Harmonikublaðið - 01.09.2010, Síða 8

Harmonikublaðið - 01.09.2010, Síða 8
Bréftil blaðsins UNGMENNALANDSMÓT Að beiðni stjórnar S.Í.H.U. ákvað Harmonikufélag Reykjavíkur að taka að sér ungmennalandsmót 2009. Þar sem komið var fram í maí þegar þetta var ákveðið var ekki um annað að ræða en setja í gírinn og eftir nokkrar bílferðir austur fyrir fjall og víðar var stefnan sett á Seltjarnarnes, allt var tilbúið á réttum tíma og gátum við ekki annað en verið stolt af allri þess- ari vinnu þvfvið ætluðum svo sann- arlega að gera þetta með gleði og glæstum brag og hlökkuðum mjög til að fá nú loksins að njóta afraksturins, en það var bara það eina sem við áttum eftir, nema hvað? Þegar skráningu ungmenna laukkom íljós að aðeins 22 nem- endur höfðu látið skrá sig, þótti okkur þá í samráði við S.f.H.U. þetta vera allt of fáir þátttakendur og aflýstum mótinu. Endalaust er hægt að velta sér upp úr orsökum þess af hverju ekki voru fleiri nemendursem létu skrá sig, margir töldu svínaflensu, kreppu og eitthvað fleira vera ástæðuna. Það má vel vera en mér fannst áhugaleysi kennara koma mér mest á óvart svo ég tali nú ekki um þann kennara sem vareinn af upphafs- mönnum að því að halda ungmennalands- mót, hann ætlaði ekki að senda einn einasta nemanda og finnst mér skömm að því, ef hann hefði komið með sama fjölda nem- enda og þegar hann hefur sjálfur staðið fyrir þessum mótum þá hefði mótinu sennilega ekki verið aflýst. Ekki var hjá því komist að sambandið bæri einhvern kostnað af þessu brölti þó svo það hafi ekki verið nema brot af kostnaðinum, fyrir utan alla vinnuna sem búið var að leggja í þetta. Þó svo að ég hafi verið sammála því á sfnum tíma að halda sérstök ungmennalandsmót þá er ég það ekki f dag, við eigum að hafa unglingana með okkur, það hlýtur að vera hægt að gera landsmótin meira aðlaðandi fyrir unga fólkið og gefa þeim meiri tíma, ég tala nú ekki um þegarfélögunum innan sambands- ins hefur fækkað. Við eldra fólkið sem jafn- vel sum hver erum búin að spila á hverju einasta landsmóti sem haltíið hefurverið frá upphafi erum kannski orðin svo föst í dellunni aðviðvíkjum baraekkifyrirneinum. Hvernig er hægt að efla unglingastarf innan aðildarfélaganna ef við ætlum ekki að hleypa þeim að borðinu. Gerum landsmótin eftirsóknarverðari fyrir unga fólkið og gefum þeim almennilegt færi á þessum stærsta viðburði okkarsem landsmótin sannarlega eru. Landsmótin eru orðin svona nokkurs- konar öldungalandsmót, við verðum á ein- hvern hátt að snúa dæminu við og fá ung- mennin með okkur annars líða ekki mörg ár þangað til þetta lognast út af. Við eldra fólkið höfum reynsluna sem unga fólkið vantar, gefum þeim færi á að öðlast reynslu með því að hvetja þau og skapa þeim tæki- færi. Við getum ekki ætlast til þess að ung- lingarnir hafi sama áhuga t.d. á gömlu döns- unum og við sem eldri erum og lærðum að dansa þá á yngri árum, þess vegna verðum við að skapa þeim ráðrúm á þeirra eigin forsendum. Landsmótin hafa öllverið með sama eða svipuðu sniði frá upphafi, er ekki komin tími til að hrista eitthvað upp í þessu. Landsmótin eiga að vera vettvangur fyrir okkur öll og ekki síst fyrir ungmennin okkar. Mér finnst mjög leitt að ungmennalands- mótið var ekki haldið 2009 sérstaklega vegna þeirra ungmenna sem voru búin að skrá sig til þátttöku. Ásíðasta aðalfundi S.Í.H.U. sem haldinn var f Svartaskógi 2009 var samþykkt af fund- armönnum að feia stjórn sambandsins að standa að kynningu á harmonikunni í leik- og grunnskólum vftt og breitt um landið. Þann 28. nóv. 2009 fengu formenn aðildarfélaganna bréf frá stjórn sambandsins þar sem segir m.a.: Stjórn samb. er það Ijóst að þetta verkefni verður aðeins unnið af aðildarfélögunum hverju á sínu svæði. Þessu erum við í H.R. hjartanlega sam- mála. Við fórum því af stað að leita fyrir okkur hvernig best væri að standa að þessu. Égfrétti afverkefni sem er í gangi í Breiðholti sem heitir KYN- SLÓÐIRNAR SAMAN sem gengur út á það að leiða saman kynslóðirnar á sem flestum sviðum þjóðlífsins. Við gerðum síðan samkomulag við Guðrúnu Jónsdóttir forstöðumann félagsstarfsins í Gerðubergi en þaðan erverkefninu stjórnað, okkar þáttur heitir DRAGSPILIÐ og DÆG- URLÖGIN. Síðan þá erum við búin að heim- sækja 15 leikskóla þarsem okkurhefurverið ótrúlega vel tekið og búið að panta okkur á fleiri, ennfremur er fyrirhugað að halda afa og ömmu dansleik á leikskólunum í haust og Ijóst er að framhald verður á þessu strax íseptember. Þarsem leikskólarnirf Reykja- vfk eru á milli 80-100 þurfa fleiri að koma að þessu dæmi. Þetta er krefjandi og skemmtilegt verkefni og ekki vantar áhug- ann hjá hlustendum. Vona að þessi orð verði hvatning til annarra aðildarfélaga. Á þessum sama aðalfundi var dreift umfangs- miklum plöggum sem nefnd á vegum S.Í.H.U. hafði unnið að í langan tíma og lagt metnað sinn f að gera sem best úr garði, þessum plöggum var troðið ofaní kokið á fundar- mönnum 1, 2 og 3 til afgreiðslu. Það er mín skoðun að fundarmenn verði að fá svona gögn send með fundarboði svo hægt sé að kynna sér þau af einhverju viti, það er margbúið að beina þessum tilmælum til stjórnar. Reynum nú að læra eitthvað af reynslunni. Ég óska S.Í.H.U. alls hins besta í framtíð- inni. Gudrún Guðjónsdóttir formaður Harmonikufélags Reykjavíkur. Harmonikuviðgerðir Tek að mér viðgerðir á harmonikum Gunnar Kvaran sími: 824-7610

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.