Harmonikublaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 16
Tækifærisvísur
HARMONIKUBLAÐIÐ
Þessar vísur urðu til á æfingum
Stórsveitar F.H.U.E. veturinn 2004-2005
Einar Guðmundsson
Einar hefur nú blíðar brár
bjartasta vonin okkar
hann er lipur og hann er klár
og hann á bróður, sem kokkar!
Sigurður Indriðason
Siggi við dömu komst í kast
kallast það engin undur
í hana greip en helst til fast
því höndin fór í sundur.
Guðmundur Sigurpálsson
Guðmundur er gæðaskinn
góður sínum vinum
léttfættur hann læðist inn
löngu á eftir hinum.
(En svo hætti Guðmundur að koma of
seint)
Núna hefur séð að sér
seinn er ekki lengur
framför það nú þykir mér
þetta er vænsti drengur.
Þór Steinberg Pálsson
Nokkuð kláran ég karlinn tel
þó kannski þar fylgi þagi
þó Steinberg sig alltaf standi vel
er „stopparinn" ekki í lagi.
í „pásu" fær hann rokna rex
reynir að standa í ströngu
með úldna mjólk og aldrað kex
útrunnið fyrir löngu.
]ón Benediktson (úr Dölum)
Flosi Sigurðsson
Fjandi vont er fór hann |ón
fyrtist við það hjörðin
en Flosi með sinn fína tón
fyllir upp í skörðin.
Hörður Kristinsson
Kenndur er við Arnarhól
aldrei sár né bitur
Hörður uppi á háum stól
helst af öllu situr.
Ævar Ragnarsson
Ævar virðist afar knár
engu vill hann gleyma
hann hefur líka allmörg ár
æft sig mikið heima.
Vaclav (hljómsveitarstjóri)
Vaclavs hopp virðast ei til neins
vill allt fara úr böndum
hann hefur sjaldan aðra eins
amlóða haft með höndum.
Svanhildur S. Leósdóttir
Gítarinn ég glamra á
gripin vanda á'onum
allt í lagi, en það má
ekkert heyrast frá'onum.
Kristján Þórðarson
Kristján varast sukk og soll
þó samt hann kunni að blanda
engan keyrir hann um koll
kyrrlátur að vanda.
Ingólfur lónsson
Ingólfus lipurð létt og fín
leiðir sönginn stundum
er hann leikur lögin sín
lifnar fjör hjá sprundum.
Arnar Ingi Tryggvason og
Guðný Guðmundsdóttir
Hér vil ég nefna hal og fljóð
sem harmonikunni unna
Arnar og Guðný eru góð
ýmislegt fagurt kunna.
lóhannes Jónsson
Vel einn maður til verka kann
vandaður reynist hann
liðið hefur þar lipran mann
Landssambandsforsetann.
Davíð lónsson
Davíð leikur dægurlög
dálítið er fróður
heldur létt á hamri og sög
hagleiksmaður góður.
lóhann Sigurðsson
Formaður er fáheyrður
fjarskalega tóneyrður
furðulega fastreyrður
og fullkomlega tilkeyrður.
Höfundur:
Svanhildur Sigurrós Leósdóttir
LAGAKEPPNI í TENGSLUM VIÐ NORDLEK 2006 í GAUTABORG
KEPPNISFRAMLAG: VALS.
KEPPNISSKILYRÐI: 1 LAG Á HVERN KEPPANDA.
LAGIÐ SKAL VERA HLJÓMASETT, HRAÐAFYRIRSKRIFT ER ÆSKILEG,
MÁ GJARNA VERA ÚTSETT í FLEIRI RÖDDUM, EN AÐEINS LAGLÍNAN ER
DÆMD. LAGLÍNAN SKAL VERA Á SÉRBLAÐI.
NAFN LAGS MÁ EKKI KOMA FRAM Á KEPPNISEINTAKINU.
LAGIÐ MÁ EKKI HAFA VERIÐ GEFIÐ ÚT EÐA FLUTT OPINBERLEGA ÁÐUR.
VERÐLAUN í BOÐI.
NORDLEK FOLKMUSIKUTSKOTT ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL VINNINGSLAGSINS
OG TIL OPINBERRAR ÚTGÁFU PESS.
SKILAFRESTUR ER TIL 31. JANÚAR 2006.
UPPLÝSINGAR:
Bengt Hellkvist - bhellkvist@hotmail.com, Hreinn Vilhjálmsson - hreinnv@itn.is
KEPPNISLAG í SÉR UMSLAGI (1),
NAFN OG PERSÓNULEGAR
UPPLÝSINGAR í ÖÐRU UMSLAGI (2).
SETJIÐ UMSLÖGIN TVÖ
í ÞRIÐJA UMSLAGIÐ (3)
MERKT:
NORDLEKMELODI
BENGT HELLKVIST
SKARPNÁCKS ALLÉ 28
S-128 33 SKARPNÁCK
SVERIGE
Velkomin(n) með framlag þitt.
Nordlek Folkmusikutskott
EQíF