Harmonikublaðið - 01.09.2010, Qupperneq 18

Harmonikublaðið - 01.09.2010, Qupperneq 18
Viðtalvid Hrein Halldórsson Viðtal blaðsins er ad þessu sinni vid hinn landsþekkta kúluvarp- ara og sérstakan áhugamann um framgang harmonikunnar og harmonikuleik, Hrein Halldórsson. Hvar og hvernig kynntist þú harmonik- unni og hvað varð til þess að þú fórst að spila á harmoniku? Ég var á unga aldri þegar ég kynntist fyrst harmonikuteik og þar var helsta fyrirmyndin Steingrímur heitinn Loftsson sem bjó á Stað í Steingrímsfirði. Ég eignaðist fyrst harmoniku 16 ára gamall og fór að spila mértil ánægju þó getan væri lítil. Þess má geta að á Hrófbergi við Steingríms- fjörð, en þar ólst ég upp, var tónlistin iðkuð af fingrum fram á harmoniku og orgel sem ég stalst stundum í. Fyrsta skiptið sem ég spilaði á harmoniku utan heimilis vará skólaskemmtun á Hólma- vík, þá 13 ára gamall. Þetta fannst mér sjálfum töluvert afrek þar sem ég kunni ekkert að spila en fékk leiðsögn hjá góðum harmonikuleikara á Hólmavík sem gerði það að verkum að ég gat þetta skammlítið og slapp við að fara að marki út af laginu. Næstu árin æfði ég mig án tilsagnar og spilaði stundum á böllum með hljómsveitum sem vildu hafa harmoniku með eða inn á milli. Þegar ég var 18 ára keypti ég mér gítar og lagði harmonikunni að mestu enda ætlaði ég að gerast mikill gítarleikari og komst það langt að ég var orðinn betri á gítarinn en harmonikuna. Til marks um það þá fórégyfirá gítarinn efmigvant- aði hljómavið harmonikuleikinn. Ég átti gítarinn f um tvö ár en áttaði mig þá á þvf að líklega væri harmonikan meira við mitt hæfi og seldi þvf gftarinn og hef ekki iðkað gítarleik síðan. Hvert varð svo framhaldið á tónlistariðkuninni? Um tvítugt fór ég óvænt að iðka íþróttir og þar með varð Iftið úr harmonikuleik vegna strangra æfinga og mikillar vinnu en þarna var ég að vinna í byggingarvinnu og síðan við akstur strætisvagna hjá SVR. Ég æfði talsvert mikið og náði góðum árangri sem varð þess valdandi að árið 1977 varð ég Evrópumeistari í kúluvarpi. Á þessum árum má segja að ég hafi verið með fjöl- miðlana á hælunum og einhverra hluta vegna var ég beðinn að spila lag á harm- onikuna í þætti í sjónvarpinu sem var svo sýndurum áramótin 1977/1978. Þetta varð til þess að ég tók sprett í að æfa argen- tínskan tangó og komst þokkalega frá honum með aðstoð Magnúsar Ingimars- sonar og hljómsveitar hans. Þar með varð Ijóst að éghafði gaman af að spila á harm- oniku og það leið ekki á löngu að mér var boðið í nýstofnað félag um harmonikuna í Reykjavík. Ég held að ég hafi mætt tvisvar á fundi hjá félaginu, fannst of mikil athygli á mér og mætti því ekki meir. Síðan flytur þú austur f Egilsstaði 1982 og tekur til við tónlistina aftur? Þegarljóstvarað íþróttaferlinum væri lokið þá var ákveðið að yfirgefa borgina, flytja til Egilsstaða og sjá til hvernig gengi og hér erum við enn. Hvað tónlistina varðar þá leið ekki langur tími þar til ég kynntist harmonikumönnum hér. Þú tekur sfðan þátt í þvf að stofna Harm- onikufélag Héraðsbúa? Já, reyndar kom ég aðeins þar að ásamt góðum mönnum. H.F.H. eða Harmoniku- félag Héraðsbúa var stofnað 30. mars 1984. Félagið stóð fljótlega fyrir samæfingum og kennslu sem var kærkomið fyrir þá sem Iftið kunnu eins og ég. Þarna byrjaði ég að læra nótnalestur og f framhaldi af þvf að breyta fingrasetningu, sérstaklega á bass- ann. Ég hef setið í stjórn H.F.H. bæði sem gjaldkeri og formaður. Þá var ég í lands- mótsnefnd fyrir landsmót S.Í.H.U. hér á Egilsstöðum 1993 með þeim ágætu mönnum Guttormi Sigfússyni, sem þá var formaður H.F.H. og Jónasi Þór Jóhannssyni, núverandi formanni S.Í.H.U. Þú varst einn af aðalhvatamönnum að því að halda lagakeppnir hjá Harm- onikufélagi Héraðsbúa? Það er rétt enda dæmdist á mig að halda utan um þessar keppnir sem var þó nokkur vinna en mjög skemmtileg og gefandi. Lagakeppnirnar urðu mjög vinsælarogein meginstoð H.F.H. Keppn- irnar urðu alls 9 ef með er talin laga- keppnin á landsmótinu 1993. Sú fyrsta var haldin 1992 og sú síðasta 2003. Þær tvær síðustu voru reyndar smærri að sniðum og nefndust „Lag kvöldsins". Þessar lagakeppnir höfðu allt að segja fyrir lagahöfunda og ekki síður fyrir alla þá gesti sem mættu á keppnirnar sér til ánægju. Þá má nefna útgáfu á diskum og snældum með lögum sem komu út úr lagakeppnum félagsins. Útgefin lög eru á sjöunda tuginn. Draumsýn var gefin út 1992,/í tauginni og /skýjunum 1996, Bærinn okkar 1997 og Útspil 2004 sem var gefinn út í tilefni af 20 ára afmæli H.F.H. Þegar þessum þætti f starfi félagsins lauk þá fór að halla undan fæti í allri starfsemi þess og nú má segja að félagið lifi af gömlum vana þó margir geri sitt besta. Það sem þarf til að starf- semi blómstri er að mfnu viti kraftmikil stjórn með ákveðin markmið til langs tíma og verkefni sem höfða til sem flestra. Þá þarf að ná sem flestum í sam- spil sem hæfir getu og leiðir til framfara yngri sem eldri. Verði ekki endurnýjun þannig að ungt fólk komi í félögin þá er ekki spurning um hvort, heldur hvenær starfið fellur um sjálft sig. Þú varst formaður Landsmótsnefndar HFH 1993. Hvers er helst að minnast frá þeim tfma? Eins og áður er sagt þá sá H.F.H. um lands- mót S.Í.H.U. 1993. Að mínu mati þá tókst mótið vel. Þarna fór fram fyrsta lagakeppni á landsmóti en vonandi ekki sú síðasta. Sumum fannst þetta kvöð á félögin en ég er viss um að fleirum þótti þetta góð til- breyting og ýtti undirstarfsemi félaganna. Svona keppni ætti að vera fastur liður á 18

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.