Harmonikublaðið - 01.12.2008, Qupperneq 9

Harmonikublaðið - 01.12.2008, Qupperneq 9
'CJTO' <JTJr síns Helga Gunnarssonar, sem var blindur maður á níræðisaldri og starfaði í Bursta- gerð blindra. Helgi kvaðst stafla sínar vísur og bragarhátturinn var á þá lund, að atkvæði í hverju vísuorði skyldu vera álíka mörg og í ferskeytlu, Ijóðstafir helst engir og botninn kæmi eins og skrattinn úr sauð- arleggnum. Eitt sinn átti kona nokkur erindi í Burstagerðina og Helgi fór með kveðskap úr sjóði sfnum. Konunni þótti lítið til koma og hló að. Helga mislíkaði og varð sár og reiður og orti til hennar: Þú ert ekki frú mín góð nú á réttri hillu. Settu ekki upp sparisvip, því ég er hagyrðingur. Haustið 1982 hélt Þriðji klúbburinn dans- leik í sal Sparisjóðs vélstjóra, sem þá hét svo - við Borgartún. í því sambandi gerði ég frumdrög að merki klúbbsins og hugðist útfæra síðar, en varð ekki af. Ljósmynd af uppkastinu var notuð í skjáauglýsingu í Sjónvarpinu fyrir dansleikinn, þar sem Þórir Magnússon var táknmynd glaðsinna afkom- anda víkinga. Þeir sem léku á ballinu: Ásgeir Sverrisson, formaðurinn Hjalti Jóhannsson, Sigurðurjónsson, sundkappi ogtollvörður og fyrrnefndur Þórólfur Þorsteinsson. Þórir Magnússon lék á trommur eins og hann hefur gert alla tíð á skemmtifundum. Dans- leikurinn fór hið besta fram ogallir ánægðir, en í lokin fölnaði kærleiksblómið á milli <Jf J> „stórveldanna” og formaðurinn sagði af sér. Síðan hefur Hermóður Alfreðsson verið hinn sanni kóngur vinaklúbbsins. Um sl. aldamót jöfnuðust leikar og undirritaður hefur dálítið liðsinnt Hermóði, sem að framan greinir. Eftir aldarfjórðungs búsetu í höfuðborginni fluttist hann aftur til ættlandsins fyrir jólin 1984 og býr í bænum Hjörring á Norður-Jót- landi. Hann gerði það vitaskuld að sínum Þðrir Magnússon ískjáauglýsingu Þriðja klúbbsins ísjónvarpi 1982. Ljósm. Hjalti Jóhannsson. hætti og kom m.a. fram í harmóníkuþætti Högna Jónssonar í Ríkisútvarpinu og hafði í farteskinu hljómplötur úr safni sínu, sem hann setti á fóninn. Einnig fékk hann hinn kunna danska harmóníkuleikara Poul r j \ Formaðurinn lætur Ijós sitt skína haustið 1982. T.v. Þórir Magnússon á trommur og Þðrólfur Þor- steinsson hlýðirát.h. Ljósm. Jóhann Hjaltason. Uggerly, sem nú er látinn, til að leika í kveðjuhófinu. Uggerly hélt sfðan tónleika í Norræna húsinu ásamt Þóri Magnússyni á trommur. Liðtega hálfáttræður slær Hermóður ekki slöku við íslandsheimsóknir og kemur minnst þrisvar á ári og blæs á allt krepputal og heldur skemmtifundi um páska og jól. Hann er vinmargur hérlendis og fjöldi manns hefur greitt götu hans. Að öðrum ólöstuðum hefur Ijúfmennið Þórir Magn- ússon, reynst honum haukur í horni. Hjalti Jóhannsson. Ómur kyrrðarinnar harrnoniktmiskur tiC söCu ftjá útgefanda Símar: 462-6790 & 892-8209 Qmur k^rroarinnar Si^urður K. Leósson 1. Ómur kyrrðarinnar (Sigurður K. Leósson) 3.47 2. Októberkvöld (Sigurður K. Leósson) 2:46 3 Því ekki að taka lífið létt (Douglas, Parman, Levere) 2:28 4. Til þín (SigurðurK. Leósson) 3:11 5. Komdu nú í kvöld (Sigurður K. Leósson) 1:56 6. íslenskir sjómenn (Gylfi Ægisson) 2:19 7. Hríðarfjúk (Sigurður K. Leósson) 3:05 8. Norðurljós (Sigurður K. Leósson) 3:36 9. Gömul spor (Friðrikjónsson) 2:58 10. Týnda lagið (Sigurður K. Leósson) 3.32 11. Þegar sólin vermir jörðu (SigurðurK. Leósson) 3:20 12. Haustþoka (SigurðurK. Leósson) 3:24 13. Sólarlag (Sigurður K. Leósson) 3:01 14. í rökkurró (Al Nevins, Morty Nevins, Buck Ram, Artie Dum) 3:12

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.