Harmonikublaðið - 01.12.2007, Síða 6

Harmonikublaðið - 01.12.2007, Síða 6
 Landsmót ungmenna 2007 Dagana 19. - 21. október 2007 var tandsmót ungmenna haldið að Reykjum við Hrútafjörð. Að þessu sinni var það Harmonikuakademían á íslandi (H.A.f.) sem sá um framkvæmd mótsins fyrir hönd Sambands íslenskra harmoniku- unnenda. Aðdragandi þess að leitað var til H.A.Í. um að taka að sér framkvæmd mótsins var að þeir aðilar sem upphaflega ætluðu að sjá um framkvæmdina urðu frá að hverfa vegna ástæðu sem ekki verður rakin hér. Upphaflega stóð til að halda mótið að Hellu á Rangárvöllum, en eftir að nefndin hafði skoðað aðstæður og fengið verðhugmyndir varðandi húsnæði, mat og fleira á Hellu, varð niðustaðan sú að mótið yrði flutt að Reykjum við Hrútafjörð. I undirbúningsnefnd fyrir mótið voru Guðmundur Samúelsson, Reynir Jónas- son og Gunnar Kvaran frá H.A.Í. auk fulltrúa landsambandsins, þeim Jóhanni Bjarnasyni, Oddnýju Björgvinsdóttur, Helgu K. Guðmundsdóttur og Sólbergs B. Valdimarssyni. Þátttakendur, kennarar, for- eldrar og aðrir aðstandendur mættu til mótsins seinni part föstudagsins 19. október og mátti sjá eftirvæntingu og spenning f hverju andliti ung- mennanna er þau komu að Reykjum. Það fyrsta sem þreyttir ferðalangar gerðu er að Reykjum var komið var að setjast að Pizzaveislu sem var í boði Félags harmonikuunnenda í Reykjavík. Ég vil nota tækifærið og færa F.H.U.R bestu þakkir fyrir góða máltíð. Mótssetning var kl. 20:00 og var það Einar Guðmundsson sem setti mótið í fjarveru formanns sambandsins Jónasar Þórs Jóhannssonar sem átti ekki heimangengt. Síðan tók for- maður H.A.Í., Guðmundur Sam- úelsson til máls og þakkaði stjórn S. í. H.U. það traust sem hún sýnir Akademíunni með því að fela henni umsjá mótsins. Dagskrá föstudagskvöldsins hófst með samæfingu ístenskra þjóðlaga, þarsem allirnemendur gátu tekið þátt. Stjórnandi var Reynir Jónasson og útsetti hann einnig lögin. Hljómsveitin taldi tæplega 60 ungmenni. Að samæfingu lokinni var þátttakendum boðið upp á aðfáleiðsögnþriggjavalinkunnra kennara sem hverum sigtókfyrir eitthvert mikilvægt atriði varðandi harmonikuleik. Þessi nýbreytni mæltist mjögvelfyrir hjá þátttakendum og verður eflaust fastur liðurá komandi landsmótum. Laugardagurinn hófst með kjarngóðum morgunmat kl. 09:00 og síðan hófst þétt dagskrá fram á kvöld. Yngri nemendur hófu samspilsæfingu að nýju og eldri hópur nemenda og stór hluti kennara tóku þátt í Master Class undir stjórn Hrólfs Vagnssonar. Að loknum hádegisverði var frjáls tími fyrir nemendur, þar sem þau gátu nýtt tímann til að fara í sund, leiktækjasal eða notið útiveru fram að næsta dagskrárlið. Kennarar nýttu þennan frjálsa tíma til að hittast og ræða sameiginleg hagsmuna- mál. Þar bar hæst námsskráin í harmonikuleik og önnur mál er brunnu á kennurum. Tónleikar yngri nemenda hófust kl. 14:00 með samspili undir stjórn Reynis og komu ungmennin fram eitt af öðru annað hvort með einleiksnúmer eða þau komu fram fleiri saman og einnig mátti sjá kennara koma fram með nemendum sínum. Að loknum tónleikunum tóku eldri nemendur og kennarar upp þráðinn að nýju með Hrólfi Vagnssyni og nutu leiðsagnar hans fram eftir degi. Áður en sest var að kvöld- verðarborði var frjáls tími sem skipulagður var þannig að ungmenni réðu því hvort þau nýttu sér sundlaugina, leik- tækjasatinn eða ktæddu sig vel og fengju sér frískt loft, eða tækju þátt í gönguferð með eldra fólkinu undir leiðsögn eins af staðarhöldurum að Reykjum. Þetta var skemmtileg ganga, þar sem rakin var saga staðarins og endaði gangan í Byggðasafninu, sem ersafn íeigu Strandamanna, Vestur og Austur Húnvetninga. Þar var meðal annars skoðað hákarlaskipið Ófeigur og saga hákarlaveiða við Húnflóa rakin. Að lokum var öllum er tóku þátt í göngunni boðið upp á hákarl sér til hressingar. Að loknum kvöld- verði var komið að tónleikum eldri nemenda og tóku þátt í þeim tónleikum 12 nemendur sem léku einleik, dúetta, tríó og kvartetta. Þessum tónleikum lauk með því að Reynir Jónasson lék Vals caprice no.3 eftir Andrew Walter. Laugardagkvöldinu lauk síðan með kvöldvöku, þar sem ungir sem aldnir tóku þátt. Farið var í skemmtilega leiki sem bruggaðir

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.