Harmonikublaðið - 01.12.2008, Side 3
Frá ábyrgðarmanni
'Spgie&ts
9VK
"BT1
( N
Harmonikubladid
ISSN1670-20 oX
Ábyrgðarmaður: Hreinn HaUdórsson
Faxatröd 6, 700 Egilsstödum
Sími 4711884, 866 5582
Netfang: fax6@simnet.is
og hreinn@egilsstadir.is
Prentvinnsla:
Héradsprent, Egilsstödum
Netfang: print@heradsprent.is
Meðal efnis:
- Litið um öxl - Þriðji klúbburinn
- Haustfundur S.Í.H.U. 2008
- Lag blaðsins
- Lansdmót ungmenna 2008
- Belgskiptingar skipta máli
- Heiðruð á Landsmóti 2008 (fjórar greinar)
- Jón H. —tónlístin o.fl.
- Ný heimasíða
- Jan Moravek
Auglýsingaverð:
Baksíða 1/1 sída kr. 23.000
1/2 sída kr. 15.000
Innsídur 1/1 sída kr. 18.400
1/2 sída kr. 11.500
1/4 sída kr. 6.700
1/8 sída kr. 4.600
Smáauglýsingar kr. 2.500
Efni í næsta blad, sem kemur út í maí, þarfað
berast fyrir apríltok 2009.
V ______________________________)
f \
Harmonikublaðið
desember 2008
Góðir áskrifendur!
Vinsamlega leggið áskrift blaðsins,
kr. 2.000.- fyrirárið 2008 inn á reikning
nr. 0305 -13- 700,
Kt. 030349-3859
Mikilvægt er að nafn og kennitala
áskrifanda blaðsins komi fram
þegar greitt er.
V __________________________________)
HeiUr og sælir lesendur góðir!
Þó skuggar heimsins skelli á
og skapi vanda
þá verða allir vel að anda
og vasklega í fætur standa.
Þetta á jafnt við um harmonikuunnendur
sem aðra. Þó haustið hafi verið risjótt,
hvað efnahag landsins og alls heimsins
snertir, þá hefur veðráttan verið nokkuð
góð svona heilt yfir. Veðrið hefur því
líklega ekki hamlað æfingum eða
skemmtanahaldi það sem af er vetri.
í síðustu viku brá ég mér á gamlar slóðir
við Steingrímsfjörðinn og hafði í leiðinni
tal af póstinum, veiði- og tónlistarmann-
inum Jóni H. Halldórssyni, sem reyndar er
bróðir minn. (Gott ef ég verð ekki settur
af sem ritstjóri fyrir að taka viðtal við
skyldmenni). Afraksturinn er hér í blaðinu.
í septemberblaðinu voru greinar um fjögur
af þeim átta sem S.Í.H.U. heiðraði á lands-
mótinu í Reykjanesbæ s.l. sumar. í þessu
blaði eru svo greinar um þau fjögur sem
eftir voru. En þau eru: Fanney Magna
Karlsdóttir, Gestur Friðjónsson, Sigurður
Hallmarsson og Grétar Geirsson. Hjalti
Jóhannsson skrifar m.a. skemmtilega
grein um hinn danska Hermóð Alfreðsson
sem bjó lengi á íslandi og margir harmo-
nikuunnendur þekkja. Ég man enn þegar
tónar frá Jan Moravek og hljómsveit hans
hljómuðu um eldhúsið úr útvarpinu í
gamla húsinu á Hrófbergi. Þetta voru
góðar stundir. Högni Jónsson skrifar um
þennan merka tónlistarmann. Ég byrjaði
snemma að hafa gaman af harmoniku-
tónlist og “gömlu” dönsunum, þó ég hafi
aldrei náð neinni leikni í að dansa. Ég
fluttist nokkuð ungur til Reykjavíkur og
fór oft um helgar í Þórskaffi, ekki síst
vegna þess að þarvar skemmtileg hjóm-
sveit sem Ásgeir Sverrisson fór fyrir.
Ásgeir féll frá í september s.l. Hans er
minnst f blaðinu.
Frá því ég tók að mér Harmonikublaðið,
fyrir þremur árum, hef ég verið að leita
að ungum lagahöfundum en það erfyrst
núna sem það barárangur. íþessu blaði
er nýtt lag eftir ungan tónlistarmann,
Jónas Ásgeir Ásgeirsson, sem er þegar
orðinn góður harmonikuleikari, þrátt fyrir
að vera aðeins 15 ára. Hann hefur frá upp-
hafi notið kennslu GuðmundarSamúels-
sonar sem hefur af lífi og sál stuðlað að
framgangi harmonikunnar með kennslu
og öðrum hætti. Ég vil þakka Guðmundi
sérstaklega fyrir góða aðstoð sem og Jón-
asi fyrir lagið og vona að hann nái sem
lengst á tónlistarbrautinni.
Vegna plássleysis varð úr að þjappa lag-
inu saman, minnka blaðsíðurnar. Ég
treysti á að gleraugun séu í lagi. Annars
er hægt að Ijósrita og stækka um leið
blöðin. Vona að þetta verði ekki vanda-
mál.
Harmonikufélag Þingeyinga varð 30 ára
4. maí sl. og hélt veglega upp á afmælið
fyrir stuttu, ásamt útgáfu afmælisrits. Fyrir
hönd Harmonikublaðsinsóska égfélaginu
hjartanlega til hamingju með afmælið og
vona að það eigi margar og góðar stundir
fyrir höndum.
Ætlunin var að birta a.m.k. nokkrar myndir
úr hófinu en vegna plássleysis verður það
að bíða betri tíma.
Að lokum vil ég þakka öllum sem lögðu
mér lið, á einn eða annan hátt, við efn-
isöflun o.fl. í þetta blað sem og önnur á
þessu ári. Ég vona að hátíðirnar verði
gæfuríkar og jólafriður og gleði umvefji
ykkuröll.
Hreinn Halldórsson
MaXmomkusafn
ÁSGEIRS S. SIGURÐSSONAR
býður öldrudum harmonikum
farsælt ævikvöld á Byggðasafni Vestfjarða, ísafirði.
V
Símanúmer: 456-3485 og 863-1642