Harmonikublaðið - 01.06.2004, Síða 12
Fróðleikur
HARMONIKUBLAÐIÐ
Landsmót ungra harmonikuleikara 2004
Kennararnir F.v. Stefán R. Gíslason, Anna )ónsdóttir,Sigurður Daníels-
son, Hlín Torfadóttir, Vadim Fjodorov, Jakub Kolosowski og Yuri
Fjodorov. Á myndina vantar Lárus Sighvatsson og Rögnvald Valbergs-
son.
Fyrsta landsmót ungra harm-
onikuleikara er staðreynd.
Mótið var haldið í Skagafirði
22. maí síðastliðinn. Nemend-
ur frá fjórum Tónlistarskólum
mættu til leiks, alls 25 talsins.
Þátttakan var minni en vonast
hafði verið eftir þegar farið var
af stað með hugmyndina um
svona mót, en mjór er mikils
vísir.Mótið tókst í alla staði vel
og var mótshöldurum til sóma.
Fyrsta landsmót ungra harmonikuleik-
ara var haldið í Skagafirði laugardaginn
22. maí, nánar til tekið í félagsheimilinu
Árgarði. Upp úr hádegi tók fóik að drífa
að harmonikuleikara, kennara og áhuga-
sama mótsgesti. Dagskráin hófst svo kl.
15.00 með því að formaður Sambands ís-
lenskra Harmonikuunnenda setti mótið,
bauð hann gesti velkomna og minntist
lítillega á aðdraganda mótsins, því næst
tók kynnir mótsins, Kristín Snorradóttir á
Sauðárkróki, við og kynnti þá ungu harm-
onikuleikara, sem fram komu á tónleik-
unum, þeirvoru áaldrinum 8 til 19 ára og
léku ýmist einir sér eða fleiri saman,
stundum ásamt kennurum sínum. Fyrst
kom fram Harmonikuhljómsveit Tónlist-
arskóla Skagafjarðar, hana skipuðu: Finn-
ur Sigurðsson 16 ára, Guðmundur Árni
Sigurbergsson 15 ára, Hjálmar Björn
Guðmundsson 14 ára, Sigurður Ingi Ein-
arsson lóáraogSveinnSmárason lóára,
þeir léku lögin: Greensleeves og Kalinka.
Næstur kom jón Þorsteinn Reynisson 16
ára frá Tónlistar-
skóla Skagafjarð-
ar og lék El
Relicario og
Tockötu í d moll.
Hans Friðrik Guð-
mundsson 12 ára
Tónlistarskóla
Dalvíkur lék lagið
Æfing og Friðrik
Hreinn Sigurðs-
son 8 ára sama
skóla lék pólkst
þjóðlag frá Fjalla-
landi. Þá var kom-
ið að Rakel Fríðu
Thoroddsen 12
ára Tónlistarskóla
Raufarhafnar sem lék lagið Signi sól. Þá
kom hljómsveit yngri nemenda Tónlistar-
skóla Akraness, hana skipuðu Dagný
Björk Egilsdóttir 12 ára, lóhanna Gísla-
dóttir 15 ára og Steinunn Eik Egilsdóttir
16 ára þær léku ásamt kennara sínum
Vadim Fjodorov lögin Kindly Beatle og
Y'avait du jass, síðan lék Dagný Björk ein
lögin :Ciel d'Anjou og Two Guitars næst á
svið mætti hljómsveit eldri nemenda
Tónlistarskóla Akraness hana skipuðu:
Ástrós Una jóhannesdóttir 19 ára, Maren
Lind Másdóttir 17 ára Sólberg Bjarki
Valdimarsson 19 ára og Rut Berg Guð-
mundsdóttir 19 ára, þau léku lögin
Libertango og Leikfangafíll, með þeim
lék kennari þeirra Yuri Fjodorov, því næst
lék Maren Lind Samba tonic og Rut Berg
Fiick Flack, hljómsveitin lék síðan lagið
Fransisk visit í Bromölla. Þá var komið að
lögunum.O Sole Mio og Waldkonzert þar
sem allir harmonikuleikararnir léku sam-
an. Þessir tónleikar, sem um eitt hundrað
manns sóttu, tókust mjög vel og sýndu
þeir áheyrendum hvers við megum vænta
í framtíðinni af þessum glæsilegu ung-
mennum. Dagskrá þessari lauk svo með
því að ungmenni frá Hafralækjarskóla í
Aðaldal skemmtu gestum með leik á
Marimbahljóðfæri sem er ættað frá Afr-
íku, var leik þeirra vel tekið af mótsgest-
um.
Eftir tónleikana bauð Félag harmon-
ikuunnenda Skagafirði öllum þátttakend-
um , kennurum og fleirum til kvöldverðar
að Bakkaflöt, sem er hótel og veitingahús
í næsta nágrenni við Árgarð. Eftir kvöld-
verðinn var öllum þátttakendum færður
fáni Félags harmonikuunnenda Skaga-
firði og afhentur peningur sem viður-
kenning fyrir þátt sinn í tónleikunum. Á
peninginn var letrað „Landsmót ungra
Fallegur hópur harmonikuleikara.
Skagfirðingar í aftari röð f.v )ón Þorsteinn Reynisson, Sigurður Ingi
Einarsson, Finnur Sigurðsson, Sveinn Smárason, og Guðmundur Árni
Sigurbergsson. Fremri röð f.v. Hugrún Hauksdóttir, Hjálmar Björn
Guðmundsson og Sunna Bjarnadóttir.