Harmonikublaðið - 01.12.2007, Side 7
Einar Guðmundsson tók ísundur nokkrar nikkur og sýndi krökkunum.
Jónas, Flemming, Halldór og Benidikt einbeittir á tðnleikum á laugardagskvöldinu.
voru á stadnum, ýmist af þeim er stóðu
að mótinu eða af mótsgestum. Mótinu
lauk síðan á sunnudag með þvf að
íslensku þjóðtögin voru leikin af
stórsveit mótsins og síðan voru
öllum þátttakendum veitt
viðurkenning fyrir að hafa tekið
þátt í landsmótinu. Sfðasta atriði
mótsins var að harmoniku-
kennarar tóku fram hljóðfæri sín
og léku saman nokkur lög af
fingrum fram fyrir nemendur og
mótsgesti. Mótinu var sfðan slitið
á hádegi og fóru allir til síns
heima, sælir og glaðir eftir vel
heppnað landsmót.
Ef það er eitthvað sem ég hefði
viljað sjá öðru fremur eftir þetta
landsmót, þá hefði verið gaman
að sjá fleiri nemendur. Ég tel að
kennarar eigi að gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að fá fleiri af nemendum
sínum til að mæta á landsmót. Að mínu
mati skiptir ekki máli hvort þau hófu
harmonikunám nú í haust eða á seinni
önn síðasta veturs og séu þess vegna
ekki tilbúin í að spila á móti sem þessu.
Aðalatriðið er að þau fái að mæta og
upplifa helgi sem þessa í hópi jafnaldra
og sjái og heyri hvað harmonikan hefur
upp á að bjóða. Ekki gleyma því að þetta
eru ungmennin sem munu halda á lofti
nafni harmonikunnar næstu áratugina.
Ég fullyrði að það eru margir sammála
mér um þetta.
Það er skoðun undirritaðs að allir þeir
sem komu að undirbúningi
þessa móts hafi staðið sig vel
ogvarsérlega veltilfundið að fá
unga fólkið, Oddnýju, Helgu og
Sólberg til að taka þátt í
undirbúningi og starfi á móts-
stað. Reykir við Hrútafjörð er
kjörinn staður fyrir mót sem
þetta. Frábær aðstaða í góðu
íþróttahúsi ásamt nægu rými til
æfinga fyrir nemendur og kenn-
ara. Sundlaug, leiktækjasalur og
góð gistiaðstaða gera staðinn
ómetanlegan fyrir mót sem
þetta. Staðarhaldarar að Reykj-
um eiga heiður skilinn fyrir
þeirra þátt í hversu vel tókst til
með framkvæmd mótsins, aðbúnaður,
matur og allt sem þau buðu upp á var til
mikillar fyrirmyndar og ber sérstaklega
að þakka fyrir það.
Harmonikukveðiur, Gunnar Ó. Kvaran
Umsagnir gesta
á landsmóti
Það var gaman að vera á þessu
unglingalandsmóti. Það sem hreif
okkur sérstaklega var samleikur nærri
60 nemenda á misjöfnum aldri og hve
margir ungir og efnilegir harm-
onikuleikarar komu fram á tón-
leikunum. Öll framkvæmd mótsins
tókst með miklum ágætum enda
staðurinn sérlega góður til mótshalds
sem þessa og ekki spillti hlýtt viðmót
staðarhaldara fyrir.
Við teljum að þetta mót sanni að
harmonikan erá uppleið.
Bestu kveðjur,
Messíana Marsellíusardóttir
og ÁsgeirS. Sigurðsson
Ég undirrituð
mætti ásamt Degi,
10 ára syni mínum
á landsmót ung-
menna. Sonur
minn stundar nám
í harmonikuleik
hjá Jakub Kolo-
sowski við Tónlist-
arskóla Dalvíkur-
byggðar.
Þarna voru mætt
yfir 50 börn og ungmenni vfðs vegar að af
landinu, ásamt foreldrum, kennurum og
öðrum fylgifiskum, þannig að úr varð
stærðarinnar hópur af kátu og skemmtilegu
fólki. Frábærir tónleikar yngri og eldri
nemenda eru ógleymanlegir, ásamt samspili
allra nemenda undir stjórn Reynis Jónas-
sonar. Finnst mér þessi staðsetning til
mótshaldsins að Reykjum við Hrútafjörð
alveg tilvalin, bæði landfræðilega séð og
ekki síst hvað varðar húsakost.
Við Dagur þökkum kærlega fyrir okkur og
hlökkum til að mæta á næsta mót.
Húrra fyrir skipuleggjendum!!
Margrét Ásgeirsdóttir Dalvík.
'\
Hann vaknaði klukk-
an fimm vegna
tilhlökkunar. Hann
hlakkaði svo til að
fara á harmoniku-
mótið að Reykjum í
Hrútafirði. Hann heit-
ir Bergmann Óli
Aðalsteinsson, er 9
ára og búinn að læra
á harmoniku í einn
vetur. Kennarinn hans heitir Gunnar G.
Kvaran. Mamman, Harpa Sól Másdóttir, og
amman, Ingunn Ragnarsdóttir, skelltu sér
með honum. Helgin leið við Ijúfa og
skemmtilega tóna harmonikunnar. Margt var
til gamans gert og var gætt vel að öllum aldri.
Leikjasalur var til taks milli tónlistaratriða og
nýttu bæði börn og fullorðnir sér hann.
Byggðasafnið á staðnum var heimsótt,
heilsað upp á gæsir húsfreyjunnar og
sundlaugin var opin. Samtals 60 áhugasamir
krakkar náðu saman og var gaman að hlusta
á og sjá þau spila snilldar vel. Öll uppskáru
þau medalíu í lok helgarinnar. Kennarar og
mótshaldarar eiga hrós skilið fyrir góða
skipulagningu og vel heppnaða helgi.
Bergmann Óli er strax farin að hlakka til
næsta landsmóts og huga að næsta einspils
verki. Harpa Sól Másdóttir
7
V