Harmonikublaðið - 01.04.2005, Side 7
HARMONIKUBLAÐIÐ
Lagahöfundur
Lagahöfundur blaðsins
Ingvi Vaclav Alfreðsson
Ingvi Vaclav Alfreðsson er höf-
undur tveggja laga sem birtast
í blaðinu að þessu sinni.
Vaclav, eins og hann er oftast
nefndur, er kennari við
Tónlistarskólann á Akureyri og
Tónlistarskóla Eyjafjarðar.
Hann stjórnar einnig hljóm-
sveit félags Harmonikuunn-
enda við Eyjafjörð sem mæta
mun á Landsmótið í Neskaup-
stað í sumar. bess má geta að
Harmonikublaðið tók viðtal við
Vaclav í öðru tölublaði ársins
2002.
Gamanmál
Maöur nokkur vann á pósthúsi. Starf
hans var að flokka póst, sem hafði
ógreinilega adressu. Dag nokkurn kom á
borð hans bréf, skrifað með skjálfandi
hendi til Guðs almáttugs. Hann hugs-
aði, það er best að ég opni þetta bréf og
skoði hvað það á að þýða.
Hann opnaði því bréfið og las eftir-
farandi.
Elsku Guð, ég er 85 ára gömul ekkja á
litlu elliheimili. í gær stal einhver budd-
unni minni með 1000 krónum, sem var
aleiga mín. Næsta sunnudag hafði ég
boðið tveimur vinum í mat og nú á ég
enga peninga til að kaupa mat fyrir og
þar sem ég á enga fjölskyldu til að
hjálpa mér bið ég þig ásjár.
Póstmaðurinn varð djúpt snortinn og
ákvað að sýna samstarfsmönnunum
bréfið og efna til samskota handa
gömlu konunni. Söfnuðust 900 krónur
og voru þær sendar í umslagi til gömlu
konunnar. Daginn eftir biðu allir í of-
væni eftir þakkarbréfi frá gömlu kon-
unni. Það kom og það var lesið upphátt
fyrir starfsmennina. í því stóð:
Elsku Guð, hvernig get ég þakkað þér
nógsamlega fyrir það sem þú gerðir fyr-
ir mig. Vegna örlætis þíns gat ég boðið
vinum mínum dýrðlega kvöldmáltíð og
ég sagði vinum mínum frá örlæti þínu.
En okkar á milli komu ekki nema 900
krónur í umslaginu og ég er ekki í vafa
um að þetta þjófapakk hjá póstinum
hefur stolið 100 krónunum sem á vantar.
Ég spyr Vaclav:
- Hefur þú lengi
fengist við að
semja fyrir harm-
oniku og hefur þú
samið fyrir önnur
hljóðfæri?
„Nei, en ég
byrjaði á því
vegna þess að
mér fannst vanta
létt lög í anda
ekta harmoniku-
tónlistar fyrir
yngri nemend-
urna. Ég hef ein-
ungis samið fyrir
harmoniku."
- Eru margirað
nema á harmon-
iku hjá þér í vet-
ur?
„Það munu
vera um 24 nemendur."
- Hvernig er kynjaskiptingunni
háttað?
„Það er mjög svipaður fjöldi af báðum
kynjum."
- Heldur þú að þessir nemendur
munu seinna meir spila fyrir dansi eins
og þeir eldri hafa verið að gera?
„Eins og kom fram í svari við fyrstu
spurningunni í sambandi við harmoniku-
efnið sem áhersla er lögð á og í samræmi
við óskir nemenda og foreldra þeirra er
vonast til að nemendurnir geti í framtíð-
inni leikið fyrir dansi og undir söng."
Blaðið þakkar Vaclav fyrir lögin sem
hann lét blaðinu í té. J.J.
Harmonika óskast!
Óska eftir góðri „Borsini Lars Ek Nostalgic"
píanóharmoniku!
Þið munið eftir þeim ekki satt, skrautlegar hvítar
og perluskreyttar, (ein skipting hægra megin og engin
vinstra megin), eins og í gamla daga.
Lars Ek hinn sænski stóð fyrir hönnun á þeim fyrir
u.þ.b. 15 árum.
Ef þið eigið eða vitið um eintak sem er til sölu,
endilega látið mig vita.
Kveðja,
Jakob Jakobsson
Símar 565-9818 og 693-6600 • Netfang: Jakob@heima.is
tm