Harmonikublaðið - 01.09.2010, Page 16

Harmonikublaðið - 01.09.2010, Page 16
Pétur Bjarnason: Saga harmonikunnar - síðari grein Harmonikan á íslandi í upphafi þessa greinarkorns skaltekið fram að hér er alls ekki um sögu eða sagnfræði að ræða ogvarla heillega frásögn. Aðeins er gerð tilraun til að raða sama í stutta grein þeim heimildum, eða ágripi þeirra, sem ég hef haft aðgang að um harmonikuna hér á landi. Ég hef notið við það aðstoðar ýmissa góðra manna sem flestir vita mun meira um þetta efni en ég. Það erfullkomlega verðugt verkefni fyrir sagn- fræðinga að gera þessu betri skil og fylla þar með í tónlistarsögu þjóðarinnar, en löngum virðist sem harmonikan hafi ekki verið jafn hátt skrifuð í henni eins og hin hefðbundnu klassisku hljóðfæri. Ekki er ekki að fullu Ijóst hvenær harm- onikan barst fyrst til fslands. Blaðið Harm- onikan greinir frá þýskættuðum manni, Stillhoff að nafni, sem mun hafa leikið á harmoniku á dansleikjum f Reykjavík um eða fyrir 1845. Árið 1866 er vitað að hús- freyjan að Lækjamóti íVíðidal, frú Margrét Eiríksdóttir, leikur á harmoniku, sér og öðrum til yndisauka. í Tónlistarsögu Reykjavíkur er þess getið að um 1870 hafi harmonika verið orðin algeng á dansleikjum. Árið 1874 lék Brandur Ögmundsson frá Kópsvatni á harmoniku og söng jafnframt á þjóðhátíð sem haldin var í Biskupstungum. Franskir sjómenn sem hingað komu er sagt að hafi haft með sér harmonikur og kynnt þetta hljóðfæri hér, en engar heimildir hef ég þó fundið er styðja það. Einnig er vitað með vissu að með norskum hvalveiðimönnum á Vest- fjörðum og Austfjörðum í lok 19. aldar og fram á þá 20. komst allmikið af diaton- iskum harmonikum í eigu íslend- inga. Benedikt jr-JMjónsson á Auðnum skrifaði nótnabókfyrir harmoniku árið 1870, sem nefndist „Harmonika nótur - Sálmalög". Þar er sérstök merking um hvort draga skuli belginn sundur eða ýta honum saman. Einnig eru tölurnar 1-8 sem merkja númer nótna á harmonikuborðinu, en þarna mun áttvið „einfalda" harmoniku sem var með 8 nótum í diskant en aðeins tveimur í bassa. í bókinni kemur fram að Benedikt fékkst við viðgerðir á harmon- ikum, sem bervitni um að hljóðfærið hefur verið komið í eigu manna þar um slóðir alllöngu fyrr. Fullyrða má að diatonisku harmonikurnar hafi verið notaðar á dansleikjum á síðari hluta 19. aldar og allt fram undir miðja sfð- ustu öld, en þá hljóðnaði yfir þeim í nokkra áratugi. Vinsældir þeirra voru miklar, fátt varum önnurhljóðfæri, þærléttarogþægi- legar í flutningum og tekið hraustlega á þeim á dansleikjum. Sagan segir að á balli á Hesteyri hér áður fyrr hafi slitnað sundur tvær harmonikur á sama ballinu. „Nú fór í verra!“ sagði spilarinn þegar sú síðari fór ogþarmeð laukdansleiknum. Spilatíminn gat verið langur, því ballferðin gat staðið frá mjöltum til mjalta, en hluti af þvf fór í að komast á staðinn og aftur heim. Voru harmonikuleikararnir yfirleitt sjálf- menntaðir og spiluðu eftir eyranu. Fylgdi þessu aukin fjölbreytni f skemmtanalífi landans sem þó féll ekki öllum í geð sbr. eftirfarandi klausu úr Þjóðólfi árið 1901: „Því miður mun óhætt mega fullyrða, að margtafhinu yngra fólki og þó einkum hinu lítilsigldara, svosem allmargtvinnufólk og lausgangararafýmsu tagi, sé upptekið afdansleika-vafstrinu og harmoniku-garginu. Slíkt fólk væntir sunnudaganna og yfirhöfuð allra helgra daga með hinni sárustu óþreyju, þvívana- lega eru skrípaleikar þeir, er „böll" nefnast, haldnir hingað og þangað í kyrnum og klefum þessa bæjar hvert helgidags- jón Þórðarson frummótasmidur á Reykjalundi var einn fjórmenninganna sem smíðuðu Tónalín. Hann erhérmedsitteintak, sem hann á ennþá Mynd: Pétur Bjarnason kvöld." Oft þurftu dansspilarar að ferðast fótgangandi um langan veg, yfir fjöll og firði, fara á hestbaki eða sjóleiðis með harmoniku sína í poka á bakinu. Ekki fengu þeiralltaf há laun fyrirspilamennskuna, ef þá nokkur. Dæmi voru um að fyrir spila- mennsku mestalla nóttina fékkst einn kart- öflupoki. Ætla má að harmonikan hafi verið aðal dansleikshljóðfæri íslendinga fram til 1940 og tóku menn tónlistina upp af grammófónplötum, hlustuðu á þær og spiluðu svo eftir eyranu. Bókin Fiðlur og tónmannlíf íSuður-Þing- eyjarsýslu segir frá þvf að harmonika var notuð þarvið messur. „Þá kom harmonikan og hljómurinn" og þrátt fyrir fábreytta tóna einraða harmoniku, fannst fólki gott að hafa þessa tónlist undir sálmasöng. Fleiri heimildir benda til þess að diatoniskar harmonikur hafi verið notaðar við messur, t.d. á Austfjörðum. Sem betur fer eru enn fáeinir sem halda tryggð við þetta gamla og góða hljóðfæri og spila sumir ekki á annað. Flestir harmonikuunnendur þekkja til dæmis fjörkálfinn Friðjón Hallgrímsson sem hefur haldið þessu merki hátt á lofti um langt árabil. Krómatfskir hljómar voru fyrst settir í harm- oniku um 1850, en áttu þá eftir að þróast frekar. Hingað til lands komu krómatískar harmonikur líklega ekki fyrr en undir 1920. Jóhannes Jóhannesson segir Norðmann hafa komið að Álafossi með krómatfska harmoniku á árunum 1915-19 og hann keypti sjálfur slíka skömmu síðar f Fálk- anum. Hann var farinn að spila með Bern- burgárið 1924. Fyrsta harmonika Jóhann- esar Jósefssonar frá Ormarslóni var keypt af norskum síldarsjómanni 1924, en þá sagði Jóhannes að til væru fleiri króma- tískar harmonikur á Raufarhöfn, einnig keyptar af Norðmönnum. Sumirsögðu þær hafa verið f öðru hverju húsi þar á þessum árum! Talið er að fyrstu Cassottoharmonikurnar, hafi komið til íslands um áramótin 1948-49. Þetta voru tvær hnappaharmonikur og tvær píanóharmonikur, frá Marino Pigini á Ítalíu. Sigurður V. Jónsson, „Siggi Valli“ keypti aðra píanóharmonikuna. En þærvoru dýrar 16

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.