Harmonikublaðið - 01.12.2008, Page 14
Landsmót ungmenna 2008
Barna- og unglingalandsmót S.Í.H.U. fór fram dagana 17. -19. október 2008
að Reykjum við Hrútafjörð. Einsogárið 2007varþað Harmonikuakademían
á íslandi er tókað sér að sjá um mótið fyrir hönd S.Í.H.U. Um 60 nemendur
mættu til leiks að þessu sinni og komu þeir frá hinum ýmu stöðum á land-
inu. Með þessum fríða hópi voru 11 kennarar og stór hópur foreldra og
aðstandenda unga fólksins, alls um 130 manns.
Ekki þarf að fara mörgum orðum um aðbúnað að Reykjum við Hrútafjörð,
allt á staðnum til fyrirmyndar og starfsfólk þar lagði sig fram um að gera
dvöl gesta sem ánægjulegasta. Ég er þess fullviss að betri aðstöðu fyrir
mót sem þetta er ekki að finna á landinu, þarna er svefnaðstaða fyrir alla
í rúmum, stór matsalur, leiktækjasalur, sundlaug og gott íþróttahús til
tónleikahalds, sem rúmar fjölda fólks í sæti. Dagskrá mótsins var með
hefðbundnu sniði, þar sem þátttakendur mættu til leiks seinnipart föstu-
dags. Byrjað var á að fá sér einhverja hressingu og síðan var hafist handa
við að æfa þrjú íslensk samspilslög sem Reynir Jónasson hafði útsett og
stjórnaði hann stórsveit ungmennanna með bravör. Að æfingu lokinni var
leiktækjasalurinn opnaður fyrir þá er það vildu en aðrir fundu sér eitthvað
til að gera þar til gengið var til náða.
Laugardagurinn rann upp og var morgunmatur borinn á borð fyrir alla sem
tóku vel til matar síns. Síðan var tekið til við að nýju að æfa samspil og að
undirbúa tónleika yngri nemenda er hófust kl. 13:00. Tónleikarnir hófust
með samspili allra nemenda undir stjórn Reynis og sfðan hófust einleiks-
tónleikarnir og mátti heyra ýmsa frábæra flytjendur töfra fram Ijúfa tóna úr
hljóðfærum sínum. Á þessa tónleika mættu allnokkrir úr nærliggjandi
sveitum til að hlusta á þessa ungu snillinga. Um miðjan dag var German
Khlopin, tónlistarkennari í Reykjanesbæ með Master Class fyrir eldri nem-
endur og lengra komna. Var góður rómur gerður að því sem German hafði
fram að færa ogvoru allir þeirsem tóku þátt ánægðir með þetta námskeið.
Siðan var frjáls tími sem þátttakendurnir nýttu vel, ýmist til útivistar eða
nýttu sér leiktækjasalinn eða æfðu fyrir tónleika er voru á dagskrá um
kvöldið. Kennarar nýttu þennan tíma til að halda aðalfund Akademfunnar
og var það góður og gagnlegur fundur. Stjórnarmenn voru endurkjörnir,
nema að German Khlopin kom inn í stjórn sem meðstjórnandi í stað Vadim
Fedorov. Eftir að kvöldmat lauk, eða um kl. 20:30 var tekið til við tónleika-
hald að nýju og nú voru það eldri nemendur og lengra komnir sem léku
listir sínar fyrir áheyrendur. Að sjálfsögðu byrjuðu tónleikarnir á samspili
allra þátttakenda þar sem þjóðlögin þrjú, undir stjórn Reynis Jónassonar,
voru spiluð og sfðan hófust reglulegir tónleikar.
Ekki fór á milli mála að þarna voru allmargir frábærir nemendur sem léku
hreint ótrúlega erfið ogskemmtilegverkaf hreinni snilld, ogsannaði þessi
hópur að við þurfum ekki að kvíða framtfðinni hvað varðar frábæra harm-
onikuleikara. Það var eins á þessum tónleikum sem og þeim fyrri að tölu-
verður hópur úr sveitinni kom til að njóta tónlistarinnar. Að tónleikum
loknum var frjáts tími sem allir nýttu vel þar til gengið var til náða.
Á sunnudagsmorgun vöknuðu allir hressir og kátir og kl. 11:00 hófst loka-
athöfnin, þar sem allur hópurinn lék í síðasta sinn samspilslögin og síðan
fengu allir þátttakendur viðurkenningu fyrir þátttöku f mótinu. Að þessu
loknu tóku kennarar nokkur lög fyrir viðstadda og síðan voru mótsslit og
fóru allir sælir og glaðir til síns heima.
Mérfinnstvið hæfi aðfæra staðarhöldurum að Reykjum, Karli B. Örvarssyni
og Halldóru, konu hans okkar bestu kveðjur, með þakklæti fyrir frábæra
daga, þar sem allir starfsmenn lögðu sig fram um að gera þessa helgi
frábæra.
14
Harmonikukveðjur,
Gunnar Kvaran.