Harmonikublaðið - 01.12.2008, Page 6

Harmonikublaðið - 01.12.2008, Page 6
„Mínir vinir fara fjöld“ kvað Bólu Hjálmar. Vinur minn í hálfan fimmta áratug, Ásgeir Sverrisson hljómlistarmaður, kvaddi jarð- vistina í haustmistri þjóðmálanna áttræður að aldri eftir skammvinn veikindi. Ásgeir fæddist í Hvammi í Norðurárdal f Mýrasýslu, sonur hjónanna Sigurlaugar Guðmundsdóttur frá Lundi í Stafholts- tungum og Sverris Gíslasonar bónda í Hvammi og fyrsta formanns Stéttarsam- bands bænda 1945. Mikið tónlistarlíf var í Hvammi, þar sem heimilisfólk spilaði og söng og Sverrir bóndi var m.a. kirkjuorgan- isti og kenndi syninum að lesa nótur ogvar strangur að sögn Ásgeirs. Eftir nám á Laug- arvatni gerðist hann nemandi íTónlistar- skólanum í Reykjavík 1948 og lagði stund á óbóleik auk tónfræði- og pfanónáms. Eftir lokapróf 1953 lék hann á nokkrum tón- leikum sem þriðji óbóisti með Sinfóníunni, en lagði það síðan á hilluna, þar eð ekki var útlit fyrir fastráðningu og hóf störf hjá bókaútgáfunni Norðra. Ásgeir réðst síðan sem fulltrúi til Samvinnutrygginga 1956, síðarVÍS og vann þartil starfsloka 1998. Um tíu ára aldur fór Ásgeir að æfa sig á harmóníku sem eldri bræður hans áttu, en 15 ára fyrir alvöru. Á námsárunum stofnuðu þeirtríó, Einarviðskiptafræðingurtvíbura- bróðir Ásgeirs, sem lék á trommur, Ólafur Guðmundsson (10.11.1927 - 26.05.1985) jónssonar skólastjóra á Hvanneyri, sem lék á píanó og Ásgeir á harmóníku. Ólafur var einnig liðtækur harmóníkuleikari, en þegar hann fór í sérnám í Búnaðarháskólann í Ultuna í Svíþjóð 1951, tók sæti hans við píanóið Baldur, bróðir hins kunna Bjarna Böðvarssonar. Á þessum tíma tíðkuðust svonefndar dansæfingar f framhaldsskól- unum, sem var annað nafn á skóladans- leikjum og þar á meðal í gamla Kennara- skólanum við Laufásveg og Samvinnuskólanum, sem var til húsa í Sam- bandshúsinu við Sölvhólsgötu ogtríóið lék þar til skiptis á helgum og stóð sú skipan mála til 1953. Á sumrin fóru bræðurnir í sveitina í heyskapinn og léku á dansleikjum um helgar, einkum í Húnaþingi, en einnig í Dölunum og á Ströndum. Ásgeir lék með ýmsum danshljómsveitum uns hann stofnaði sína eigin 1964, þar sem eiginkona hans Sigríður Maggý Magnús- dóttir annaðist sönginn. Léku þau m.a. í Þórskaffi til 1970 og f Lindarbæ til 1974. Eftir það stofnuðu þeir tríó: Ásgeir, Guðmundur Steinsson trommari og Njáll Sigurjónsson bassaleikari, sem nefndist Bergmenn. Ásgeirléksamfleyttíioárvið hátíðahöldin á 17. júní, fyrst með hljómsveit Guðmundar Finnbjörnssonar og síðan eigin - síðast á 1100 ára afmæli íslandsbyggðar 1974. Ég hygg að hið fyrsta sem Ásgeir lék í Ríkis- útvarpið hafi verið í harmóníkuþætti 1961, sem þeir önnuðust Henry J. Eyland og Högni Jónsson. Með honum léku: Erwin Köppen á bassa og Haraldur Baldursson á gítar. Þar kom í Ijós hinn fjölbreytti músíksmekkur hins fjölhæfa tónlistarmanns. Síðar átti Ásgeir eftir að hafa umsjón með harmóníku- þætti í Ríkisútvarpinu og kynnti þar m.a. hljómplötur með ítalska meistaranum Gervasio Marcosignori, sem sfðan hafa ekki heyrst þar á bæ. Það mun hafa verið á fyrsta vetrardag 1966, að hljómsveitin lék í RÚV, þar sem þeir Ásgeir og hinn snjalli harm- ónfkuleikari Guðni S. Guðnason léku þrjú dúettlög og eitt þeirra var Norðurljós, ræll eftir Jóhannes G. Jóhannesson. Efir það lék hljómsveitin oftast allra gömlu dansana næsta áratuginn eða svo í Ríkisútvarpinu. Árið 1967 gáfu SG hljómplötur út breiðskífu og það fleiri en eina með hinni ágætu hljómsveit Ásgeirs Sverrissonar. Ásgeir var afbragðs píanóleikari, þar sem hin fáguðu og mjúku stíleinkenni hans nutu sín. Sem fyrr greinir hugðist hann feta hinn klassíska tónlistarveg og ætlaði ekki að verða harmóníkuleikari, en margtferöðru- vísi en stefnt er að og án hans hefði heimur harmóníkunnar tekið á sig fölari lit. Ég heimsótti Ásgeir á spítalann skömmu fyrir andlátið. Þótt mjög væri af honum dregið brá hann á gamanmál og kvað skemmilegt að minnast gömlu daganna. - Við dagsetur reka hin Ijósu ský í leiftri á lendur liðinna samverstunda, þarsem bikarinn vartæmdur og heimsmálin leyst! Ásgeir Sverrisson var jarðsunginn frá Lang- holtskirkju 7. október sl. Á undan athöfn lék Dixielandsveit Árna ísleifssonar. - Ég kveð mætan mann og góðan dreng með virðingu og þökk. Aðstandendum bið ég blessunar. Hjalti Jóhannsson.

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.