Harmonikublaðið - 01.09.2010, Page 7
Sagnfrædilegtyfirlit um íslenska keppendur
í harmonikuleik, hérlendis og erlendis
Hilmar Hjartarson
Til eru nokkrar heimildir um
þátttöku íslendinga í harm-
onikukeppnum hérlendis
og erlendis. Strax í 2. tölu-
blaði 2. árgangs Harmonik-
unnar (1986-2001) stingur
greinarhöfundur uppá að
íslenskir harmonikuunn-
endur fari að velta fyrir sér
að hefja keppnir í harm-
onikuleik hérlendis til að
auka áhugann fyrir hljóð-
færinu. Fyrirmyndina varað
finna frá kynnum slíkra
keppna í Noregi. En áður en ég hefst handa
meðfrekari upplýsingarviléggeta þessað
elstu heimildir um harmoniku á íslandi eru
frá 1845, að þýskur maður að nafni Stillhoff
sem varskipstjóri á póstflutningaskipi hafi
leikið á harmoniku á dansleik í Reykjavík
það ár. Sagan segir að hann hafi byrjað
siglingartil íslands árið 1841, leikið á harm-
oniku árið sem fyrr segir en póstskipið far-
ist með manni og mús undir Snæfellsjökli
árið 1857. (Heimildir: Lýður Björnsson sagn-
fræðingur, 1. tölublað 1992- 93 Harmon-
ikan)
Elsta heimild sem fundist hefur um harm-
oniku f höndum íslendings hérlendis erað
finna í bókinni íslenskir sagnahættir og
þjóðsögur VII, eftir Guðna Jónsson, þar
segirafmanni nokkrum, Brandi Ögmunds-
syni frá Kópsvatni að hann hafi leikið á
harmoniku þjóðhátíðarárið 1874. Einnig
segir f bókinni að hann hafi lærtafsjálfum
sér að leika á harmonikuna.
Þrátt fyrir að harmonikan hafi náð mikilli
útbreiðslu á íslandi eftiraldamótin 1900 til
dagsins f dag hefur aldrei myndast hefð
fyrir keppnum í harmonikuleik. Keppnir eru
þó ekki alveg óþekktar hérlendis þegar
grafið er eftir heimildum, langar mig því að
draga fram í dagsljósið nokkrar upplýsingar
um slíkar keppnir hér, stað og stund ásamt
nöfnum þeirra vinningshafa er komu þar
við sögu. Einnig þátttöku íslendinga í
keppnum erlendis. Of langt mál yrði að
nefna alla þátttakendur að þessu sinni en
heimildirnar eru sóttar í tfmaritið Harm-
onikan (1986 -2001) þar sem finna má
gleggri oggreinarbetri upplýsingar.
Fyrsta keppni í harmonikuleik fór fram í
Reykjavík, Timburverslun Árna Jónssonar,
þann 12/031939 og var kölluð harmoniku-
samkeppni. Hún var haldin á vegum „Félags
Harmonikuleikara Reykjavík" sem stofnað
var árið 1936. Verðlaun hlutu þessir: Bragi
Hlíðberg 1. verðl. bikar og
peningur, Halldór Einarsson
2. verðl. peningur, ogStefán
Lyngdal 3. verðl. peningur.
ÍStokkhólmi árið i946tekur
Lýður Sigtryggsson frá
Akureyri þátt í samkeppn-
ismóti með þátttakendum
frá öllum Norðurlöndunum
og hreppir fyrstu verðlaun
með titilinn „Harmonik-
umeistari Norðurlanda
1946“. Svo gerist það að
Grettir Björnsson heldur
utan til náms, fór til Vancouver í Kanada
1952, lærði þar hjá sænskum tónlistarkenn-
ara að nafni Alf Carlsson. Sá fékk Gretti til
að taka þátt í tónlistarsamkeppni meðal
margvíslegra hljóðfæraleikara, söngvara
ogfl. (hef ekki tímasetningu á hvenæreftir
1952). Grettir vann keppnina með yfir-
burðum. Dómarinn veitti Gretti hæsta stig
yfir alla aðra. Hann lék píanóverk, Sonatfnu
eftir Kuhalu. Nú líða heil 60 ár milli móta á
íslandi, þartil Félag harmonikuunnenda í
Reykjavík blæs til hæfileikakeppni í Loft-
kastalanum við Seljaveg þann 17. apríl 1999.
