Harmonikublaðið - 01.04.2005, Qupperneq 13
HARMOINIKUBLAÐIÐ
Fróðleikur
Snemma beygist krókurinn. |ón og dóttirin Járnbrá Björg.
Ormarslóni að læra að lesa nótur og
stundaði það af og til í tvo til þrjá vetur.
Það gerði gæfumuninn því þá gat ég far-
ið að spila Frosini og Deiró eftir nótum."
- Hefur þú eitthvað átt við að semja?
„Nei, ég er mjög lélegur við það,
gleymi oftast jafnóðum ef mér dettur
eitthvað í hug f þá veru. Þó fór eitt lag eft-
ir mig, „Veiðimaðurinn" sem er marsúrki,
inn á plötuna „Samspil" sem ég lék inn á
með Aðalsteini fsfjörð á Húsavík 1984 og
Tónaútgáfan á Akureyri gaf út. Áður, árið
1981, hafði ég leikið inn á 12 laga plötu,
„Gleðihopp" fyrir sömu útgáfu. Á báðum
þessum plötum sáu sömu menn um und-
irleikinn, þeir Birgir Karlsson á gítar,
Finnur Finnsson á bassa og Steingrímur
Stefánsson á trommur. Við undirbúning
plötunnar „Samspil" létum við okkur ekki
muna um að þvælast sitt á hvað á milli
Kópaskers og Húsavíkur til æfinga. Þess-
Spilad á nikkuna hans Friðjóns að llluga-
stöðum í Fnjóskadal árið 1990.
ar plötur voru teknar
upp í Stúdíó Bimþó á
Akureyri."
- Hvaða tónlist
hefur þú mest gaman
af að leika og áttu
þér einhverjar fyrir-
myndir?
„Ég spila mest
Skandinavíska tónlist
eftir ýmsa höfunda,
þó mest Ragnar
Sundquist og lularbo,
aðallega fyrir dansi,
einnig leik ég Frosini
og Deiró ásamt fleir-
um, þar á meðal ís-
lensku höfundana
Ágúst Pétursson og
ióhann í Ormarslóni svo einhverir séu
nefndir. Ég spila minna út á við nú en ég
gerði áður fyrr."
- Ertu ekki til með að taka eitt lag
eftir Ragnar Sundquist?
„Ég get reynt það."
Brátt heyrðust þíðir tónar lagsins
„Strandidyll" í öruggum flutningi viðmæl-
andans.
- Hver finnst þér þróunin vera í
harmonikumálum á íslandi í dag?
„Mér finnst að ekki komi fram nógu
mikið af ungu fólki en samt er það að
breytast til batnaðar, tii dæmis vegna
góðrar frammistöðu kennara eins og
Messíönu Marzellíusdóttur og Fanneyjar
Karisdóttur, svo dæmi séu tekin.
- Mannstu eftir einhverju spaugilegu
atviki frá dansleikjunum?
„Ég man að eitt sinn er við vorum að
spila fyrir dansi á Raufarhöfn kom karl-
maður og bað um að við spiluðum lagið
„Kátir dagar", sem er polki, þá kom líka
kona og bað um tangó en við spiluðum
vals, en karlinn dansaði polka eins og
hann hafði beðið um."
- Hvað hefur þú helst starfað auk
þess að leika á harmoniku?
„Á yngri árum vann ég við búskapinn
heima í Sveinungsvík og stundaði síldar-
vinnu á Raufarhöfn á sumrin. Seinna
vann ég almenna verkamannavinnu og
var líka ögn til sjós. Eftir að við fluttum á
Kópasker vann ég við rækjuvinnslu og í
slátuhúsinu þar. Á Akureyri vann ég
lengst á þvottahúsi Fjórðungssjúkrahúss-
ins og síðast á Plastiðjunni Bjargi."
Ég kveð þau hjón eftir að hafa þegið
góðgerðir og hlustað á nokkur vel valin
harmonikulög. ).J.
í stofunni að Ránargötu 28.
Helga og |ón.