Harmonikublaðið - 01.04.2005, Blaðsíða 3
HARMONIKUBLAÐIÐ
RITSTJÓRAPISTILL
Ritstjórapistill
ISSN 1670-200X
Ábyrgðarmaður :
Jóhannes Jónsson
Barrlundi 2 600 Akureyri
Sími 462 6432, 868 3774
Netfang: johild@simnet.is
Ritvinnsla:
Hildur Gunnarsdóttir
Prentvinnsla:
Ásprent StíU ehf.
Netfang: gudjon@asprentstill.is
Meðal efnis
• Af Oddnýju Björgvinsdóttur
• Heiðursgesturinn Sören Brix
• Lagahöfundurinn Ingvi Vaclav
• Harmonikufélagið mitt
• Jón Hrólfsson
• Toralf Tollefsen
Auglýsingaverð:
Baksíða 1/1 síða kr. 12.000
]/2 síða kr. 6.000
Innsíður 1/1 síða kr. 1 1.000
—1/2 síða kr. 5.500
—1/4 síða kr. 3.500
—1/8 síða kr. 2.500
Smáauglýsing kr. 1.500
Forsíðumyndir:
Arnar Ingi Tryggvason 14 á ra,
Akureyri
Kristfn Hálfdánardóttir, lOára,
frá Bolungarvík
Guðmundur Andri Guttormsson, 14 ára,
frá Egilsstöðum
Guðný Valborg Guðmundsdóttir 15 ára,
Kroppi, Eyjafjarðarsveit
Fjóla Oddgeirsdóttir, 14 ára,
Reykjanesbæ.
Kristján Ingi Arnarsson 16 ára,
Stórholti, Dalasýslu
Ágæti lesandi!
Nú þegar sumarið heilsar og sólin
lyftir sér hærra og hærra upp á himin-
hvolfið, lifnar yfir mörgum hali og
sprund, ekki það að veturinn sem er að
kveðja hafi verið svo slæmur, heldur
hitt að þetta er sá árstími þegar gróð-
urinn lifnar og söngur farfuglanna fyllir
loftið. Þá reikar hugurinn til liðinna ára
og þá ekki síst til þeirra, mörgu félaga,
sem ekki eru lengur á meðal okkar,
þeirra sem í áranna rás hafa glatt okkur
með nærveru sinni á góðum stundum.
Tíminn líður hratt og senn kemur að
Landsmótinu í Neskaupstað. Harmon-
ikufélögin búa sig, hvert sem betur get-
ur, undir að koma fram á Landsmótinu
með afrakstur æfinga vetrarins, mis-
jafnlega fjölmennir hópar eins og
gengur, þó er aðalatriðið að vera með
það er það sem skiptir máli, ekki fjöldi
þeirra einstaklinga sem fram koma.
Ekkert félag ætti að láta það aftra sér
frá að taka þátt, þó ekki séu á þeirra
vegum svo og svo margir spilandi ein-
staklingar. Komið hefur fyrir að einn
maður hefur komið fram fyrir félagið
sitt, má sem dæmi nefna Gísla
Brynjólfsson.
Samband íslenskra Harmonikuunn-
enda er kjölfesta þeirra félaga sem að
því standa. Sambandið gefur meðal
annars út Harmonikublaðið og sér um
að landsmót eru haldin á þriggja ára
fresti. Félög víða um land hafa tekið að
sér framkvæmd landsmóta og hafa þau
tekist vel, sambandið hefur gefið þess-
um félögum næsta óskorað vald til að
fást við þá framkvæmd, þó vel hafi ver-
ið fylgst með undirbúningnum og sitt-
hvað smálegt til málanna lagt. Að
mínu mati er það mjög æskilegt að þau
félög sem taka að sér þetta verkefni
hverju sinni hafi sem frjálsastar hendur
við framkvæmdina, enda góð reynsla af
því. Félögin eru hornsteinn sambands-
ins, það er því mjög mikilvægt að
menn skynji að starfið í félögunum er
það sem mestu máli skiptir og ef það
dettur niður og félögin halda ekki vöku
sinni breytir Sambandið þar engu um.
Ég vil hvetja ykkur sem í harmoniku-
félögum starfið að halda merki harm-
onikunnar á lofti og heiðra með því
minningu þeirra sem á undan eru
gengnir.
Með harmoniku- og sumarkveðju, J.J.