Harmonikublaðið - 01.12.2008, Side 4

Harmonikublaðið - 01.12.2008, Side 4
 Frá formanni S.Í.H.U. t..: Ágætu harmonikuunnendur. Frá þvíað ég skrifaði síðast í okkar ágæta blað, Harmonikublaðið, hefur margt á daga íslensku þjóðarinnar drifið sem okkur flest óraði ekki fyrir og hefur víst óhjákvæmilega áhrif á allt og alla og þar á meðal okkar starfsemi að einhverju leyti en vonandi lagast þetta allt innan tíðar. Aðalfundur S.f.H.U. var haldinn að Núpi við Dýrafjörð þann 20. september 2008 í boði Harmonikufélags Vestfjarða sem stóð fyrir fundinum og ýmsu honum tengdu af mikilli prýði. Égfæri þeim bestu þakkir fyrir þeirra þátt. Fundurinn fór vel fram en því miður voru umræður for- manna og fulltrúa litlar um þau mál sem brenna á okkur um þessar mundir. í skýrslu minni til fundarins gat ég um þá atburði sem helstir hafa verið á dagskrá stjórnarinnar á síðasta ári, svo sem Ung- lingalandsmót sem Harmonikuakademí- an hefur staðið fyrir af miklum krafti, starfi framtíðarnefndarinnar og áform- aða þátttöku í LUNGA á Seyðisfirði, sem því miðurvarð ekki af á þessu sumri en ekki er öll nótt úti enn hvað varðar þátt- töku á næsta sumri. Kynnt var staða Harmonikublaðsins sem hefur verið gef- ið út af Hreini Halldórssyni af miklum myndarskap en því miður eru miklir erf- iðleikar við þá útgáfu þar sem áskrifend- ur eru of fáir og auglýsingar ekki nægar til að standa undir kostnaði. Ný heima- síða var tekin í notkun en því miður er notkun hennar lítil og ekki hefur tekist að fá aðila til að halda henni úti og uppfæra eins og þyrfti og því er síðan gagnslítil. Harmonikudagurinn var haldinn síðast- liðið vor og tóku mörg aðildarfélög þátt í honum. Landsmót S.Í.H.U. var haldið í Reykja- nesbæ f umsjón Harmonkuunnenda á Suðurnesjum og varframkvæmd mótsins mjög góð. Það sem veldur okkur áhyggj- um er að mótið skilaði sambandinu litlum tekjum sem er vægast sagt vont þar sem ágóði af Landsmótum hefur ver- ið besta tekjulind okkar. Þegar þetta er skrifað er ekki komið endanlegt verð á diska með efni frá landsmótinu en mér er sagt að upptökur séu allgóðar og efnið verði til sölu á um 8 geisladiskum. Eins og sjá má af framantöldu vantar nokkuð á að hlutirnir séu eins og við vilj- um hafa þá og umræður á aðalfundi ekki miklar og lítið um lausnir á þeim vanda sem augljóslega er til staðar en þar á ég við að tekjur sem við höfum treyst á eru ekki til staðar lengur, erfiðleikar við út- gáfu blaðsins og að halda úti heimasíð- unni svo nokkuð sé nefnt. Þess vegna bar undirritaður fram tvær tillögur um nefndaskipan, aðra til að fara yfir stöðu Landsmótsins ogfinna því ef til villannan farveg. Þá nefnd skipa: Melkorka Bene- diktsdóttir, Þórólfur Þorsteinsson, Ásgeir Sigurðsson, Ómar Skarphéðinsson og Jóhann Bjarnason. Hin nefndin var skipuð til að fara yfir starfsemi landssambandsins og er til- lagan um hana svohljóðandi: Aðalfundur SÍHU haldinn 20. september 2008 að Núpi samþykkir að skipa 5 manna nefnd formanna aðildarfélaga sem hafi það verkefni að fara yfir skipu- lag, fjármál og markmið Sambands ís- lenskra harmonikuunnenda. Aðalfundur 2008 kjósi í nefndina og stefnt skal að þvf að nefndin Ijúki störfum fyrir áramót 2008-2009. Nefndina skipa: Stefán Þórisson, Guðrún Guðjónsdóttir, Jóhann Bjarnason, Þórólf- ur Þorsteinsson og Friðjón Hallgrímsson. Báðar tillögurnar voru samþykktar og nefndir hafa tekið til starfa og vonandi fær stjórnin einhver drög frá þeim upp úr áramótum en auðvitað verða niðurstöð- ur nefndanna og þær tillögur sem þær koma með lagðar fyrir næsta aðalfund á komandi hausti. Vissulega hefði ég held- ur kosið að fundurinn hefði tekið á þeim málum sem þarna er verið að setja í nefndir til umfjöllunar þvf að við megum engan tíma missa. Vandinn er til staðar, um það eru flestir sammála og það er hlutverkaðalfundarað marka stefnu íöll- um málum sambandsins hvaða nafni sem þau nefnast. Þann 15. nóvember sótti ég hátíð þar sem var verið að halda upp á 30 ára afmæli Harmonikufélags Þingeyinga og færði þeim smá gjöf frá S.Í.H.U. Hátíðin var fjölmenn og fór hið besta fram á allan hátt með ræðum og hamingjuóskum, rifj- uð upp ýmis atvik úr sögu félagsins ásamt harmonikuleik, skemmtiatriðum ogdansi fram eftir nóttu. Síðast en ekki síst gaf félagið út ágætt blað í tilefni afmælisins. Ljóst má vera að 30 ára starf Harmoniku- félags Þingeyinga hefur sett sinn svip á mannlífið og án efa glatt marga f gegnum tíðina og þá er gengið til góðs. Góðir félagar. Þó að vandi sé til staðar þá er alltafvon á meðan að til er fólk sem leggur á sig vinnu við að finna lausnir og ég treysti því að starf nefndanna sem við kusum skili árangri sem leiðir okkur til breytinga og framfara á komandi tíð. í þeirri von ogtrú að allt horfi til hins besta óska ég ykkur gleðilegra jóla og farsæld- ar um ókomna framtíð. Jónas Þórjóhannsson. Bragi Hlíðberg - nýr geisladiskur Meistari Bragi Hlíðberg hefursentfrá sér nýjan geisladisk ítilefni afþví að hann varð 85 ára 26. nóvember 2008. Þessi diskur inniheldur 14 lög og er óhætt að segja að þarna fari meist- arinn á kostum. Eins og segir í umsögn á umslagi disksins er Einar Guðmundsson skrifar: Mikil tækni, leikni og listræn einlægni einkennir tónlist Braga Hlíðberg og er mér til efs að Bragi hafi verið í betra formi í langan tíma. Þegar maður hlustar á þennan meistara leika er ekki að heyra að þarna sé 85 ára gamall maður á ferð. Allir unnendur góðrar tónlistar eru hvattir til að kaupa þennan disk. Bragi gefur diskinn út sjálfur og er hann víða til sölu, m.a. hjá Einari Guðmundssyni Akureyri, Gunnari Kvaran og Friðjóni Hall- grímssyni Reykjavík og fl. Einnig er disk- urinn til sölu hjá Byko fram að jólum. Kveðja, Gunnar Kvaran.

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.