Harmonikublaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 8

Harmonikublaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 8
Afmæli HARMONIKUBLAÐIÐ Hljómsveit félagsins: Svanur Bjarki, Sigrún, Grétar, Stefán Ármann og (óhann. Trommur Gunnar Jónsson, bassi Bragi Gunnarsson og gítar Tryggvi Sveinbjörnsson. Á aðalfundi félagsins 1989 lét Valdi- mar Auðunsson af formennsku vegna sjúkleika og var honum afhentur fyrsti fáni félagsins og ákveðið að gera hann að heiðursfélaga no. 1. Við formennsku tók þá Sigrún Bjarnadóttir. Harmonikufélag Rangæinga hefur stutt við bakið á ungum harmonikunem- endum og gefið Tónlistarskóla Rangæ- inga 4 kennsluharmonikur þær fyrstu 1990. Nótnasafn á félagið orðið nokkuð og gætir sú er hér stendur þess sem gull væri. Starfsemi félagsins hefur verið vel virk í gegnum árin. Samstarf við félögin hér í kring hefur verið gott en misjafnlega mik- ið eftir árum. Meðal annars förum við gjarnan á dansleiki sem nágrannafélögin Sigrún Bjarnadóttir. halda og spilum kannske í klukkutíma bara svona til gamans og til að efla fé- lagsandann bæði hjá okkur og við þá er við heimsækjum. Fyrsta umræðan um útgáfu tónlistar félagsins fann ég bókaða frá árinu 1992. Meðgangan varð löng enda stóðum við að Landsmóti á tímabilinu. Árið 1999 kom svo geisladiskur frá félaginu út og heitir einfaldlega Harmonikufélag Rang- æinga. Leika þar félagar að hluta og Grét- ar Geirsson sá um afganginn. Starfsemi félagsins hefur gegnum liðna tíð verið fólgin í dansleikjum haust og vor. Skemmtifundir hafa verið haldnir einkum fyrr á árum. Einnig tók félagið þátt í Saumastofugleði í Útvarpinu og hafa verið þátttakendur í ýmsum við- burðum í heimahéraði. Þá eru ótalin ferðalög félagsins sem hafa sett sterkan svip á starfsemina. Oft- ast hefur verið farið bæði haust og vor þar á meðal heimsóknir til félaga út á landi nú síðast til Þingeyinga í ágúst síð- astliðnum. Eigum við mjög góðar minn- ingar um glaða daga úr þessum ferðum. Einnig höfum við fengið önnur harmon- ikufélög í heimsókn, okkur til mikillar ánægju. Nokkrir félagar úr Harmonikufélagi Rangæinga hafa stundað það um árabil að sækja útisamkomur félaga víða um land og hafa mörg vináttuböndin orðið til þar og á mínu heimili er litið svo á að þetta sé að verða full sumarvinna og hún ekki af verri endanum þar sem harmonik- an er í öndvegi. Núverandi stjórn félagsins skipa: Jó- hann Bjarnason formaður, Haraldur lúlí- usson ritari. Bragi Gunnarsson gjaldkeri, Sigmar Sigurbjörnsson og Ólöf Kristó- fersdóttir. Það sem einkennir þennan félagsskap fyrst og fremst er sú gleði og léttleiki er harmonikunni fylgir. Eldhuginn Valdimar Auðunsson hreif okkur með sér á vit tón- anna og þar svífum við enn. Ekki megum við heldur gleyma því að við höfum af- burða harmonikuleikara í okkar röðum sem hveturtil dáða, enda hafa sum okkar farið í tónlistarskóla á gamals aldri. Ég hef trú á því að þið frá öðrum félög- um hafið sömu sögu að segja. Harmon- ikunni fylgir gleði og spilað er ánægjunn- ar vegna. Þegar sest er með hljóðfærið vill tíminn gleymast. Það er raunar rann- sóknarefni hvað veldur því að jafn öflug- ur félagsskapur verður til um eitt hljóð- færi. Ég ímynda mér að svarið gæti verið að við séum sprottin úr sama jarðvegin- um upp af sömu rótinni og þetta sé mjög öflug og kröftug rót. Lengi hef ég kaliað félagana um land allt Stórfjölskylduna og vona að það nafn standi undir væntingum í framtíðinni. Ég vil óska félaginu mínu allra heilla á þessum tímamótum og vona að það starfi í jafn góðum anda hér eftir sem hingað til. Sigrún Bjarnadóttir. Svanur Bjarki Úlfarsson Hljóðfæri Get útvegað Tombolini gæða- harmonikur frá Ítalíu á hagstæðu verði. Sendi myndalista ef óskað er. Jón Hrólfsson Slmi: 462 4576 - Gsm: 868 7294

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.