Harmonikublaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 20

Harmonikublaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 20
Aðalfundur S.Í.H.U. að Hótel Örk, helgina 17.-19. september 2010 Ég undirrituð var alveg blaut á bak við eyrun þegar Friðjón hnippti í mig í Svartaskógi og sagði að við ættum að bjóðast til að halda næsta aðalfund. Ég hlýddi auðvitað Friðjóni þar sem hann er vanur maður og hefur alltaf gefið mérgóð ráð. Fljótlega leitaði égtilboða hjá Hótel Örk, Hótel Selfossi og á Nesjavöllum en ég man ekki hvort ég sendi á Hellu líka en fékk allavega ekki svar þaðan. Ég beið tímakorn eftir svari frá Nesjavöllum og átti svo leið um og sá að hótelið var ekki starfrækt heldur var komið nýtt hótel sem hafði aðeins 24 herbergi. Hótel Örkbauð lítið hærra verð en var f Svartaskógi ogþað lækkaði þegar leið að fundinum. Hótel Selfoss bauð okkur helmingi hærra verð. Ég þekkti Hótel Örk og líkaði vel eftir að hafa verið þar með Komið og dansið félaginu. Það voru aðeins þrjú félög sem gátu ekki mætt. Skagfirðingar, Norð- firðingar og Hornfirðingar. FHUR gaf stjórnarmeðlimum og heiðurs- félögum kost á að ganga inn í pakkann og tóku nokkrir þvf og aðrir félagsmenn fengu tilkynningu um laus herbergi á laugardegi og nokkrir nýttu sér það. Sumir gátu komist fljótlega upp úr hádegi. Smá erfiðleikar voru fyrir einhverja í innritun. Ég sendi tvö blöð um hótelgesti á okkar vegum en aðeins annað blaðið hafði verið prentað út en við fundum út úr því. Um kvöldið tjáði móttakan mér að það vantaði bara Grétar Geirs og frú. Ég sem hafði heilsað þeim báðum. Þau höfðu orðið að Grétu og Jóhanni og fengu herbergi uppi en ég hafði skráð þau við hliðina á Jóa og daginn eftir kom í Ijós hvað gerðist. Við áttum ánægjulega kvöldverðarstund. Undirrituð bauð alla velkomna og söng lítið lag milli rétta. Að kvöldverði loknum hófst samspil á harmonikurnar og var Guðrún Guðjóns dugleg að drífa hjörðina áfram. Ekki var dansað þetta kvöld enda margir komnir langt að og lúnir eftir vinnuvikuna. Það varfallegasta haustveður úti ermorgunverðurvaretinn. Það lof- aði góðu fyrir óvissuferðina. Hirðbílstjóri harmonikuunnenda var Þáll Elíasson, góður félagi FHUR. Fararstjóri var Guðni Ágústsson fyrrver- andi alþingismaður. Guðni greindi frá markverðum atriðum á leiðinni. Húsið á Eyrarbakka ásamt Sjóminjasafninu voru skoðuð og starfs- maður í söfnunum var svo upptekin af þessum skemmtilega hópi að hún gleymdi að rukka aðgangseyri. En hún hafði sfmann minn og Valmundur gekk frá málinu síðar. Þarna var nestið snætt og drukkur drukkinn. Þaðan var haldið í Brugghúsið í Ölvisholti. Þar voru gestir leiddir í sannleikann um bjórgerð og fengu að smakka. Farið var að Brúnastöðum og Guðni sagði meira frá. Ferðalangarnir komu svo heim um fjögurleytið. Almenn ánægja var með ferðina enda frábært fólk á ferðinni með skemmtilegan fararstjóra. AðalfundurSÍHU var haldinn meðan makarnirfóru íofangreindaferð. Efst á baugi var umræðan um unga fólkið sem mun landið erfa, m.a. íharmonikumálum. Hefðbundnirdagskrárliðir runnu hægtígegn og margir höfðu sitthvað til málanna að leggja og allt verður skráð í fundargerð SÍHU. Friðjón greindi frá hamonikukeppninni og hafði skráð atriði í 15 liðum um það sem mátti laga og kemur sér áreið- anlega vel við framkvæmd næsta móts. Harmonikukeppnin var svo rædd sérstaklega og komu tvö virðingarverð sjónarmið fram frá Frið- jóni og Gunnari Kvaran. Annars vegar um árlega keppni og hins vegar þriðja hvert ár, árið fyrir landsmót. Rökin með árlegri keppni voru þau að þannig fengju mótshaldarar reynslubanka og nemendur myndu þjálfast í greininni líkt og íþróttamenn. En rökin með þriðja hverju ári voru þau að létta álagi af undirbúningsnefnd, nemendum og kennurum. Grétar Geirs skýrði frá sjónarhorni nemendanna að þeim hugnaðist ekki þátttaka að ári en ef til vill seinna. Nauðsynlegt er þó að efla samkennd og Valmundur, Elísabet og Friðjón. Allir ískottís samveru unga fólksins með æfingabúðum og þátttöku í landsmóti. Atkvæðagreiðsla var um tillögurnar og hlaut þriðja hvert ár flest atkvæði. Einnig var rætt um landsmótið sem fjölskyldumót en með því mætti efla samkennd harmonikuunnenda ungra sem eldri. Jónas Þór greindi okkur frá þátttöku Færeyinga í landsmóti en þeir voru á Héraði síðastliðna verslunarmannahelgi ogfráfyrirhugaðri ferð íslend- inga á harmonikumót í Færeyjum árið 2012. Matarhlé var um hádeg- isbil og boðið upp á kaffi og meðlæti síðar um daginn. Margt fleira í Ölvisholti. *

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.