Harmonikublaðið - 01.12.2010, Side 10
- Undir 1970 var ég nánast alfarið búinn að
leggja harmonikuna á hilluna og hafði ekki
átt nikku í nokkur ár, hafði skipt þeirri sfð-
ustu út fyrir eitthvert annað hljóðfæri,
líklega í Tónabúðinni. Sjálfsagt hefði
þessum kafla í lífi mfnu verið lokið ef þessi
elska hún Unnur hefði ekki tekið sig til,
farið og keypt flotta nikku og gefið mér og
það fæ ég seint fullþakkað henni, frekar
en svo margt annað í okkar bardúsi saman.
Ég hafði svo sem stundum ætlað mér að
fá mér nikku aftur, en það hafði ekki orðið
af því og hefði sjálfsagt ekki orðið og þá
væri ég nefnilega ekki á þessum stað f líf-
inu, ef Unnur hefði ekki tekið tilsinna ráða,
nákvæmlega þegar þess þurfti með og þú
sérð náttúrulega að maður forsmáir ekki
svona gjafir og aldeilis ekki ef þær eru nú
frá elskunni manns, segir Alli, sem alls-
hugar ánægður endurnýjaði gömul kynni
og hefur ekki sett sína góðu vinkonu, - allt
frá sjö ára aldri, - til hliðar síðan.
Félög harmónikuunnenda, lagasmíðar og
plötur
Alli ísfjörð gerðist strax þátttakandi f Félagi
harmonikuunnenda f Reykjavík árið 1977
og var einn af stofnendum þingeyska
félagsins, þess næsta sem var stofnað '78,
en síðan þá hafa félög verið stofnuð vfðs-
vegar um land, alls 15 starfandi og núna er
hann félagi og spilar bæði með þingeyska
og skagfirska félaginu. Alli starfaði sem
undirleikari með karlakórnum Hreimi í
Þingeyjarsýslu um nokkurt skeið og flakk-
aði með Hreimsfélögum þæði innanlands
og utan ogfluttur í Skagafjörðinn starfaði
hann eitt ár með karlakórnum Heimi í sér-
stökum verkefnum.
Aðspurðurum lagasmíðarsfnarvillAlli ekki
ræða þær neitt sérstaklega, segist að vfsu
hafa fengist við þetta af og til og jú fengið
allnokkrar viðurkenningar fyrir lögin sfn,
bæði á vettvangi SÍHU og fleiri aðila og á
öllum landsmótum frá upphafi hefur Alli
ísfjörð verið þátttakandi.
- Ég spilaði inn á fyrstu plötuna 1979 með
Reykjavíkurfélaginu, það var eitt lag eftir
mig, en síðan var það 1984 að við Jón
Hrólfsson gáfum út plötu, þarsem við spil-
uðum lögúrýmsum áttum, en síðan spilaði
ég inn á tvo diska með karlakórnum Hreimi.
Árið 2000 kom diskur með mínum lögum
í þland við lög annarra og þann disk kallaði
ég í Ásbyrgi og er hann að ég held ófáan-
legur núna. Það var svo þegar ég varð
sextugur að ég gaf út annan disk sem ég
kallaði Sumarstemningu ásamt með nótna-
hefti með öllum mínum lögum.
Árið 2005 fluttu þau hjónin Unnur og Alli
frá HúsavíktilSauðárkróks ogfljótlega fór
Alli að vinna hjá Vörumiðlun, flutningafyr-
irtæki sem rekið er á Sauðárkróki.
Skagfirðingar þóttust góðu bættari að fá
rekinn á fjörur sínartónlistarmann á borð
við Alla ísfjörð og áður en við væri litið var
hann farinn að spila með skagfirskum nikk-
urum, auk þess sem hann er ómissandi
hluti af hljómsveit Sigurpáls sonar síns
Von, sem yfir veturinn heldur uppi fjörinu
á þorrablótum og árshátíðum, en yfir sum-
arið þarfVonin minna á harmonikuleikara
að halda. Á þeim tfma er aftur á móti gripið
í nikkuna með félögunum í harmoniku-
klúbbnum og á harmonikumótum víða um
land, og á síðasta ári var sett saman dag-
skrá með lögum frá því um 1960 og þá
þurfti að dusta rykið af saxanum sem lék
stórt hlutverk í rokldögunum, en samt sem
áður var nú nikkan og hljómborðið f aðal-
hlutverkinu.
