Harmonikublaðið - 01.06.2004, Page 13
HARMONIKUBLAÐIÐ
Fróðleikur/Fréttir
Eldri sveit Tónlistarskóla Akraness. F.v. Rut Berg, Ástrós Una, Sólberg Bjarki og Maren Lind.
harmonikuleikara Skagafirði 22.maí 2004
S.Í.H.U."
Um kvöldið voru síðan tónleikar, sem
hófust kl.20.30 þar sem fyrstar léku sam-
an, Mekkín Árnadóttir og Sigurlaug Við-
arsdóttir frá Tónlistarskóla Skagafjarðar
ásamt kennara sínum Stefáni R. Gísla-
syni, lagið Fransysk visit i Bromölla. Þá
komu bræðurnir Stefán og Jón Gíslasynir
sem léku ásamt Harmoniku-Bítlunum
lögin Dúr eða moll, skottís eftir Karl Jón-
atansson, einnig lögin Two Guitars og
Tico-tico. Þá var komið að hinum stór-
efnilega Jóni Þorsteini Reynissyni með
lagið Olive Blossoms. Fjórða atriðið á
kvöldtónleikunum voru fimm ungir harm-
onikuleikarar frá Tónlistarskóla Skaga-
fjarðar sem léku lagið 0 Sole Mio. Þá var
komið að þeim Fjodorov bræðrum, Yuri
og Vadim,. Á prógrammi þeirra voru lög-
in: Rag Musett, LTnosente, Cha cha cha
passion, Piccalo Rag, Adios nonino, Bou-
levardes de Paris, Kalina og Russian
Cowboy, leikur þeirra var í einu orði sagt
frábær og voru tónleikagestir, sem töldu
á annað hundrað, ekki tilbúnir að sleppa
þeim við svo búið.enduðu þeir leik sinn á
því að leika Svörtu augun sem var rúsín-
an í pylsuendanum. Tónleikunum lauk
svo með Marimbahópnum sem kom fram
fyrr um daginn. Þá var smá hlé áður en
Harmoniku-Bítlarnir með Jón St. Gísla-
son í farabroddi, tóku til við að leika dans
og dægurlög voru þau flest ættuð frá
Suður-Ameríku, fengu ýmsir sér léttan
snúning við töfrandi tóna þeirra félaga
enda ekki annað hægt. Dagskránni lauk
síðan laust fyrir miðnætti eftir vel heppn-
aðan dag.
Móttökur Skagfirðinga voru til fyrir-
myndar á þessu móti, því strax frá því að
fyrstu þátttakendur komu í hús og þar til
þeir síðustu kvöddu voru veitingar á
borðum, fyrst í sal félagsheimilisins og
síðan í eldhúsinu, fyrir þáttakendur,
kennara og aðra þá sem að mótinu komu.
Samband íslenskra Harmonikuunn-
enda þakkar, stjórn Félags harmoniku-
unnenda Skagafirði og mökum þeirra svo
og öðrum félagsmönnum og öllum þeim
sem komu að þessu landsmóti ungra
harmonikuleikara, fyrir þá miklu vinnu
sem þeir lögðu á sig svo mótið mætti
verða að veruleika. Það er von mín að
það skref, sem stigið var með þessu móti
hvetji til betri þátttöku í framtíðinni, ung-
um harmonikuleikurum og öðrum þeim
sem bera hag harmonikunnar fyrir brjósti
til yndis og ánægju. J.J,
Friðrik Hreinn Sigurðsson.
Marimbahópurinn úr Aðaldai.
1 mm
'XæWfspB- Y
Beðið eftir að fara á svið. F.v. Sunna Bjarnadóttir, Hugrún Hauksdótt-
ir úr Skagafirði og Júlíus Friðriksson frá Dalvík.
Yngri sveit Tónlistarskóla Akraness. F.v. Dagný Björk, kennarinn
Vadim, Steinunn Eik, og Jóhanna.
EfS'