Harmonikublaðið - 01.09.2010, Page 15

Harmonikublaðið - 01.09.2010, Page 15
frá Flemming Valmundssyni. Var þessum hljóðfæraleikurum vel fagnað. Nokkrir brandarar og limrur flugu. Dansleikurinn tókst líka með ágætum og margir biðu við dyrnar líkt og fyrri kvöld og Friðjón sleit svo mótinu um eittleytið. Rigningin kom svo á mánudags- morgun og flestir héldu heim upp úr hádegi en aðrir seinna dags. Svæðið var mjög fínt um sexleytið og er sómi að umgengni okkarfólks. Hávard hafði orð á því að það hefði verið í góðu lagi fyrir hann að koma með konuna og syni þeirra á þetta mót með þessu fólki og ..glöggt er gestsaugað" segir í gömlum málshætti. Ég vil að lokum þakka ykkur öllum kærlega sem komuð að mótinu með einum eða öðrum hætti. Biðykkurvel að lifa ogvonandi hittumst við sem oftast f Árnesi eða annars staðar. Elísabet H Einarsdóttir formaður F.H.U.R. Dansinn dunar íÁrnesi Myndirnarsem fylgja greininni eru teknar af Sigurði Harðarsyni. Rekur hljóðver í Noregi Hann heitir Sigurður Helgi Jóhannsson og flutti til Noregs í febrúar 2009. Orsökin var ekki einungis íslenska kreppan, heldur langaði hann bara að prófa annað land, þvf varð Noregur fyrir valinu. Þar er líka svo fallegtsegirSigurðurogveðrið ersvo gott á sumrin og miklu heitari en heima á íslandi. Siggi eins og hann er venjulega kallaður var með rekstur ICR hljóðvers og útgáfu á geisladiskum á íslandi og tók með sér allan búnaðinn til Noregs. Nú hefur hann þegar tekið upp einn geisiadisk í Noregi, með hijómsveit sem hann hefur stofnað og heitir Sigges Orkester. Með honum eru Ivar Löken sem leikur á tvöfalda (diatóniska) harm- oniku, Björn Haraldsson á trommur og Jóhann sonur Sigurðar á gítar, en hann fór utan í september, en er aftur farinn heim til íslands tímabundið. Svo er auðvitað Siggi sjálfur sem spilar á bassa. Maður hættir aldrei að fikta við þetta segir Siggi, hef fyrst og fremst gaman af þessu, svo gefur þetta smá aukapening í vasann. Ég hef gefið út um 10 titla heima á íslandi síðustu 15 árin, búinn að vera í þessum Sigurður Helgi Jóhannsson í hljóðverinu heima í Noregi bransa alla ævi. Vann eitt sinn við þáttagerð í sjónvarpi og lærði að taka kvikmyndir og klippa þær til. Síðan hef ég gert öll mín myndbönd sjálfur reglulega, hægt er að skoða þau inná (www.youtube.com/sonny- holy) þar er hægt að skoða flest mín mynd- bönd þar á meðal eitt sem ég gerði með Sigges Orkester. Ég hef hug á að setja upp gott hljóðver hér í Noregi bætir Siggi við, ásamt því að geta boðið uppá tónlistarmyndbandagerð ef menn vilja, svo er ég klár að gera öll umslög á geisladiskana og auglýsingar til prentunar og uppsetningar. Einnig er ég með útbúnað til að færa gamlar plötur og snældur yfir á geisladiska og ætla mér að nálgast forrit og búnað til að færa gömul VHS myndbönd yfir á DVD fyrir fólk. Hef semsagt hugsað mér að vera með það góðan búnað til að geta gert allt í sambandi við hljóð og mynd sem menn vilja. Þá afrita ég alla diskana og hanna umslög sjálfur. Hægt er að hafa samband við Sigga til að fá verð í pakka, upptöku, tónlistarmynd- band, umstagahönnun ogafritun gagna og fjölda eintaka. Siggi er búinn að vera í mörgum hljómsveitum hér heima, sú þekkt- asta er Afabandið sem er nánast harmoniku- hljómsveit er hefur starfað frá árinu 1996. Svo einnig í Kúrekum norðursins sem fyllir nú 25 ár. Báðar þessar hljómsveitir hafa gefið út nokkra geisladiska hver. Sigurður segir að lokum að hann viti ekki hve lengi hann endist í Noregi, en ætlar að sjá til hvernig gengur að reka þetta útgáfufyrir- tæki. Fyrir þá sem vilja er hægt að hafa samband við hann í síma 93868370, eða senda tölvupóst á aktionmann@hotmail. com og komast að samkomulagi um upp- tökur eða útgáfu á geisladiskum. Endursagt Hilmar Hjartarson 15

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.