Harmonikublaðið - 01.05.2013, Síða 12
Það er er líklega ekki á neinn hallað þótt því
sé haldið fram að Páli á Krossi, eins og hann
var jafnan kailaður á þeim árum, hafi verið
einn þekktasti og vinsælasti harmoniku-
(eikari á Fljótsdalshéraði á sjötta áratugnum
og framan af þeim sjöunda. Hann einn eða
með öðrum spilaði þá á böllum um allt Hérað
og niður um firði.
Páll Hjörtur Sigfússon er fæddur að Krossi í
Fellahreppi 26. nóvember 1931. Faðir hans
var Sigfús Guttormsson og móðir Sólrún
Eiríksdóttir en þau fluttu í Kross og hófu
búskap þar árið sem Páll fæddist. Páll er
elstur níu systkina og hafa flest þeirra gripið
í harmoniku. Þau eru auk Páls: Oddur, Guðný
Sólveig, Guttormur, Sveinn Eiríkur, Þórey,
Baldur, Jón og Oddbjörg.
Foreldrar Páls voru tónelsk og fengust líka
töluvert við Ijóðagerð. Föðuramma Páls,
Páll íbæjardyrurwm á Setbergi með harmoniku Braga
12
Um tónlistarferil
Páls á Krossi
Páll Hjörtur Sigfússon tekur lagid í áttrædisafmæli sínu.
Ljósm: BaldurSigfússon
Oddbjörg Sigfúsdóttir,
sem var á heimilinu
þegar systkinin voru að
alast upp, léká harmon-
iku. Mun hún hafa leikið
á böllum á meðan hún
var í Vopnafirði á yngri
árum. Hún léká svokall-
aða tvöfalda harmoniku
með tveimur eða fjórum
bassatökkum. Á Krossi
var eitt hljóðfæri, stigið
stofuorgel, sem faðir
hans lék á. Eins reyndi
Pállað ná lagi á orgelið
og gekk býsna vel. Það
má því segja að syst-
kinin á Krossi hafi fengið
staðgóðan skammt af
tónlist í uppeldi sínu og
það átti eftir að skila sér
ímiklumtónlistaráhuga
þeirra eftir því sem árin
liðu.
Páll kynntist fyrst harmoniku þegar hann var
á barnaskóla á Setbergi um tólf ára aldur. Á
þessum árum voru farskólar og á Setbergi
kenndi Hallgrímur Einarsson. Hann var frá
Fjallsseli í Fellum og lék á tímabili nokkuð á
harmoniku á böllum. Páll heyrði Hallgrím
leika á þetta forvitnilega hljóðfæri og heill-
aðist strax af hljómi þess. Á þessum árum
voru fjórir bræður að alast upp á Setbergi.
Þrír þeirra Sigfús, Haraldur og Bragi Gunn-
laugssynir urðu allir liðtækir harmoniku-
leikarar. Setberg er næsti bær fyrir innan
Kross og stutt á milli bæjanna. Það var tals-
verður samgangur milli fólksins á bæjunum
og Páll var oft gestkomandi hjá Braga jafn-
aldra sínum. Eftir að Bragi eignaðist nikku
æfðu þeir félagar sig töluvert saman og
fetuðu sig áfram í tónlistinni.
Þann 31. janúar 1951 breyttist tilveran hjá
heimilisfólkinu á Krossi harkalega þegar
Sigfús fórst með flugvélinni Glitfaxa sem var
á leið frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur í
vondu veðri og slæmum flugaðstæðum. Alls
fórust 20 manns. Opinberlega hefur flakið
aldrei fundist. Páll var á þessum tíma við
nám í Alþýðuskólanum á Eiðum en hætti
námi um vorið til að vinna við búskapinn
heima á Krossi með móður sinni og yngri
systkinum. Þar var starfið margt og í mörg
horn að líta við að halda heimilinu saman
og búskapnum gangandi. Páll varð í forsvari
fyrir búið með móður sinni og var allt í einu
orðinn ígildi bónda á bænum.
Þótt örlögin hefðu breytt tilveru fjölskyld-
unnar á Krossi missti Páll ekki áhuga á tón-
list og í apríl 1952 keypti hann sína fyrstu
harmoniku. Hana keypti hann af Haraldi frá
Setbergi sem þá varorðinn bóndi á Hreiðars-
stöðum íFellum. Nikkan varScandalli gerðar,
fjögurra kóra ogi20 bassa. Hún kostaði 2700
krónur. Páll fór fljótlega að leika fyrir dansi
eftir að hann eignaðist hljóðfærið og þá oft
með Braga granna sínum sem hafði keypt
sér nýja harmoniku. Þeir voru oft með eina
nikku og skiptust á að spila. Það gat nefni-
lega verið nokkuð erfitt að spila einn á
\