Harmonikublaðið - 01.12.2008, Side 15

Harmonikublaðið - 01.12.2008, Side 15
Belgskiptingar skipta máli Alveg sama hvernig litið er á það, hvernig við notum belginn skiptir máli! Við spurðum harmoníkuleikarana 0ivind Farmen og Hávard Svensrud um ráð varðandi belg- notkun. Eftir Perjerund Grothe Hvað gerist ef maður dregur belginn án tilgangs og markmiðs? - Tónlistin kemur þá til með að hljóma sundurslitin og ómúsíkölsk. Verst er það þegar belgnum er snúið í miðjum tóni, en óheppilegar belgskiptingar inni ífrasavirka truflandi, jafnvel á áheyranda með litla til- finningu fyrir tónlist, segir Hávard Svens- rud. - Á sama hátt og þegar maður syngur þá andar maður þar sem það er eðlilegt í tónlistarlegu samhengi. Meðvitaðar belg- skiptingar geta því hjáipað okkur harm- oníkuleikurum til að vera ennþá meira með- vituð um það hvernig tónlistin sem við spilum er upp byggð, segir 0ivind Farmen. Farmen bendir Ifka á að harmoníkuleikarar ráði yfir tvennu sem hefur áhrif á tón- myndun þ.e. belgnotkun og áslætti fingra á nótnaborðið. - Belgurinn auk fingranna er það sem mestu ræður um hvort við náum réttum áherslum í takti á tónlist sem sveifla á að vera í. Þetta hefur líka úrslitaáhrif þegar við t.d. spilum langan syngjandi frasa í klassískri tónlist. Við erum mjög heppin miðað við marga, t.d. píanóleikara að geta notað belginn sem okkar andardrátt og að geta myndað tóninn að vild meðan hann varir. Eru margir sem eru kærulausir varðandi belgnotkun? - Smá saman hafa orðið til margir vel menntaðir harmoníkuleikarar bæði atvinnu- menn ogáhugamenn. Flestirafþeim hafa góða tilfinningu fyrir því hvernig á að nota belginn. Ég þori því að fullyrða að nýjasta kynslóð harmoníkuleikara er betri hvað þetta varðar heldur en kynslóðirnar á undan. í minni eigin kennslu er belgnotkun nemandans eitt af því fyrsta sem ég byrja að vinna með, segir Svendsrud. Svendsrud segir að þessu sé líka ábótavant t.d. á hljóðupptökum. Enn þann dag f dag getur maður heyrt að sumir harmonikuleikarar eru of kærulausir með belgskiptingar, þetta heyrist jafnvel á hljóð- upptökum með þekktum harmoníkuleikurum. Margir tónlistarmenn sem hafa harmoníkuna sem aukahljóðfæri eru ekkert að spá í hvernig nota eigi belginn og því miður eru margir þess- ara manna oft í fjöl- miðlum. Þetta gerir harmoníkuna yfirleitt hlægilega í augum fólks sem er lítið að velta fyrir sér tónlist, heldur Hávard áfram. - Sjálfsagt eru einhverjir kærulausirvarð- andi þetta. Ég held sérstaklega að varð- andi uppbyggingu á frösum og að vera meðvitaður í tengslum við það gæti nýst mörgum sem vilja skapa ennþá betri tónlist, segir 0ivind. Einhverjar einfaldar reglur til að bæta belg- tæknina? - Eitt gott ráð innan hefðbundinnar ryth- mískrartónlistareraðfylgjafrösunum. T.d. innan gömlu dansanna er oft rökrétt að snúa eftirfjóra takta íeinu. íbarokktónlist þar sem spilað er annaðhvort sterkt eða veikt getur verið skynsamlegt að snúa um leiðogmaðurbreytirstyrkleikanum. í mínu eigin tónleikaprógrammi sný ég belg alltaf á fyrirfram ákveðnum stöðum og eyði miklum tíma í að vinna með það. Maður skyldi ekki vanmeta þá vinnu sem þarf að leggja í belgnotkunina. Eftir tíu ár sem atvinnumaður vinn ég samt með þetta á hverjum degi, segir Hávard. Nokkur góð ráð varðandi belginn Tónlistarlega: 1. Hugsaðu um belginn eins og söngvari mundi hugsa um öndunina. 2. Ekki snúa belg á löngum tóni. 3. Sem undantekningfrá reglu 2: Ef maður af einhverjum ástæðum verður að snúa belg á meðan tóninn varir (einhver hluti lesenda gæti t.d. hafa æft klassísk lög og kannast við að í einhverjum hluta verksins hafi verið ómögulegt að fá belgskiptingar til að ganga upp): Vertu samt meðvitaður hvernig þú ætlar að hafa skiptingarnar. Með góðri belgtækni er hægt fela skipt- inguna mikið. 4. Belgurinn á mestan þátt í að mynda tónlistina þ.e. frasa, styrkleikabreytingar og tónmyndun (í samvinnu við áslátt fingra). 5. Oft þarf lítið til. Nákvæmar belgskipt- ingar eru mikilvægar og passa verður að nota ekki ofmikinn kraftþegarbelgnum er snúið. 6. Hafðu alltaf stjórn á belgnum svo hann taki ekki stjórnina af þér. Skynsamlegt er að vinna mikið með belginn. Tæknilega: 1. Forðastu að draga belginn of langt út því þá verður erfiðara að stjórna honum. 2. Reyndu að halda belgnum sem mest saman neðst og láta hreyfinguna aðallega gerast efst. 3. Sitjið í góðri stöðu. Þýtt úrTrekkpsillnytt, 10/2008 afOddnýju B.

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.