Harmonikublaðið - 01.12.2007, Síða 4
Frá formanni
Ágætu harmonikuunnendur.
Árið 2007 er að verða langt komið og
stutt til jóla. Á þessum tímamótum er
rétt að líta yfir farinn veg og hvað hefur
helst gerst á árinu. Líklega er sú
nýbreytni að halda dag harmonikunnar
þann 5. maí 2007 sá atburður sem hæst
ber og eru viðbrögð góð það sem ég hef
heyrt. Að því að ég best veit hefur starf
í harmonikufélögum í landinu verið gott,
en þó eru vondu fréttirnar þær að nokkur
félög hafa lagt af starfsemi sem
vissulega eru vondar fréttir en vonandi
er þar aðeins um tímabundinn vanda að
ræða.
Aðalfundur S.Í.H.U. var haldinn að
Steinsstöðum í Skagafirði þann 22.
september og sáu harmonikuunnendur
í Skagafirði um framkvæmd fundarins,
aðstaða og viðurgjörningur frábær og
þeim til mikils sóma og færi ég þeim
þakkir fyrir hönd stjórnar S.Í.H.U. fyrir
sinn þátt.
Aðalfundur S.Í.H.U er æðsta stofnun
harmonikufélaganna í landinu og þar
eigum við að taka ákvarðanir um framtíð
sambandsins og fara yfir það sem gert
hefur verið á liðnu starfsári og leggja
drög að framtíðinni. Samt fannst mér að
umræður um málin hefðu mátt vera
meiri, hugmyndir og skoðanir hvað
framtíðina varðar meiri og ákveðnari.
Margt hefur breyst frá stofnun
sambandsins og mjög líklegt að ýmsu
þurfi að breyta bæði hvað varðarfjármál
og stjórnun og stefnu. Þetta bið ég fólk
að taka til athugunar fyrir næsta
aðalfund. Ef ég reyni að leggja mat á
það sem gerðist á fundinum þá finnst
mér að hvað ánægjulegustu tíðindi sem
þar gerðust hafi verið skýrsla frá
framtfðarnefnd S.Í.H.U. sem er skipuð
þremur ungmennum sem létu Ijós sitt
skína og sjá framtíðina í björtum litum
og það hlýtur að vera mikilsverðasta
starf bæði sambandsins og harmoniku-
félaganna að vinna að málefnum ungs
fólks sem tekið hefur ástfóstri við
harmonikuna. Stjórn S.Í.H.U. hefur nú
þegar reynt að koma einni hugmynd
framtíðarnefndarinnar í framkvæmd en
þegar þetta er skrifað er ekki Ijóst
hvernig til tekst en samt er hægt að
segja að jákvætt hafi verið tekið í
hugmyndina.
Námskeið fyrir harmonikukennara var
haldið á sama stað og fundurinn undir
stjórn Guðmundar Samúelssonar og
kom Lars Holm til að kenna. Hiklaust má
segja að margt það sem Lars var að
kenna ogsýna á eftirað koma að góðum
notum, verst að því miður sáu ekki allir
harmonikukennarar sér fært að mæta á
námskeiðið og spurning hvar okkur
mistekst í að fá kennarana til að koma á
námskeið, tala saman, kynnast og ekki
síst að hafa af nokkra skemmtun því að
það er nauðsynlegur hluti af þessu öllu
saman.
Eitt það merkilegasta sem mér fannst
gerast á þessum fundi var að á honum
var einróma samþykkt að halda áfram
útgáfu Harmonikublaðsins en á aðal-
fundinum 2006 var ekki annað að sjá en
að það yrði síðasta ár blaðsins. Þetta
hlýtur að þýða að vel hefurtil tekist með
blaðið og lesendur ánægðir sem auð-
vitað er Hreini Halldórssyni ritstjóra að
þakka. Ég tel Ijóst að ef að blaðið yrði
lagt niður væru harmonikufólk búið að
missa mikilvægan tengilið sín á milli.
Fyrir ákvörðun um framtfð biaðsins
ber að þakka félögunum sem sóttu
fundinn. Þetta finnst mér sýna að við
erum á réttri leið.
Einnig var kynnt og tekin í notkun ný
heimasíða S.Í.H.U. og vonandi að hún
verði til þess að auka kynningu á starfi
félaganna og sambandsins, þá einkum
hjá ungu fólki sem óneitanlega hefur
betri skilning á kostum og möguleikum
internetsins heldur en þeir sem eldri eru
þannigað vonandi er þetta skref í þá átt
að ná betur til unga fólksins sem hlýtur
að vera markmið sem við öll stefnum
að.
Áfundinum varákveðið að fresta fram
til 1. desember 2007 að taka á móti
umsóknum um að halda næsta aðalfund
2008 og að halda næsta unglinga-
landsmót. Nú þegar hafa tvö félög sótt
um að halda aðalfund 2008 en því
miður hefur ekki neitt félag sótt um að
halda ungtingalandsmót ennþá en von-
andi ekki öll von úti hvað það varðar.
Úr stjórn S.Í.H.U. að þessu sinni gengu
Egill Jónsson ritari, Hildur Petra
varamaður, Alda Friðgeirsdóttir með-
stjórnandi og Geir Guðlaugsson vara-
maður og í þeirra stað voru kosnir í
stjórn: Gunnar Kvaran ritari, Frosti
Gunnarsson meðstjórnandi, og vara-
menn Jóhann Bjarnason og Aðalsteinn
ísfjörð. Þeim stjórnarmönnum sem létu
af störfum vil ég þakka frábært samstarf
og sömuleiðis býð ég nýja stjórnarmenn
velkomna til starfa.
Unglingalandsmót var haldið að
Reykjum f Hrútafirði f umsjónHarmoniku-
akademíunnar. Um mótið sjálft er
fjallað annars staðaríblaðinu en ekki er
annað að heyra en þar hafi vel til tekist
og er Harmonikuakademíunni þakkað
gott starf. Hins vegar er mikið áhyggju-
efni að frá stórum hluta landsins mættu
ekki þátttakendur til mótsins. Þetta er
hlutursem sambandið ogaðildarfélögin
geta ekki sætt sig við og nauðsynlegt
fyrir okkur að taka duglega til hendinni
þannig að þetta endurtaki sig ekki á
næsta unglingamóti.
En enn og aftur! Það hlýtur að vera
forgangsverkefni að ná til ungs fólks því
ef það gengur ekki er ekki langt eftir hjá
sambandinu og félögunum og ég skora
á okkur að gera okkar besta til að ná til
ungra harmonikuleikara um allt land,
þar er framtíðin.
Um leið og ég óska öllu harmoniku-
fólki gleðilegra jóla og farsældar á
komandi ári vona ég að við leggjumst á
eitt með að auka áhuga á harmonikuleik
hvar á landinu sem við búum. Þá höfum
við gengið til góðs.
JÓNAS Þór Jóhannssson
Formaður S.Í.H.U.