Keppt var f tveimur flokkum, 11-15 ára og
16-25 ára. Sigurvegari 11-15 ára var Oddný
Björgvinsdóttir 14 ára frá Akranesi, verðl.
35.000 kr. í öðru sæti Helga Kristbjörg Guð-
mundsdóttir 11 ára frá ísafirði og f þriðja
sæti lenti Guðbjörn Már Kristinsson úr
Reykjavík 15 ára. í flokki 16-25 ára sigraði
Matthías Kormáksson 17 ára úr Kópavogi
sem hlaut 35.000 kr. verðl. í öðru sæti var
Svanur Bjarki Úlfarsson frá Stóru Mörk
Vestur Eyjafjöllum og í því þriðja Ester
Rögnvaldsdóttir 16 ára Hnífsdælingur.
Aðeins voru veitt pen-
ingaverðlaun fyrir efstu
sætin. Dómarar voru
Sigurður Alfonsson ,
Reynir Jónasson og
Grettir Björnsson
Reykjavfk, Einar Guð-
mundsson frá Akureyri
og Hafsteinn Sigurðs-
son úr Stykkishólmi.
Nú bregðum við okkur
erlendis, þegar hinn
ungi vinningshafi Matth-
ías Kormáksson tekur
þátt í Evrópumeistara-
keppni í nóvember 1999
(Frosini Grand Prix) sem
fór fram í smábænum
Espo nærri Helsingfors Finnlandi. Þá voru
liðin 53 ár frá því að Lýður Sigtryggsson
keppti í Stokkhólmi. Matthías lagði á sig
langt ferðalag og var einbeittur f sinni
ákvörðun. Aðrir þátttakendur voru frá Sví-
þjóð, Noregi, Finnlandi og Rússlandi.
Sænski keppandinn vann til fyrstu verð-
launa, bikar og skjal, aðrir geisladisk og
skjal. Matthías braut þar með blað í íslenskri
harmonikusögu sem fyrsti þátttakandi í
Evrópumeistarakeppni. Dómarar voru
Seppo Lankinen, OlegSharovogyfirdómari
Lars Ek.
Nú er skammt stórra högga í milli, því árið
eftir í nóvember 2000 tekur Grettir Björns-
son þátt í Frosini Grand Prix sem fram fór í
Hammarstrand Svíþjóð. Þátttakendurvoru
fyrir utan Gretti frá Danmörku, Svíþjóð,
Finnlandi, Noregi og Rússlandi. Evrópu-
meistaratitilinn vann að þessu sinni Alex-
ander Satsenko frá Rússlandi, 16 ára piltur,
hann sýndi hreint ótrúlega snilld, verðlaun
blómvöndur bikar og skjal. Aðrir blómvönd
og skjal.
Síðasta keppni hérlendis til þessa er svo
Harmonikumeistarinn 2010 íTónlistarskóla
Garðabæjar 17/4, sem fjallað var um nánar
í síðasta blaði.
Þetta yfirlit gefur smá hugmynd um fyrri
afrek okkar íslendinga í keppnum sem
tengjast harmonikunni. Hér er reyndar
stiklað á stóru, en eins og sagt er áður í
greininni liggja mun nánari heimildir í
tímaritinu Harmonikan. Éghefþá bjargföstu
trú ogvon að nú séu að verða kaflaskil hvað
varðar keppnir af þessum toga hérlendis.
Það skulum við vona.
Samantekt
Hilmar Hjartarson
Verkstæði til alhliða viðgerða
á harmonikum að
Sóleyjarima 15, Reykjavík.
Hafið samband við Guðna
í síma 567 0046.
Harmonikuþjónusta
Guðna
7