Harmonikublaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 2
Ávarp formanns
Kæru hamonikuunnendur
Frá síðasta pistli sem ég skrifaði í blaðið
er það helst að við héldum aðalfund sam-
bandsins að Hótel Örk f Hveragerði í boði
Félags harmonikuunnenda í Reykjavík.
Aðstaða og aðbúnaður var til mikillar fyr-
irmyndar og ber að þakka félaginu fyrir
gott skipulag og aðbúnað allan.
Fundurinn var starfsamur, fram fóru líflegar
umræður um þau mál sem voru á dagskrá
ogákvarðanirteknarsem hafa áhrif á starf
sambandsins ogfélaganna á komandi ári.
Þar ber hæst þá ákvörðun að falla frá
unglingalandsmótum sem hafa verið
haldin undanfarin ár og stefna heldur að
því að unga fólkinu verði skapaður vett-
vangur á landsmóti á komandi vori í sam-
ræmi við eftirfarandi tillögu.
Við undirritud gerum tillögu um þad ad á
næsta landsmóti 5ÍHU 2011 og til framtíðar
verði ungmennum fundinn góður tími í
dagskrá mótsins. Einnig gerum við tillögu
um það að mótið verði gert meira aðlað-
andi fyrir ungmennin.
Að sjálfsögðu er þetta hið besta mál og
ég vona að þetta verði öllum til góðs og
að aðildarfélögin séu nú á fullu að hvetja
unga harmonikuleikara til þátttöku á lands-
móti ívor, annað hvort í samspilshópum
eða sem einleikara, sem er þá ífullu sam-
ræmi við vilja aðalfundar. Gangi þetta eftir
sjáum við mörg ný andlit á landsmóti í
vor.
Ég er þess fullviss að takist þetta og unga
fólkið sé þessu fylgjandi höfum við gengið
til góðs þar sem ég held að eitthvað kyn-
slóðabil í tónlist og samkomuhaldi sé
engum til góðs, enda get ég ekki séð að
einhver ákveðin gerð af tónlist hæfi ein-
hverjum sérstökum aldri harmonikuleikara
þó að ýmsir ef til vill telji svo vera.
Einnig var sú ákvörðun tekin að halda
keppni í harmonikuleik þriðja hvert ár en
ekki árlega eins og við höfðum upphaflega
reiknað með að gert yrði. Það var álit
margra málsmetandi aðila að álagið sem
fylgdi keppni væri mikið og var það aðal-
ástæðan fyrir þessari samþykkt.
Það kom fram hjá aðildar-
félögum sem hafa unnið að
ungmennastarfi í leik- og grunn-
skólum að þau telja að þar hafi
umtalsverður árangur náðst í
kynningu á harmonikunni sem er auðvitað
gott málogégvil nota tækifærið að hvetja
félög til að gera meira í kynningarmálum
og í þvf að laða bæði börn og foreldra að
starfsemi harmonikufélaganna f landinu.
Nokkuð var rætt um útgáfu harmoniku-
blaðsins en sá árangur hefur náðst að
útgáfa þess stendur undir sér og formenn
og fulltrúar virtust almennt ánægðir með
blaðið og efnistök þess.
Hins vegar var rætt talsvert um heimasíð-
una en að mínu viti virkar hún alls ekki
nægilega vel og er alls ekki nógu mikið
notuð af fólki og félögum. Hver ástæðan
er fyrir þvíveit égað vísu ekki en sting upp
á að síðan verði opnuð þannig að fleiri
geti skrifað inn á hana án þess að fara í
gegnum vefstjóra, einskonar blogg og vita
hvort að hún lifnar ekki við en ég veit að
margir eru mér algjörlega ósammála um
þetta en ég get ekki skilið að ekki megi
prófa ogsjá hvernigtiltekst, ef illa gengur
er málið bara að loka aftur. Sama á við
með að setja inn á hana myndir úr starfi
félaganna. Það skoða ekki margir sfðu sem
ekkert breytist frá degi til dags.
Áfundinum fór fram góð kynning á lands-
móti sem verður haldið á Hellu í umsjón
Harmonikufélags Rangæinga ogégtrúi því
að þar verði vel að undirbúningi öllum
staðið ogvið lítum þarglæsilega aðstöðu
og landsmót næstavor.
Þann 9. október sótti ég afmælishátið
Félags harmonikuunnenda við Eyjafjörð
en.félagið varð 30 ára gamalt. Afmælishá-
tíðin var öll hin glæsilegasta og mikið um
að vera. Jafnframt ákvað stjórn SÍHU að
veita fyrrverandi landssambandsformanni
Jóhannesi Jónssyni viðurkenningu fyrirvel
unnin störf í þágu okkar allra.
Hátið Ijóss og friðar, jólin, nálgast óðum
og brátt er árið 2010 liðið f aldanna skaut.
Ég vil þakka öllum stjórnarmönnum SÍHU
svo ogöllum öðrum harmonikuunnendum
fyrir samstarfið á árinu og vona að árið
2011 megi verða gott harmonikuár og
okkur öllum til blessunar.
Gleðileg jól!
Jónas Þór
Verkstæði til alhliða viðgerða á harmonikum
að Sóleyjarima 15, Reykjavík.
Hafið samband við Guðna
í síma 567 0046.
Harmonikuþjónusta
Guðna