Harmonikublaðið - 01.12.2005, Qupperneq 3
HARMONIKUBLAÐIÐ
RITSTJÓRAPISTILL
ISSN 1670-200X
Ábyrgðarmaður :
Jóhannes Jónsson
Barrlundi 2 600 Al^ureyri
Sími 462 6432, 868 3774
Netfang: johild@simnet.is
Ritvinnsla:
Hildur Gunnarsdóttir
Prentvinnsla:
Ásprent Stíll ehf.
Meðal efnis
• Frá Hermóði Alfreðssyni
• Nýr formaður SÍHU
• Landsmót ungra
harmonikuleikara
• Harmonikufélag Rangæinga
20 ára
• Lagahöfundur
• Lag blaðsins
• Landsmót í Neskaupsstað
• Af harmonikumálum
í Húnavatnssýslum
• Minningargreinar
• Frá Harmonikufélagi Reykjavíkur
• Vísur Svanhildar
• Harmonikusafnið á ísafirði
• Renzo á íslandi
Forsíðan:
Harmonikusafnarinn Ásgeir S.
Sigurðsson á ísafirði, formaður
Harmonikufélags Vestfjarða.
Ljósmynd: Halldór Sveinbjörnsson.
VERKSTÆÐITIL
ALHLIÐA VIÐGERÐA Á
HARMONIKUM AÐ
KAMBASELI 6, RVK
HAFIÐ SAMBAND VIÐ
GUÐNAÍSÍMA
567 0046
Kveðja frá ritstjóra
Ágæti lesandi !
Eins og áskrifendum Harmoniku-
blaðsins er kunnugt kom fyrsta tölublað
þess út á vordögum 2002. í maí 2001 lauk
blaðið „Harmonikan" göngu sinni, en
það hafði verið eina málgagn harmon-
ikuunnenda um ára'bil. Sú óvissa sem
skapaðist vegna þessa olli stjórn SÍHU
miklum heilabrotum og tilraunir til að fá
utanaðkomandi aðila til að sjá um blað
sem þjónað gæti harmonikuáhugafólki
mistókst. Niðurstaðan varð sú að undir-
ritaður, þá formaður SÍHU, tók að sér að
hrinda útgáfunni af stokkunum. Víst er
að það verk hefði ekki verið gerlegt án
dyggrar aðstoðar konu minnar Hildar
Gunnarsdóttur.
Útgáfa blaðsins þessi fjögur ár hefur
byggst meira á vilja en mætti þeirra sem
við hafa fengist, enda erfitt um vik þegar
ónóg þekking hlutaðeigandi á harmonik-
unni, sem hljóðfæri, svo og á málefnum
hennar fara saman. Þrátt fyrir þennan
annmarka vona ég að þið lesendur góðir
hafið haft eitthvert gagn og gaman að
efni blaðsins þessi fjögur ár. Það hefur
oft verið gefandi að fást við út-
gáfu blaðsins, ekki síst vegna góðra
kynna af fólki sem hefur tengst efni þess,
en líka oft þrúgandi vegna erfiðleika við
efnisöflun.
Á aðalfundi SÍHU sem haldinn var að
Árhúsum Hellu þann 24. sept. síðastlið-
inn lét ég af störfum sem formaður sam-
bandsins og við tók Jónas Þór Jóhanns-
son frá Harmoníkufélagi Héraðsbúa.
Harmonikublaðið er gefið út af Sam-
bandi íslenskra harmonikuunnenda og
hefur verið í höndum formanns þess,
það færist nú til nýja formannsins. Þetta
blað er því það síðasta sem við, konan
mín og ég, munum hafá veg og vanda að.
Þó ég sem formaður Landsambandsins
Hildur og Jóhannes.
hafi séð um útgáfu blaðsins þessi fjögur
ár er það samdóma álit mitt, nýja for-
mannsins og annarra stjórnarmanna
SÍHU að það sé æskilegt að formaðurinn
þurfi ekki að vinna að blaðinu samhliða
formennskunni, það er því ákvörðun nú-
verandi stjórnar að ég auglýsi hér með
eftir einhverjum þeim aðila sem myndi
vilja taka að sér útgáfu blaðsins frá og
með næsta árgangi. Sá sem gæti hugsað
sér að taka þetta starf að sér getur feng-
ið allar upplýsingar hjá undirrituðum.
Ágæti áskrifandi. Nú þegar við hverf-
um af þessum vettvangi viljum yið þakka
ykkur fyrir samstarfið á liðnum 4 árum,
eins viljum við þakka ykkur þá velvild
sem þið hafið sýnt okkur. Stjórnarmönn-
um sambandsins þakka ég skemmtilegt
samstarf á liðnum árum. Það er trú mín
og von að Harmonikublaðið eigi eftir að
koma út um ókomin ár og styrkja áfram
tengslin milli harmonikuunnenda.
Að lokum óskum við ykkur gleðilegra
jóla og farsældar á nýju harmonikuári.
JóhannesJónsson
Þakkir
Þökkum öllum þeim sem heiöruðu okkur á 25 ára afmæli
félagsins þann s-október sl. með heimsóknum,
gjöfum, blómum og heillaóskum.
LifiÓ heil. - Jólakveðjur.
Félag harmonikuunnenda við Eyjafjöró