Harmonikublaðið - 01.09.2010, Side 14
Sumarhátíðin „Nú er lag“ í Árnesi
Leikið affingrum fram á tjaldstæðinu íÁrnesi
Stjórn og skemmtinefnd félags-
ins hófundirbúning fyrir hátíð-
ina um hávetur. Nokkur óvissa
var um það hvort við fengjum
að vera áfram í Árnesi. Friðjón
fékk þetta staðfest hjá Begga
svo okkur létti nokkuð. í sum-
arbyrjun ákváðum við að fá
erlendan harmonikusnillingog
eftir nokkrar þreifingar varð
norskur snillingur fyrir valinu,
Flávard Svendsrud.
Ég var svo heppin að ná sam-
bandi við Guðrúnu Gunnars hjá
RÚV um að koma í heimsókn
með Hávard Svendsrud á föstu-
dagsmorgun í þáttinn Samfé-
lagið í nærmynd. Hann spilaði í upphafi
þáttar og svo ræddi hún við okkur bæði og
samtalinu lauk með lagi frá Hávard. Þetta
varð hin fínasta auglýsingfyrir mótið, tón-
leikana og markaðinn.
Friðjón formaður skemmtinefndar smalaði
saman dansspilurum og einnig buðu
nokkrir sig fram sem við kunnum vel að
meta. Dagskráin var hefðbundin enda hefur
hún reynst okkur vel. Veðurspáin var svo-
lítið óákveðin fyrir helgina en við vorum
heppin í Árnesi. Fyrstu gestirnir komu í
Árnes á þriðjudegi. Þeim fjölgaði svo óðum
á harmonikuættarmótið. Stór hópur var
kominn síðdegis á föstudag og um kvöldið.
Fleiri bættust við á laugardag. Margir úr
nágrenninu og frá höfuðborgarsvæðinu
komu Ifka á staka viðburði.
Hátíðin hófst með æfingadansleiká föstu-
dag. Dansfætur og hljómflutningstækin
voru fínstillt. Nokkrar hljómsveitir stigu á
stokk og dansinn dunaði við tónana til
klukkan tvö. Einnig var spilað fram eftir
nóttu við pottinn hjá tjaldsvæðinu.
Á laugardagsmorgun vöknuðu allir við sól
og blíðu. Fyrstu harmonikutónarnir fiugu
einnig af stað, eitt lag hér og annað þar,
Ijúft meðlæti með morgunkaffinu.
Hápunktur hátíðarinnar var tónleikar
Hávards Svendsrud á laugardag. Friðjón
formaður skemmtinefndar setti hátíðina
formlega. Fyrir tónleikana léktólf ára stúlka,
Alma Katrín Einarsdóttir, Zardas á fiðlu, við
mikinn fögnuð áheyrenda og vildu þeir
helst fá fleiri lög. Við óskuðum eftir blönd-
uðum tónleikum hjá Hávard ogtöldum að
þeir myndu falla vel ífjöldann. Hávard sýndi
marga snilldartakta af sinni einskæru Ijúf-
mennsku. Hann lékfjölbreytt lögfráýmsum
löndum. Nánar verður greint frá tónleik-
unum annars staðar í blaðinu. Eftir að
Hávard hafði tekið við þakkarorðum og
gjöf frá F.H.U.R. var komið að því að heiðra
félaga. Ég vitna beint í orð undirritaðs for-
manns við það tækifæri.
„Kæru félagar og góðir gestir!
Fyrir hönd stjórnar Félags harmonikuunn-
enda í Reykjavík vil ég þakka ykkur allan
stuðningogvinnu fyrir félagið. Margir eru
tilkallaðir og því er erfitt að velja þegar á
að heiðra félaga. Að þessu sinni tókum við
aðallega mið af formennsku í félaginu
ásamt fleiri þáttum.
Ég vil biðja Jón Inga Júlíusson og frú ásamt
Friðjóni Hallgrímssyni og frú að stíga á
sviðið. Frúnum þeirra viljum við þakka
þann tíma sem þær hafa þurft að sjá af
þeim með smágjöf. Það vill svo til að báðir
þessir góðu félagar eru verslunarmenn og
því á vel við að heiðra þá nú. Báðir hafa
starfað af óeigingirni fyrir Félag harmoniku-
unnenda f Reykjavík.
Jón Ingi hefur sinnt formennsku um sjö ára
tfmabil og auk þess hefur hann ótal sinnum
spilað fyrir félagið á dansleikjum og
skemmtunum innanlands sem utan, því er
hann hér með gerður að heiðursfélaga
Félags harmonikuunnenda í Reykjavík.
Friðjón þekkja allir enda er hann hástökkv-
arinn sem hefursinntformennsku í um nfu
ára tímabil og er methafi í formennsku
skemmtinefndar í 21 ár og verður að öllum
líkindum áfram á þeim stað.
Hann hefur líka verið ólatur að
spila innanlands sem utan.
Friðjón hefur verið driffjöður f
mörgum málefnum og verður
það örugglega áfram. Hann er
hér með gerður að heiðurs-
félaga Félags harmonikuunn-
enda í Reykjavík.
Heiðrum þessa góðu félaga
með því að rísa úr sætum og
klappa fyrir þeim. Takkfyrir og
góða skemmtun !“
Eftir kaffið var svo samspil á
svæðinu og komu þá margir
með einn besta vininn á mag-
anum, ýmist harmoniku eða
gítarogAlma Katrín með fiðluna við vang-
ann. Upphófst nú skemmtidagskrá undir
berum himni, sungið og spilað, spjallað
og spaugað. Svona eiga útihátíðir að vera.
Grillilmur fyllti svo loftið um kvöidmatar-
leytið og víða voru veisluföng. Og enn var
víða spilað og sungið alveg þar til balltím-
inn nálgaðist. Þá þurfti fólk að taka sig til
með rakstri og varalitun. Dansleikurinn
byrjaði klukkan hálf tíu og Hávard lék þar
einnig fyrir dansi og kunnu dansgestir vel
að meta taktinn hans og fjölbreytni í laga-
vali. Fleiri stigu á stokk það kvöldið við
mikinn fögnuð viðstaddra.
Sunnudagsmorgunn rann líka upp heiður
og fagur. Morgunmatur var snæddur undir
morgunsól með harmonikutónum. Ekki
amalegt að fá lifandi tónlist með morg-
unmatnum. Eftir hádegið var komið að
markaðnum en tímasetningin var aðeins á
reiki en það kom ekki að sök. Margir komu
að skoða söluvarning og harmonikur.
Markaðurinn vartil klukkan hálf fjögur og
þá var komið kaffi hjá flestum. Eftir kaffið
hófst samspil og söngur á svæðinu en
undirrituð og eiginmaður hennar fóru með
Hávard að Gullfossi og Geysi.
Hátíðahlaðborð að hætti Begga brást ekki
ogfengum við Ijúfa og snilldarharmoniku-
tóna með matnum, frá Reyni Jónassyni,
Hávard Svendsrud og sfðast en ekki síst
14
Hávard Svendsrud
Alma Katrín Einarsdóttir