Harmonikublaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 16

Harmonikublaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 16
NORSK HEIMSÓKN Á „NÚ ER LAG" Á VARMALANDI UM VERSLUNARMANNAHELGINA Skömmu eftir áramótin síðustu hafði Norð- maðurinn Egil Oknes samband við undir- ritaðan, þar sem komið hafði til umræðu í hans félagsskap að taka sér ferð á hendur til íslands sumarið 2013. Egil Oknes er stjórnandi hljómsveitar harmonikufélags sem heitir Brönnöysund Trekkspillklubb. Hann sagði hljómsveitina telja um 15 manns, harmonikuleikara, bassa oggítar- leikara ásamt söngvurum. Lengi hafi blundað með félagsmönnum að heimsækja ísland, þar sem góður orðstír hafi ævinlega fylgt umsögn harmonikuleikara sem sótt hafi landið heim, eða annara ferðamanna sem hann hafi haft spurnir af og komið höfðu til landsins. Hann lét einnig þau orð falla að æðsti draumur félagsmanna væri að hitta ámóta félagsskap á íslandi, eiga við þá orð og fá vitneskju um starfið hér og vinnubrögð varðandi harmonikuna eða hvaða hugmyndir bærðust í brjóstum manna hér í nútíð sem og framtíð, ásamt að fá smá yfirsýn um hina margrómuðu og sérstöku náttúru landsins. Þessari óskeða fyrirspurn varskotið undir æðsta dómstól Félags harmonikuunnenda í Reykjavík „stjórnarinnar“ sem tók tillög- unni fagnandi hendi. Allir sem einn glödd- ust yfir þessari umsókn, ákveðið var að gefa félagsskapnum kost á að heimsækja okkar félag að Varmalandi um Verslunar- mannahelgina nú í sumar. Norðmennirnir tóku samþykktinni fegins hendi og nú var í alvöru sest niður beggja vegna Atlantsála til að fínslfpa ferðatilhögun. Alls verða Norðmennirnir28-30, þarsem makarverða með, þeir koma til landsins 1. ágúst og fara aftur utan þann 7. ágúst. Búið er að útvega hótel bæði í Reykjavík og Borgarnesi. Þá verður og til reiðu rúta sem þeir hafa tekið á leigu meðan á dvölinni stendur. Þá ætla þessir góðu gestir að sjá alfarið um tón- leikana á laugardeginum með hljómsveit sinni, ásamt dúettum, einleik og söng. Einnig leika þeir að hluta til á dansleikjum laugardags- og sunnudagskvöld. Með þessari heimsókn gefstokkurtækifæri til að blanda geði við frændur okkar Norð- menn, htusta á þeirra túlkun tónlistarinnar frá öllum hliðum eða fræðast um f hvaða Ijósi þeir sjá hlutina fyrir sér á komandi árum. Brönnöysund liggur nærri mið Nor- egi, nokkru norðar en Þrándheimur. Von- andi finnst gestum mótsins að Varmalandi fengur að slíkri heimsókn sem kemur um langan veg til að gleðja okkur. Hilmar Hjartarson FRÁ HARMONIKUFÉLAGIHÉRAÐSBÚA Spilararf.v. Arnar Freyr, Erlendur, Jón og Gylfi. Vetrarstarfið hjá okkur hefurverið nokkuð líflegt. Við höfum komið saman annað hvert miðvikudagskvöld íveitingahúsinu Kaffi Egils- staðir. Þar hefurverið spilað á harmonikur og dansað frá kl. 20:30 til kl 23:30, aðgangur kr 500 og innifalið kaffi og með því og að sjálf- sögðu tónlistin. Fyrsta danskvöldið var 3. október og það síðasta 17. apríl. Aðsókn ágæt, 15 til 35 manns og mikið dansað. Annað sem við hjá H.F.H. tókum okkur fyrir hendur í vetur, var að fara í leikskólana og spila fyrir börnin. Okkurvar mjögveltekið og má telja víst að það verði framhatd á þvf. Við fórum í fjóra leikskóla, Bjarkatún Djúpavogi, þar sem Sigurður Eymundsson lék. Sigurður og Jón Sigfússon léku ÍTjarnarlandi á Egils- stöðum. Þeir léku einnigíKærabæ á Fáskrúðs- firði. í Hádegishöfða íFellabæ léku Sigurður og Gylfi Björnsson bóndi og harmonikuleikari á Hofi. Við spiluðum staðlaða prógrammið og börnin voru mjög vel undirbúin og dönsuðu og sungu af hjartans list. Svo bættum við nokkrum lögum við frá okkur og enduðum heimsóknirnar með að lofa börnunum að skoða hljóðfærin f návígi, ýta á hvítu nóturnar ogfá hljóð. Fjórði maí er Harmonikudagurinn, þá förum við að venju og spilum á sjúkra- húsinu og í verslunum. Á laugardagskvöldið 4. maí heldur H.F.H. og Félag eldri borgara á Héraði sameiginlega árshátíð í Kaffi Egils- staðir. Dagskráin hefst með hljómleikum harmonikusveitar Tónlistarskóla Fellaskóla undir stjórn Torvald Gjerde. Á eftir fylgja gamanmál f tali og tónum, síðan er borðað og svoerdansleikur. Jón Sigfússon Dansad í Kaffi Egilsstödum. VídirSigurjónsson spilar 16 Frá heimsókn íleikskólann Tjarnarland á Egilsstöðum

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.