Harmonikublaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 18
m 30 ara afmæli
Félags harmonikuunnenda við Eyjafjörð
*
18
Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð
(FHUE)varstofnað 5. októberárið 1980 og
er þvÍ30 ára um þessar mundir. Af þvítilefni
var ákveðið að halda upp á afmælið laug-
ardaginn 9. október 2010. Afmælisfagn-
aðurinn hófst með þvf að nokkrir félagar
léku á harmoniku inni íverslunarmiðstöð-
inni á Glerártorgi frá kl. 13:00 til 16:30 fyrir
viðskiptavini sem þar áttu leið um. Þetta
vakti almenna eftirtekt, ekki síst meðal
barnanna, og stöldruðu margir við til að
leggja við eyrun. Einnig var dreift þarna
kynningarbæklingi um félagið, sem ritari
félagsins hafði tekið saman af tilefni afmæl-
isins. Hápunktur uppákomunnarvar síðan
kl. 15:00 til 15:45, þegar stórsveitin lékall-
mörg lög undirstjórn Roars Kvam. Kvenna-
kórinn Embla varþarna einnigtilstaðarog
söng nokkur lög með hljómsveitinni.
Aðalhátíðin hófst síðan með tónleikum
stórsveitarinnar klukkan 19:00 í Lóni við
Hrísalund, og var þetta jöfnum höndum
afmælishátíð og árshátíð félagsins. Eins
og áður söng kvennakórinn Embla nokkur
lög með hljómsveitinni undir stjórn Roars
Kvam. Á eftir hljómsveitinni léku nokkrir
einleikarar á harmoniku, þeir Haukur Ingi-
marsson, RagnarVíkingsson, Hans Friðrik
Guðmundsson og að lokum gestaspilari
tónleikanna, Sigurður Hallmarsson frá
Húsavík. Að loknum tónleikunum setti for-
maður félagsins, Filippía Sigurjónsdóttir,
hátíðina og bauð félaga og gesti velkomna
og afhenti síðan veislustjóra, Pálma Björns-
syni, völdin.
Á meðan á borðhaldi stóð lék Sigurður
Hallmarsson Ijúf lög og gömlum myndum
frá fyrstu árum félagsins var rennt í gegn
um myndvarpa. Meðal gesta á hátfðinni
voru formenn fimm harmonikufélaga víðs-
vegar af landinu, aukformanns Sambands
íslenskra harmonikuunnenda (SÍHU). Þegar
hér var komið tók formaður SÍHU til máls
ogfærði félaginu peningagjöf og blóm frá
sambandinu og þáði koss frá formanni
okkar að launum. Formenn hinna félaganna
tóku einnigtil máls, ogfærðu þeirfélaginu
gjafir og rifjuðu upp góðar minningar. Þá
kom sending til félagsins vestan úr Dölum
og færum við öllum bestu þakkir fyrir hlýjan
hug og ógleymanlegt kvöld.
Jóhann Sigurðsson, einn af fyrrverandi
formönnum félagsins, rakti 30 ára
sögu félagsins í stuttu máli. For-
maður FHUE kallaði síðan fjöl-
marga félagsmenn og félags-
konur upp á svið með aðstoð
varaformanns, Lindu BjörkGuð-
Hans Friðrik, einleikari á afmælishátíd.
Formaður FHUE með peningagjöfog blómvönd frá
SÍHU.
Harmonikuleikarar á Glerártorgi.
mundsdóttur, og voru allir leystir út með
rós og kossi fyrir störf f þágu félagsins. Að
lokum tók formaður landssambandsins
aftur til máls og veitti einum af okkar
mönnumjóhannesi Jónssyni, sérstaka við-
urkenningu fyrir störf í þágu landssam-
bandsins. Á milli atriða var samkoman
krydduð með gríni frá veislustjóra ogílokin
hófst fjöldasöngur við undirleik Einars Guð-
mundssonarogjónasar Þórsjóhannssonar
formanns SÍHU.
Þegar hér var komið var klukkan orðin
22:00 og var þá stiginn dans við undirleik
Guðmanns Jóhannssonar í klukkutíma. Jón
Heiðar formaður Vestlendinga tók þá við
næsta klukkutímann. Lék hann einn síns
liðs í fyrstu, en ekki leið á löngu áður en
snarpur og danshvetjandi leikur hans lað-
Gestaspilari, Sigurður Hallmarsson.
jóhannes Jónsson tekur við viðurkenningu frá for-
manni Landssambandsins.
Einar Guðmundsson og jónas Þór leika undir fjölda-
söng.
Stórsveit FHUE spilará Glerártorgi.
aði fleiri hljóðfæraleikara upp á svið og
fyrr en varði var þar komin fullskipuð hljóm-
sveit. Að lokum endaði hljómsveit Einars
Guðmundssonar ballið og spilaði hún til
kl. 02:30.