kfló-
metrar.
Þegar ég var níu eða tíu ára keypti
frændi minn hnappaharmoniku. Hljóðið í
henni var mjög líkt og í bílflautunum. Þá
skildi ég af hverju bílarnir voru með
harmonikuflautur. Ég fór auðvitað að
fikta í hljóðfærinu
þó ég réði ekkert við
það.
Þannig var að í
allmörg sumur kom
drengur úr Reykjavík
yfir sumartímann.
Svo kom að því að
hann fór að spila á
munnhörpu og gaf
mér eina slíka.
Hann kenndi mér
einhver lög og við
reyndum að spila
saman. Hvernig það
gekkman ég ekki, en
þessi munnharpa endaði á fórnarstalli
forvitni minnar. Ég þurfti að sjálfsögðu
að rífa hana í sundur og gá að því hvaðan
þessir tónar kæmu. Hún fór jú saman aft-
ur, en heilsan varð aldrei góð hjá henni
eftir þetta.
Þannig fékk ég fyrst áhuga á harmon-
ikunni. En ég kann ekkert að spila sjálfur,
hlusta bara á hina.
Þannig var þessi barnalega saga, sem
endist enn f dag. Rafn Jónsson
A ferð og lugij
með F.H.U.R kom út fyrir fimm árum
og hefur að geyma leik hljómsveitar félagsins
undir stjórn Þorvaldar Björnssonar.
Meðal laga á diskinum __________________
F.H.U.R. marsinn,
Hreðavatnsvaisinn
og Tangóasyrpa.
Ómissandi diskur í safnið.
c/^ferðqqfíugi
Mll) HAHMONIkUUKNENOUM
Verð kr. 1.500,-
Pöntunarsímar:
568 6422 / 894 2322
IWníI&I
Jðufeil 2003
Harmonikuhátíðin á iðufelli í Laugarási verður um verslunarmannahelgina 1.- 4. ágúst
Tónleikar á laugardegi. ungir og eldri harmonikuleikarar leika listir sínar. Markaður laugardag og sunnudag. Dansleikir föstudag, laugardag og sunnudag. Aðgangseyrir kr. 2.500.- fyrir allan tímann. Innifalið: Cjald fyrir tjaldvagn eða annað i/iðlegutæki, dansleikir og tónleikar. Iðufellslagið kynnt og höfundurinn verðlaunaður. iðufellslagið Þátttakendur skulu senda nótur (og texta) að laginu fyrir 30. júní í umslagi merkt: Hótel Iðufell „Lagakeppni" - Laugarási - 801 Selfoss. Ekki er skilyrði að texti sé með laginu. Nóturnar skulu merktar með dulnefni höfundar, en í öðru lokuðu umslagi skal hið rétta nafn vera. Dómnefnd skipuð af mótshöldurum velur fimm bestu lögin til flutnings á laugardagskvöldinu, þegar gestir greiða atkvæði um besta lagið. Að því loknu verður höfundurinn verðlaunaður. Fyrstu verðlaun verða kr. 50.000.- auk einnar helgar á hótelinu, þegar höfundum hentar. Önnur og þriðju verðlaun verða árskort að tjaldstaeðinu á iðufellí.
Hótel iðufell Félag harmonikuunnenaa / Reykjavík
EDltf