Harmonikublaðið - 01.12.2010, Qupperneq 17
Nýr geisladiskur
Út er kominn geisladiskur ásamt nótnahefti með lögum Ágústar
Péturssonar. Þetta er diskur sem allir harmonikuunnendur ættu að
eignast.
Ágúst Pétursson var einn af okkar ástsælustu dægurlagahöfundum
og eftir hann liggur fjöldi vinsælla dægurlaga.
1 *.* i •"»
Það er Metúsalem-útgáfan sem gefur út þennan disk og hægt er að
nálgast hann ásamt nótnahefti hjá Hörpu Ágústsdóttur í síma 699
6268.
e,lL
Grein birt í Dragspelsnytt 2/2010:
David Wahlén í óperu eftir
Gísla Jóhann Grétarsson
Tónskáldið Gísli Jóhann Grétarsson er í kandidatsnámi í tónlist við Tónlistarháskólann í Piteá
(Norður-Svíþjóð) undir leiðsögn Jan Sandström, prófessors. Gísli Jóhann hefur nýlega lokið við
að semja annað óperuverk sitt á aðeins nokkrum árum.
Gísli Jóhann hefur sjálfur samið
umgjörð óperunnar, sem hann nefnir
ör-óperu. Þær kröfur eru gerðar til
ör-óperunnar að sýningin taki að
hámarki 40 mín., að söngvararnirséu
ekki fleiri en fjórir, og hljóðfæraleik-
arar ekki fleiri en fimm. „Eins og hefð-
bundin ópera, en aðeins styttri", eins
og hann sjálfur orðar það.
Nýjasta frumsamda óperan hans
heitir Dimmalimm - Create your own
destiny, og innblásturinn kom frá
þjóðsagnarminninu um Dimmalimm.
í hljómsveitinni voru fimm hljóðfæra-
leikarar sem spiluðu á samtals níu
hljóðfæri. Við frumflutning í Piteá
þann 23. apríl sl. stjórnaði tónskáldið
sjálfur óperuhljómsveitinni. Kjell-
Peder Johannson sviðsetti sýn-
inguna.
Ljúft er fyrir tónlistarmenn og unn-
endur harmonikutónlistar að ný
ópera sé samin að stórum hluta með
þessa tónlist í aðalhlutverki.
í undirbúningsferlinu vann Gísli tölu-
vert með sveigjanleika harmonik-
unnar til að spila bæði með eigin
tónum svo og öðrum hljóðum sem
hægt er að skapa með hljóðfærinu.
Vegna smæðar hljómsveitarinnar
fundum við fljótlega þá lausn að láta
harmonikutónlistina hljóma sem stef
eða öllu heldur hljómgrunn og önnur
hljóðfæri bættust svo eðlilega við,
hvert með sínum hljómi.
Óperan var, eins og að ofan er getið,
frumsýnd 23. aprfl í Blackbox, Studio
Acusticum í Piteá. Önnur sýning var
haldin strax næsta dag ásamt sýn-
ingu fyrir skólanemendur í Skellefteá
þann 27. april á þessu ári.
Meira um óperuna á www.miniopera.se
Grein þýdd afBjörg Juhlin.