Þau hjónin Unnur ogAlli ísfjörð eiga fallegt
heimili að Forsæti 10 b á Sauðárkróki og
þangað er gaman að koma og spjalla um
þessa gömlu og góðu daga og skoða
albúmin hans Alla, þar sem sjá má þegar
nýir straumar í dansmúsikinni voru að
koma fram, ný hljóðfæraskipan sem varð
að vera í danshljómsveitunum, þannig að
sú tónlist sem átti allan hug almennings
mætti hljóma, blásturshljóðfærin urðu ráð-
andi ásamt gítar og trommum og píanói,
rokkið, blúsinn, kántríið og sveiflan voru
að taka völdin. - Og svo hárgreiðslan og
skeggið maður, segir Alli og bendir á
nokkrar myndir sem eru sérlega skemmti-
legar.
Þetta voru Ijúfir dagar, ekkert nema ánægju-
legar minningar og þegar Alli ísfjörð er
spurður um eitthvað sérstakt ogskemmti-
legt sem uppúrstandi, brosir hann góðlát-
lega og segir: Þetta var einfaldlega alveg
dásamlegur tími.
Og þegar hann er spurður hvað sé fram-
undan svarar hann jafn góðlátlega og fyrr
að það sé allt óráðið, en það er næsta víst
að ef Alla ísfjörð býðst að taka þátt í ein-
hverju skemmtilegu, þá mun ekki þurfa að
bíða eftir honum.
Ekki sofa hjá sætum stelpum!
I sumar heimsótti ég Breiðumýri í fimmta
skipti. Eins og venjulega var mér boðið að
sofa ístofu sem eryfir ballsalnum. Þarvoru
fyrir tvær sætar stelpur, en ánægjan varð
stutt, því að þegar að ballið var búið kom
húsvörðurinn ogsagði: Égverð vístað færa
þig. Þá sagði ég: Það er alveg óþarfi, þú
þarft ekkert að hugsa um það. Jú, sagði
hann, þú færð 3 dýnur uppi á senu.Tvær
væru alveg nóg, svaraði ég. Ég vil láta fara
vel um þig, sagði hann. Þakka þér kærlega
fyrir, var mitt svar. Þar með fékk ég ekki að
sofa hjá sætu stelpunum.
Það hefur aldrei verið eins mikið af fólki á
staðnum og núna í sumar. Ef mann langar
í ókeypis kaffi er maður velkominn í eld-
húsið. Úti er stórt grill til afnota fyrir alla.
Það er dansað á tveimur stöðum og á
laugardaginn til kl. 03:00.
Mérfinnst íslenski spilamát-
inn miklu betri en danski
spilamátinn.
*
-n
10
s
Þegar ég kom aftur til Danmerkur frétti ég
að stærsta mótið hér væri að byrja. Ég hafði
misskilið það eitthvað þvíað égvar búinn
að segja ölium á íslandi að ég væri þar á
sama tíma og þetta mót. Fyrirgefið þið.
Næsta sunnudag kom Kurt Markussen frá
Hamborg f heimsókn til mín, ég hafði ekki
séð hann Í30 ár. Hann vareinu sinni þriðji
Danmerkurmeistari héríDanmörku. Hann
dvaldi einu sinni hjá mér á íslandi í 11 daga,
þá spilaði hann m.a. í Norræna húsinu,
Glæsibæ og víðar, m.a. hálftíma í Ríkisút-
varpinu. í heimsókn sinni til mín hafði hann
meðferðis stóra og sjaldgæfa Hohner
nikku, það finnast aðeins fáar slfkar f dag.
Eftir að hann hafði spilað fyrir mig utan-
húss fengum við okkur kaffi í glaðasólskini
úti á svölum, þar sem við ákváðum að
halda sambandi framvegis. Ég sagði honum
að ég kærði migekki um að missatengslin
við vini mfna.
Vinur minn einn á íslandi spurði mig hvort
ég gæti útvegað honum nótur að lagi sem
Hávard Svendsrud spilar á einum diskanna
sem hann hefurgefið út. Lagið heitirAnno
1945. Ég hafði samband við Hávard og hann
sendi mérsvo lagið, vini mínum til mikillar
ánægju. Síðan þá hefur Hávard heimsótt
ísland og fengið góða dóma. Ég talaði við
hann í gærkvöldi og hann sagðist hafa
mikið að gera, alltaf að spila á tónleikum
o.s.frv. Ég lofaði að senda honum úrklippur
úr Harmonikublaðinu þar sem fjallað var
um hann og það gladdi hann mikið.
Stærstu stjörnur okkar í Danmörku í dag
eru Sören Brix, Kristian Rusbjerg og Ras-
mus Mose. Til dæmis hafa diskar með
Kristian, Jesper og Jens Peter selst f yfir
þúsund eintökum.
Kveðja frá Hermóði Alfreðssyni,
Danmörku