Harmonikublaðið - 01.12.2007, Side 8
Landsmót 2008
Tímasetningin er: 3. til 6. júlí.
Mótið verður haidið í íþróttahúsinu við
Sunnubraut sem er áfast við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja.
Varðandi þátttöku á mótinu, má fara inná www.
harmonika.is "gestabók" og skrá sig.
Tilkynnt verður eftir áramót hvar hægt verður
að tilkynna sig og hvaða lög þeir ætla að spila.
Stjórnendur fá óskalistann sendan eftir áramót.
Óskalistinn verður sendur til formanna eftir
áramót.
Varðandi landsmótslagið, leitaði Dói álita hjá
nokkrum snjöllum spilurum hvort gaman væri að
breyta til og koma með eitt sving lag og var því vel
tekið. Dói er nokkuð montinn að eldri dóttir hans
útsetti lagið fyrir þrjár raddir og vonum við að
félögin (þegar þau fá lagið endanlega) skifti
röddunum vel á milli sín. Við sendum þér fyrstu
rödd bara til að kynna lagið, en sendum lagið
fullklárað eftir áramót. Textinn kemur síðar.
Gistimöguleikar eru sem hér segir:
Flughótel
Hótel Keilir
Gistihús B & B
Gistihús Keflavíkur
Fit hostel
Fyrir tjöld og húsbíla:
Alex,
Stæði fyrir húsbílana eingöngu verður reynt að
hafa í kringum mótssvæðið eins og hægt er.
Nánari upplýsingar um gistimöguleika fást hjá:
Upplýsingamiðstöð Reykjaness
í Bókasafni Reykjanesbæjar
Kjarni, Hafnargata 57 - 230 Reykjanesbær,
sími 421 6777 - bréfasími: 421 3150
Netfang: reykjanes@reykjanesbaer.is
Verkefnisstjóri: Rannveig L. Garðarsdóttir
Kær kveðja:
SigurðurÁmundason (Siggi)
Hólagötu 27 260 Reykjanesbæ, s: 4211910 / 896 5687.
og Þórólfur Þorsteinsson (Dói)
Reykjanesbær
8