Harmonikublaðið - 01.09.2010, Page 12

Harmonikublaðið - 01.09.2010, Page 12
Kveðja úrSkagafirði Aðalsteinn ísfíörð og Jón Gíslason fóru á kostum Starfsemi Félags harmonikuunnenda í Skagafirði, FHS, var talsverð á síðastliðnu ári. Má þar nefna „Tekið í belg“ og heim- sókn stórsöngvarans Ragnars Bjarnasonar, en þessir tónleikar fengu umfjöllun í maí- blaðinu 2009. Dagsetning harmonikudags- ins 2010 var óheppileg fyrir félagið að þessu sinni. Sæluviku Skagfirðinga lauk sunnudaginn 2. maí en mikil dagskrá var í boði atla vikuna og flestir búnir að fá nægju sína af menningu í bili. Haldinn var þó harmonikudansleikur í félagsheimilinu Ljósheimum á umræddum harmonikudegi frá kl. 20:00 - 24:00. Annað var ekki íboði þann daginn. Á haustdögum 2009 kom upp sú hugmynd að halda skemmtun sem byggðist á fréttum, sögum og smá slúðri úr Skagafirði árin 1959 • 1960 ásamt vinsælum dægurlögum frá þeim tíma.Tónlistarflutninguralluryrði f höndum heimamanna og ráðinn yrði sér- stakur sögumaður sem sæi um lesinn texta á sýningunni. Fengum við til liðs við okkur tvo söngvara, þau Dagbjörtu Jóhannes- dóttur og Stefán Jökul Jónsson, ásamt Birni Björnssyni f.v. skólastjóra sem tók að sér sögumennsku f sýningunni. Hljóðfæraleik- arar voru eftirtaldir: Aðalsteinn ísfjörð, Jón Gíslason, Rögnvaldur Valbergsson, Guð- mundur Ragnarsson og Kristján Þór Han- sen. Æfingar hófust í janúar sem og heim- ildaöflun sögumanns. Hann fléttaði saman ýmsar sögur og fréttir við lögin sem flutt voru þannig að úr varð heilstæð sýning. Heiti sýningarinnar var ákveðið „Manstu gamla daga, mörg þá gerðist saga“ og opn- unarlag hennar samnefnt lag með Alfreð Clausen. Sýningar hófust 11. maí 2010 í Bifröst á Sauðárkróki. Þar voru haldnar þrjár sýn- ingarogein íHöfðaborgá Hofsósi. Aðsókn var mjög góð og fór langt fram úr björtustu vonum. Óskað var eftir þessum skemmti- legu tónleikum á síldarævintýrið á Siglufirði 28. júlf s.l. Björn Björnsson sögumaður samdi í því tilefni nýjan texta sem átti við Siglufjörð á þessum árum. Undirtektirvoru mjöggóðarogflytjendurfengu mikið hrós fyrir góðan og skemmtilegan flutning. Dag- björt Jóhannesdóttir söngkona var fjarri góðu gamni íþessari ferð en íhennarstað kom Ingunn Kristjánsdóttir sem leysti sitt hlutverk mjög vel af hendi. Laugardaginn 14. ágúst var haldið málþing á Ketilási í Fljótum í Skagafirði þar sem fjallað var um skáldkonuna Guðrúnu frá Lundi. Um kvöldið varsíðan haldinn harm- onikudansleikur í anda liðinna daga í Fljótum. Félagar úr FHS sáu um tónlistar- flutning við góðar undirtektir viðstaddra. Jónsmessuhátíð harmonikuunnenda í Húnaveri 2010 í umsjá HUH og FHS Félög harmonikuunnenda í Skagafirði og Húnavatnssýslum héldu sína árlegu fjöl- skylduhátíð harmonikuunnenda í Húnaveri um Jónsmessuna, 25. - 27. júní s.l. Þetta mun vera tólfta árið sem þessi hátíð er haldin. Fór hún í alla staði vel fram. Dans- leikur var haldinn á föstudagskvöldið þar sem hinn landskunni GeirmundurValtýsson lékfyrir dansi á harmoniku. Fjölbreytt dag- skrá vará laugardeginum sem nefnd hefur verið á undanförnum árum „Tónleikar, söngur, glens og gaman.“ Ýmsir listamenn stigu þar á stokk og má þar nefna: Tvíbur- arnir frá Öxl, Dagmar og Sigurjón Guð- mundarbörn sem eru 12 ára, léku á klarin- ettu og harmoniku, Máney Sól Jónsdóttir 10 ára söng nokkur lög við undirleik afa síns, Ómars Skarphéðinssonar sem lék á harmoniku. Helga Guðrún Jónsdóttir söng nokkur lög við undirleik föður síns Jóns Gíslasonar. Félagar úr FHS fluttu nokkur lög úr sýningunni „Manstu gamla daga, mörg þá gerðist saga.“ Einar Guðmundsson lék einnig á harmoniku með hljómsveitinni hluta úr dagskránni. Að lokum lék 8 ára sonur Einar, Einar Bjarni Einarsson á harm- oniku. Var þessi dagskrá vel lukkuð og fékk mjög góðar undirtektir hjá áheyrendum. Dansleikur var haldinn um kvöldið frá kl. 10:00 - 02:00. Þar léku þrjár hljómsveitir, tvær frá FHS og ein sem tengdist HUH. Veður var gott þessa helgi og hátfðin fór hið besta fram í hvívetna. Vonum við að allir hafi komist heilir heim og mæti glaðir á næsta ári. Viljum við þakka öllum þeim sem lagt hafa okkur lið á árinu sem og öllum þeim sem sóttu viðburði félaganna. Lifið heil. F.h. FHS og HUH Gunnar Ágústsson Hljómsveit F.H.S. 12

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.