Harmonikublaðið - 01.09.2010, Qupperneq 2

Harmonikublaðið - 01.09.2010, Qupperneq 2
m w y$c W M <*? M Avarp formanns Ágæti lesandi Nú er farið að líða á sumarið og að því ég bestveit hefur sumarstarfsemi harm- onikufélaganna gengið vel. Ég náði því að heimsækja þrjár hátíðir í sumar, Fannahlíð, Breiðumýri og Svartaskóg. Að því mér fannst fóru þessar hátfðir vel fram og voru vel undirbúnar af þeim sem að þeim stóðu. Þvf miður verð ég að segja að mér þótti slæmt að sjá enga unga harmonikuleikara koma fram á þessum hátíðum en að sama skapi gladdi það mig að sjá ungt danspar leika listir sínar í Fannahlíð, reyndar fannst mér að öllum samkomugestum þætti mikið til færni þessara ungu dansara koma. Áhátíðina íSvartaskógi komu harmoniku- leikarar frá Harmonikufélagi Færeyja og léku bæði á tónleikum og fyrir dansi. Ég tel rétt að við athugum að taka upp meiri harmonikusamskipti við Færeyinga og velti upp þeirri hugmynd að bjóða þeim þátttöku í Landsmóti S.Í.H.U. á næsta sumri og sfðan væri athugandi að fara í harmonikuferð til Færeyja en af því gæti varla orðið fyrr en sumarið 2012 en þetta myndi þarfnast nokkurs undirbúnings bæði hér heima og í Færeyjum og svo þarf að kanna ferðatilhögun og kostnað. Þegar þetta er skrifað er það nokkuð Ijóst að ekkertverðuraf unglingalandsmóti á þessu ári þar sem ekkert aðildarfélag sér sérfært að standafyrir mótinu. Ekki tókst að halda mótið f fyrra en þá ætlaði Harm- onikufélag Reykjavíkur að halda mótið en aðsókn var langt undir væntingum. Að sjálfsögðu þykir mér þetta mjög slæmt en stjórn S.Í.H.U. hefur rætt þetta mál og okkar niðurstaða er að leggja þetta mál fyrir aðalfundinn í haust þar sem að fund- urinn taki afstöðu til þess hvort og hvernig eigi að halda þessi mót eða þá að ákveða að leggja þetta mótahald niður. Okkur stjórnarfólki finnst að það ætti að vera hverju félagi kærkomið verkefni að standa fyrir svona móti og fátt betra sem félögin gætu gert til þess að laða unga fólkið að harmonikunni ogfélögunum en við virðumst vera að mestu ein á báti hvað þessa skoðun varðar. Aðatfund- urinn verður haldinn þann 18. september 2010 í boði Félags harmonikuunnenda í Reykjavík, fundurinn verður haldinn á Hótel Örk f Hveragerði. Fyrir nokkru hafa verið send út fundargögn og upplýsingar um gistingu ogaðratilhögun ogégvona að aðsókn verði góð að fundinum og fólk tilbúið til að ræða málin og ákvarðanir sem geta orðið félögunum og sam- bandinu til góðs. Á næsta sumri verður haldið landsmót á Hellu á Rangárvöllum og mun Harmoniku- félag Rangæinga sjá um framkvæmd þess. Ég veit að undirbúningur gengur vel og verður landsmótið kynnt á aðal- fundinum. Égtrúi að félögin mæti þartil móts með metnaðarfulla dagskrá sem áður og hvet sérstaklega unga fólkið sem er að leika á harmoniku að mæta því að það er framtíðin í íslenskum harmoniku- leik. Það er farið að líða að hausti og vetrar- starf félaganna að hefjast. /Vlér þykir líklegt að undirbúningur undir landsmót vegi þar þungt. Við sem erum í stjórn S.Í.H.U. þökkum fyrir ánægjulegt harmonikusumar og von- umst til þess að vetrarstarf félaganna verði bæði gott og gæfuríkt. Jónas Þór Jóhannsson formaður S.Í.H.U. r Jialmonikusafn ÁSGEIRS S. SIGURÐSSONAR býður öldruðum harmonikum farsælt ævikvöld á Byggðasafni Vestfjarða, ísafirði. Símanúmer: 456-3485 og 863-1642 j

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.